Vikan - 03.12.1970, Síða 5
Það er laukrétt, að sjónvarpið
er oftast betra á mánndögnm og
þriðjudögum en um helgar. Póst-
inum finnst þessi bréfritari hafa
mikið til sins máls og kemur
því umkvörtun hans á framfæri
með mestu ánægju.
Grýlan í Dimmalimm
Kæri Póstur!
Eg get ekki orða bundizt í
sambandi við barnaleikritið um
hana Dimmalimm kóngsdóttur.
Ég vil byrja á því að taka skýrt
fram, að ævintýrið um Dimma-
limm, eins og Muggur skrifaði
það, er eitthvert fallegasta og
hugljúfasta ævintýri, sem ég
hef lesið. En mikil urðu von-
brigði mín, þegar ég sá leikrit-
ið, sem gert er eftir sögunni,
fyrst í Þjóðleikhúsinu og síðan
í sjónvarpinu. Ég vil alls ekki
lasta leikritið í heild; margt er
gott um það. En það hefur einn
stóran ókost, sem barnaleikrit
mega alls ekki hafa: börnin
verða hrædd meðan þau horfa
á það. — Mér er alveg óskiljan-
legt, hvers vegna höfundur tel-
ur ástæðu til að gera svona mik-
ið úr hinu illa í þessu fallega
ævintýri. Grýlan er alltof hrika-
leg. Ég veit um lítil böm, sem
hafa orðið svo hrædd við hana,
að þau hafa ekki beðið þess bæt-
ur lengi á eftir. — Þegar ég fór
með börnin mín í leikhúsið til
þess að sjá Dimmalimm, var ég
búin að lesa fyrir þau söguna
áður og hafði haft mörg orð um
það, hvað þetta væri fallegt æv-
intýri og þar fram eftir götun-
um. En hvað gerist svo? Þegar
allt kemur til alls er grýlan alls-
ráðandi á sviðinu og leyfi ég
mér að vitna í orð litlu dóttur
minnar:
—- Þú sagðir, að þetta væri
fallegt leikrit, en svo er það
bara tóm grýla!
Það má ekki gera okkur full-
orðna fólkið að ómerkingum.
Slíkt eiga börn erfitt með að
fyrirgefa. Að lokum vil ég enn
spyrja og það í fullri hrein-
skilni: Var ástæða til að fara
svona með Söguna um hana
Dimmalimm kóngsdóttur?
S. B., Hafnarfirði.
Ef við munum rétt var nokkuð
kvartað yfir grimmd grýlunnar,
á meðan Dimmalimm var sýnd
í Þjóðleikhúsinu. Endurnýjuð
kynni við þetta verk í sjónvarp-
inu hafa endurvakið þessar um-
ræður.
Mega þingmenn skipta
um flokk?
Ágæti Póstur!
Mig langar til að beina til þín
fyrirspurn: Hafa þeir alþingis-
menn sem við kjósum á þing
sem fulltrúa einhvers ákveðins
flokks rétt til að lýsa því yfir
einn góðan veðurdag að þeir séu
bara hættir og farnir að vinna
fyrir annaðhvort sjálfan sig eða
engan flokk án þess að segja af
sér þingmennsku?
Nú er það vitað mál, að fólk
hér kýs ekki um menn, heldur
lista, enda gerir kosningaskipu-
lagið ráð fyrir því. Þess vegna
finnst mér einhvern veginn að
þessir alþingismenn, sem þetta
dæmi á við, hafi forsmáð það
traust sem kjósendur hafa sýnt
þeim með því að yfirgefa þann
flokk sem þeir voru kjörnir til
að starfa á Alþingi fyrir. ,
Og þar sem það er mjög ólík-
legt að hérlendur þingmaður fá-
ist til að segja af sér ótilneydd-
ur, þá hefðu þessir háu herrar
allavega getað hangið við flokk-
inn að forminu til fram á vor;
annaðhvort að gera hvoru-
tveggja eða hvorugt. Nú má líka
vel vera að þeir Hannibal, Björn
og Karl hafi gert allra manna
mest fyrir íslenzka alþýðu — en
fjandinn hafi það, ég held að
það séu einhver takmörk fyrir
því sem alþýðan vill láta gera
„fyrir“ sig.
ó.v.
Það mun ekkert vera í lögum,
sem neyffir þingmenn til að
hverfa af þingi, þótt þeir skipti
um flokk. Það var sagt frá því
í fréttum nýlega, að svipað kom
fyrir í Þýzkalandi, þegar þrír
þingmenn sögðu sig úr flokki
sínum og veiktu þar með stöðu
stjórnarinnar til mikilla muna.
— f umræddu dæmi er aðeins
um stuttan tíma að ræða, því að
eftir fáeina mánuði gefst kjós-
endum viðkomandi þingmanns
tækifæri til að láta í ljós skoð-
un sína á framkomu hans.
Ævintýri enn ...
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áð-
ur, en vona nú að ég fái svar
við spurningum mínum. Það sem
mig langar til að spyrja þig um
er hvað hann Biggi í Ævintýri
heitir fullu nafni, hvað hann er
gamall, hvert heimilisfang hans
er og hvart hann sé trúlofaður.
Með fyrirfram þakklæti.
Ein ástfangin á Skaganum.
P.S. Er það satt sem ég heyri,
að þeir í Ævintýri svari öllum
bréfum sem þeir fá?
Sama.
„Biggi“ heitir fullu nafni Birg-
ir Hrafnsson og er fæddur 9.
júlí 1951. Hann á heima á Reyni-
mel 72 og vinnur í tízkuverzlun-
inni Adam. Hann er trúlofaður
og eignaðist son 2. nóvember
P.S. Reyndu að skrifa og sjáðu
hvað skeður!
SEM ERU SífiiLDAR
PFAFF
Skólavörðustíg 1-3, sími 13725.
"AD DELEYMDDM
PFflFF SAUMAVÉLUNUM,
Dfi
UT
frystikistur í
úrvali - sérstaklega
hagkvæm kjör
Gulir - rauðir
grænir — bláir
hvítir - Ijósbrúnir
GOTTIIERO
Ódýrustu
sjáífvírku
þvottavéíarnar
cHaa
SKÖLAVÖRÐUSTlG la.
SlMAR; 13725 OG 15054
kæliskápar
Dfi
DELKAMA