Vikan - 12.11.1970, Blaðsíða 20
Allar innimyndimar eru teknar á X.
árs deildinni, og þarna er ein fóstran
aS gegna skyidustörfum sinum.
Litið við í Hagaborg
kemur utan af landi. Umsóknir
um skólavist skulu sendar
Fóstruskóla Sumargjafar, þar
sem sérstök umsóknareyðublöð
fást til útfyllingar. Umsóknun-
um fylgi:
1. Útfyllt umsóknareyðublað
með eigin rithönd.
2. Staðfest afrit af gagnfræða-,
landsprófs- eða stúdentsprófs-
skírteini.
3. Meðmæli frá vinnuveitanda,
kennara eða skólastjóra.
4. Passamynd af umsækjanda.
Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Eftir að við höfðum gengið
um húsakynni Fóstruskólans,
brugðum við okkur á eitt barna-
heimila Sumargjafar, Hagaborg,
og fylgdumst með þar um
nokkra stund. Þar eru börn allt
frá eins árs og upp í 5 ára og
eins og myndirnar bera með sér,
þá er eitt víst: Börnin hafa síð-
ur en svo slæmt af því að vera
á barnaheimili á daginn á með-
an mamma og pabbi vinna úti;
þeim leiðist allavega ekki.
ó.vald.
20 VIKAN 46- tbi.
En að vera lit.il stúlka á barnaheimili getur líka
haft sínar alvarlegu hliðar. .
Svona leikgrindur eru alltaf vinsælar á harna-
leikvöllum, og krakkarnir höfðu síður en svo á
móti því að stilla sér upp fyrir ljósmyndarann.