Vikan - 03.12.1970, Qupperneq 4
eykur fegurð augna yðar
Augun búa yt'ir leyndum töfrum, sem
þér getið auðveldlega framkallað Kynnist May-
belline snyrtivörum. Byrjið með ULTRA* BRO W —
litli línu burstinn gerir yður mögulegt að forma
augabrúnirnar mjúkum eðlilegum línum. Næst
notið þér ULTRA*SHADOW — mjúkur burstinn
tryggir að liturinn verður jafnt borinn á. Með
FLUID EYELINER (burstinn er í lokinu) virðast
augun stærri og bjartari. Gleymið ekki hinum
frábæru eiginleikum burstans (Duo-Taper Brush).
sem fylgir ULTRA»LASH Mascara litunum. Með
honum getið þér sveigt og aðskilið augnhárin
þannig að þau virka þéttari og lengri.
Það bezta i augnsnyrtingu
á sanngjörnu verði.
Heildverzlun Péturs Péturssonar Suðurgötu 14 - Sími 21020
Ræður ekki við skapið
Svar til „Einnar í vanda“:
Mjög- fáar manneskjur hafa
svo mikla stjórn á skapi sínu, að
þær reiðist aldrei. Og enginn
getur alltaf verið í jafn góðu
skapi. Það er því ekkert óeðli-
legt, þótt unnusti þinn sé stund-
um í slæmu skapi. Hann getur
haft fyllstu ástæðu til þess. Hins
vegar veltur á, hvort skap hans
hitnar á þér alsaklausri eða ekki.
Ef þér geðjast alls ekki að því,
hvernig hann er skapi farinn, þá
er ráðlegt fyrir þig að hugsa þig
vel um, áður en þú tengist hon-
um traustari böndum. Hins veg-
ar skaltu ekki kippa þér upp við
það, þótt hann sé stundum I
góðu skapi og stundum í slæmu.
Þannig eru allir — að örfáum
mönnum undanteknum.
Ævintýri
Ágæti Póstur!
Þar sem ég hef ekki séð dóma
eða myndir frá hljómleikum
sem voru haldnir í Háskólabíói
30. sept. sl., þá langar mig að
biðja um mynd, heimilisfang og
einhverjar upplýsingar um gít-
arleikarann í Ævintýri. Eg var
svo yfir mig hrifin af því sem
hann spilaði til minningar um
Jimi Hendix, að ég á ekki orð
til að lýsa því. Eg er nefnilega
nýkomin frá Bandaríkjunum og
veit ekkert um þessar „pop-
groups“ hérna á Fróni, en mér
kom ekki til hugar að við ætt-
um gítarleikara sem gæti gert
„such a beautiful thing“.
Bless, Z.
Hann heitir Arnar Sigurbjörns-
son, er 21 árs og lærir símvirkj-
un. Hann byrjaði að spila með
skólahljómsveit í Verknáminu,
sem hét STRENGIR, þaðan fór
hann í „Toxic", þá „Flowers“ og
að lokum í „Ævintýri". Hann
hefur samið eitt lag (í félagi við
Karl Sighvatsson) sem var á
EP-pIötu Flowers, og einnig hef-
ur hann samið fyrir Ævintýri.
Hann á heima á Skeiðarvogi
132.
Annars voru lausleg skrif um
þessa hljómleika í blaðinu sem
kom út 29. október, í þættinum
„Heyra má . . .“
Sjónvarpið o? við, sem
sitjum alltaf heima
Kæri Póstur!
Eg hef tekið eftir, að lesend-
■
ur þínir skrifa þér um sjónvarp-
ið, hvernig þeim líki þetta og
hitt í því, enda er það ekki nema
von. Sjónvarpið er orðið svo
fyrirferðarmikið í lífi okkar, að
menn hljóta að minnast eitthvað
á það, þegar þeir setjast niður
og skrifa þér bréf. Og það ætla
ég einmitt að gera núna, fyrvt
ég hef komið því í verk að hripa
þér nokkur orð.
Þeir sem horfa á sjónvarpið
að staðaldri, taka strax eftir
því, að dagskráin er langbezt á
mánudögum og þriðjudögum.
Þegar til lengdar lætur, sér
maður, að þetta getur ekki ver-
ið nein tilviljun. Beztu þættirn-
ir, eins og Forsyte-sagan og nú
Churchill-ættin eru sýndir á
mánudögum, og hið æsispenn-
andi danska sakamálaleikrit,
„Finnast yður góðar ostrur“ er á
þriðjudögum. Hins vegar kemur
oft fyrir, að dagskráin er lap-
þunn og nauðaómerkileg á laug-
ardögum og sunnudögum. Það
er því bersýnilegt, að þeir sjón-
varpsmenn hafa viljandi dag-
skrána lakari en hún gæti verið
um helgar og hafa þá líklega í
huga, að margir bregði sér eitt-
hvað út að skemmta sér um
helgar. Þetta er að vísu ekki
óskynsamlega ályktað, en mjög
vafasamt, hvort réttlátt sé að
gera þeim sem hafa efni á og
tíma til að fara út að skemmta
sér hærra undir höfði en hin-
um, sem verða að láta sér nægja
að dúsa alltaf heima. Og hvor
hópurinn skyldi vera stærri?
Þeir sem fara mikið út að
skemmta sér hafa miklu minni
þörf fyrir dægrastyttingu, og
þess vegna vil ég eindregið
hvetja sjónvarpið til að vanda
betur dagskrána á laugardögum
og sunnudögum en hingað til
hefur verið gert. Við, sem alltaf
sitjum heima um helgar jafnt
sem aðra daga, eigum líka kröfu
á að um okkur sé hugsað. Eg hef
oft orðið bálreið, þegar ég hef
hangið yfir leiðinlegu sjónvarpi
bæði á laugardögum og sunnu-
dögum og hugsað með öfund til
þeirra, sem fara þá út að
skemmta sér, án þess að missa
af neinu skemmtilegu í sjón-
varpinu.
Eg vil að lokum biðja þig,
Póstur sæll, að koma því á fram-
færi við sjónvarpsmenn, að þeir
hugsi fyrst og fremst um okkur,
sem sitjum alltaf heima — í
stað þess að stjana við þá, sem
hafa nóga peninga og nógan
tíma til að skemmta sér sjálfir.
Er það ekki í anda hins svokall-
aða lýðræðis og kærleikans
fræga, sem prestarnir eru alltaf
að tala um, að hjálpa þeim, sem
hjálpar eru þurfi?
Með beztu kveðju og von um
birtingu fljótt. Heimasæta.
4 VIKAN-JÓLABLAÐ