Vikan - 15.10.1970, Blaðsíða 32
HEYRA MA
Cþó iægra tátíj
ÖMAR VALDIMARSSON
inn að hugsa um að syngja og gera
ekkert annað — allar þessar marg-
gæti einbeitt mér að bassanum.
Þessvegna varð ég svo hissa þegar
mér var boðin staða í Náttúru, sem
söngvari, að ég átti varla orð, held-
ur sló mér á lær og dæsti!
— Nú höfum við legið í LP-plöt-
unni, væntanlegu, undanfarið, og ég
er að vonast til að við getum farið í
upptökuna um mánaðamótin nóvem-
ber/desember. Ef það verður ekki,
þá förum við ekki fyrr en eftir ára-
mót. Enn höfum við ekki gert neina
samninga við plötufyrirtæki, en höf-
um fengið tilboð frá þeim öllum.
Við erum svona að melta þetta.
— Og svo er annað sem við erum
mikið að spekúlera í, og það eru
Framhald á bls. 49
IIILJUM FLYTJA
EICID EFNI
ViStal við Pétur
Kristjánsson, „þrumu-
söngvara“ hinnar
geysivinsælu Náttúru.
Það vakti ekki svo litla athygli
þegar Pétur Kristjánsson, bassaleik-
arinn og söngvarinn úr Pops var
ráðinn söngvari Náttúru í stað Jónas-
ar Jónssonar. — Pétur er bara bút-
ungur, sagði fólk. — Hvað er verið
að ráða svona kalla í topphljóm-
sveit?
En staðreyndin er sú, að Náttúra
gat tæplega fengið betri mann, það
hefur Pétur sýnt og sannað. Ég hitti
Olaf Sigurðsson, trommuleikara
Pops, á dögunum, og hélt hann því
fram að Pétur hefði haft mjög gott
af því að losna við bassann, því þar
með gæti hann einbeitt sér að
söngnum. — Það er mikið betra að
vera sagður góður söngvari eða
bassaleikari, sagði Oli, — heldur en
sæmilegur bassaleikari og sæmileg-
ur söngvari.
Pétur leit við hjá okkur hér á Vik-
unni daginn fyrir Jónínuhátíðina, og
við spjölluðum saman um stutta
stund. — Ég get nú ekki neitað því,
sagði hann, — að mig langar oft að
grípa í bassann. En nú er ég farinn
að einbeita mér að því að syngja,
það er að segja, að nú er ég farinn
að geta einbeitt mér, og það þýðir
að ég hlýt að vera í framför. Mér
finnst það allavega sjálfum. Fyrst til
að byrja með var ég óskaplega ó-
styrkur og varð alltaf að hafa eitt-
hvað í höndunum, en nú er ég far-
— Nei, ég var aldrei hræddur við
að vera ,,arftaki" Jónasar, eins og
þú kallar það, því að með þessum
mönnum finnst mér allir vegir færir.
Við höfum verið að dreifa meira úr
lagavalinu, einskorða okkur ekki við
einhverja vissa hljómsveit, eins bar
eitthvað á áður en ég byrjaði. Rétt
áður en Jónas hætti æfðu þeir lítið
eins og gefur að skilja, og þá var
fólk að segja: — Hvað er þetta, hef-
ur engin Jethro Tull-plata komið út
nýlega? Svo höfum við verið með
tvö lög frá Flock, og sjálfsagt meg-
um við búast við því einhverntíma
að fólk fari að spyrja hvort ekki sé
til nýleg plata með þeim. Annars er
það merkilegt, að áður en ég byrj-
aði í Náttúru, hafði ég ekkert álit á
mér sem söngvara, og var alltaf að
reyna að fá söngvara í Pops svo ég
ÞJOÐLAGAHÁTÍÐ í TONABÆ
Á fimmtudaginn kemur, 22. októ-
ber, verður haldin Þjóðlagahátíð í
Tónabæ. Það er þjóðlaga- og visna-
klúbburinn Vikivaki sem að hátíð-
inni stendur, en sá sami klúbbur
stóð fyrir fyrstu þjóðlagahátíðinni
sem haldin var hérlendis í fyrra-
haust. Vikivaki hefur undanfarin tvö
ár staðið fyrir þjóðlagakvöldum og
kynningum í Tónabæ við miklar
vinsældir, og verður þeirri starfsemi
haldið áfram í vetur, en þó eru
möguleikar á að starfseminni verði
háttað á eitthvern annan hátt, þar
sem klúbburinn er að losna úr svo
nánum tengslum við Æskulýðsráð
Reykjavíkur.
Á þjóðlagahátíðinni á fimmtudag-
inn, sem hefst klukkan 20.00, koma
m.a. fram Ríó-tríóið, Þrjú á palli,
Fiðrildi, Kristín Ólafsdóttir, Lítið eitt,
Árni Johnsen, Sverrir og Moody,
Mary McDowell, bandarisk söngkona
sem hér er búsett, að minnsta kosti
um stundarsakir, og margir fleiri.
Aðgangseyri verður stillt í hóf, og
ef miða á við aðsókn í fyrra, verða
margir frá að hverfa.
32 VIKAN 42 tw.