Vikan


Vikan - 12.11.1970, Blaðsíða 13

Vikan - 12.11.1970, Blaðsíða 13
að þreifa fyrir sér til vinstri lokuðum augum. Jón veit, hvað liann vill, og stefnir hiklaust að settu marki, en snýr þegar við og tekur sér nýtt verkefni fyrir hendur, ef honum lízt ekki á ferða- lag eða geðjast eigi förunaut- ar. Hégómaskapur lítilmót- legra sálna er honum and- styggð. Maðurinn er raunar værukær i dagfari, en hann bælir sig aldrei í augsýn fjöldans og kýs fremur að berjast og mæðast í tvisýn- um leik en skipa bekk með feitum og stroknum þræl- um. Ormstungurnar í Al- þýðuflokknum bera Jóni, að hann dugi af þvi að honum megi ekki verða til þess liugsað að drepast. Hann læt- ur ógert að sýnast og tala gegn belri vitund. Þess vegna nýtur hann trausts og virð- ingar fyrir sjálfstæði og ein- urð. Svo ræður miklu um gengi Jóns Þorsteinssonar, að hann er stórvirkur i átök- um, hugkvæmur í bezta lagi og sér ýmis úrræði, sem öðr- um dvljast. Hann átti til dæmis hugmyndina að fram- kvæmdinni á launajafnrétti kvenna og karla og fletti þar með blaði í merkum sögu- kafla íslenzkra félagsmála. Minnir Jón i þeim efnum helzt á Emil Jónsson ernan og ungan. Jón Þorsteinsson hefur ekki átl almennum vinsæld- um að fagna á landsmæli- kvarða. Opinberir starfs- menn muna honum að hann reyndist óþjáll og jafnvel ósanngjarn í samningum um iaun þeirra og kjör, og bygg- ingaframkvæmdirnar í Breiðholtshverfinu í Reykja- vík hafa knúið Jón til and- stöðu við verktalca og iðnað- armenn annars vegar, en valdið ýmsum ihúðakaup- endum vonhrigðum hins vegar. Þetta er þó léttvægt að dómi Jóns Þorsteinsson- ar í samanburði við traust það, er hann nýtur meðal kjósenda sinna í Norður- landskjördæmi vestra. Aftur á móti skiptir miklu, hvað Siglufjörður á erfitt upp- dráttar eftir að síldin hætti að vaða á Húnaflóa, Gríms- eyjarsundi og Skjálfanda. „Silfur hafsins“ rennur ekki lengur í stríðum straumum í bræðslur og tunnur þar og þvi er einnig vant skotsilf- urs í vösum Siglfirðinga. Margir þeirra ganga atvinnu- lausir mánuðum saman ár hvert og ætlast til fulltingis af stjórnvöldum landsins. Hafa Siglfirðingar smám saman misst allt sálarþrek í mótlæti og vonleysi nema heimtufrekjuna. Þeir munu þess vegna erfiðustu kjós- endur á gervöllu Islandi. Þetta hitnar eigi sízt á Jóni Þorsteinssyni og ergir lund hans. Nauðleytamenn eru lionum næsta hvimleiðir. Kveinstafir láta illa í eyrum hans, og honum er móti skapi að þveitast milli stjórn- arskrifstofa, banka og nefnda í Reykjavík að biðja valdsherra og gæzlumenn sjóða ásjár í auðmjúkri lotningu. Jón Þorsteinsson kaupir aldrei aðgöngumiða að alþingishúsinu þvilíku verði. Hins vegar áliti liann hag umbjóðenda sinna á Norðurlandi bezt borgið, ef hann ríkti i stjórnarráðinu og segði þar fyrir verkum, en honum stendur sú bæki- stöð engan veginn til boða. Það kynni að vera skýring þess, að Jón Þorsteinsson kveður og læzt þakka fyrir sig, en vafalaust leikur kalt glott um varir lians, þegar hurðin dýra á alþingishúsinu skellur i lás að baki honum á vori komanda. Fljótt á litið virðist ástæða að ætla, að þátttöku Jóns Þorsteinssonar í íslenzkum stjórnmálum muni brátt lok- ið, en það er ólikt honum að víkja bljúgur af vettvangi og gerast einn af þegnum þagn- arinnar, þó að hann geti átt von á, að honum græðist fé við hætt aflaskilyrði. Jón er í hópi slyngustu og liarð- skeyttustu skákmanna á Is- landi og litur iðulega á þjóð- málabaráttuna eins og sókn og vörn og mannakaup á hvitum og svörtum reitum. Fræg er kenning hans, að eigi sé áhorfsmál að fórna peði til að fá betri stöðu í pólitisku tafli. Nú er því lík- ast, að hann hafi allt i einu fórnað drottningunni, en þess ber að minnast, að jafn- vel slík fórn fær stundum staðizt og leitt til sigurs að lokum, þegar snilldarlega er leikið og reiknað rökrétt langt fram í timann. Hitt er sennilegt, að Jón sé að tefla upp á annað en mannafor- ráð þau, sem fást með at- lcvæðum Siglfirðinga, Skag- firðinga og Húnvetninga. Lúpus. 46. tbi. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.