Vikan - 12.11.1970, Side 49
Þeir, sem fylgdust með vinsælu fram-
haldsmyndinni Saltkrákan í barna-
tíma sjónvarpsins, kannast vel við
Louise Edlind, en hún lék hina fögru
Malin. Nú freistar hún þess að verða
kvikmyndaleikkona á ,heimsmæli-
kvarða.
Hún lék aðallilutverkið í
bainamyndinni vinsælu,
Saltkrákunni, sem sýnd var
í Stundinni oldcar liér á dög-
unum. Þetta er fyrsta starf
liennar, síðan hún lauk námi
í leikskóla Dramatens í
Stokkliólmi. Hún var komin
níu mánuði á leið, þegar hún
gekk undir prófið. Síðan
eignaðist hún sitt barn og
annaðist ]iað um skeið, unz
henni barst tilboð í pósti
einn góðan veðurdag um að
láta reyna sig sem mótleik-
ara ekki ófrægari persónu
en Steve McQueen.
Þriðja sænska stúlkan er
Christel Johansson, en hún
varð númer tvö í keppninni
um titilinn Ungfrú Svíþjóð í
ár. Henni var boðið að láta
prófa sig, þegar handarísk-
ur kvikmyndasérfræðingur i
leit að nýjum stjörnum var
viðstaddur keppnina um fal-
legustu stúlku Sviþjóðar. —
Sagt er, að Christel hafi
mesta möguleika á að
hreppa hnossið.
Steve McQueen segir, að
þetta verði vonandi siðasta
stórmyndin, sem hann leiki
í. Þessi mynd er íburðarmik-
il og kostar offjár og lítil
líkindi til að nokkur veru-
legur hagnaður verði af
henni. Eins og kunnugt er
eru slíkar stórmyndir nú óð-
um að syngja sitt síðasta.
Nýir menn hafa sýnt fram
á það i verki, að listrænn ár-
angur krefst alls ekki jafn
mikilla peninga og iburðar
og hingað til liefur verið álit-
ið.
„Eg er orðinn dauðþrevtt-
ur á öllu þessu prjáli og pir-
umpári,“ segir SteVe. „Næst
ætla ég að leika i mynd, sem
er sjálf meira virði en allt
umstangið í kringum hana.“
TOSTAO
PEU
JARIZINHO
Einn kafli KNATTSPYRNUHANDBÓKARINNAR segir frá Heimsmeist-
arakeppninni og úrslitum leikja hennar frá upphafi. I bókinni er að
finna flest það, sem knattspyrnu varðar, m.a. er rakin saga knatt-
spyrnunnar, rætt um fótknetti og knattspyrnuskó, tækni, leikaðferðir,
þjálfun knattspyrnumanna, skipulagningu knattspyrnustarfsins,
meiðsl, einkenni þeirra og meðhöndlun og ótalmargt fleira. Þetta
er bókin, sem knattspyrnumenn og áhugamenn um knattspyrnu hafa
beðið eftir í aldarfjórðung.
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
PÖSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK
46. tbi. VIK'AN 49