Vikan


Vikan - 03.12.1970, Side 14

Vikan - 03.12.1970, Side 14
Marie að taka hana til sín. Henni þótti ekki vænt um dóttur sína og var hreinlega vond við hana. Telpan lifði í stöðugri angist. Hún hefur mjög fljótt sýnt mikla tónlistarhæfi- leika og er smásaga frá æsku hennar til merkis um það. Þegar Jenny var fjögurra ára, heyrði hún á hverjum morgni lúðurþyt lífvarðanna. Einn morgun heyrði móður- amma hennar, sem var henni mjög góð, ein- hvern spila lagið þeirra á slaghörpuna. Þeg- ar hún kom inn, sá hún ekki nokkurn mann og skildi ekki, hver hafði verið að spila. En þá heyrði hún skrjáf undir hljóðfærinu. Það var Jenny, sem hafði skriðið þangað af hræðslu. Gömlu konunni fannst þetta furðu- legt, en telpan sagði einfaldlega: — Ég finn tónana í fingurgómunum. Það var ekki fyrr en Jenny var 15 ára, að foreldrar hennar giftu sig; móður hennar hafði fundizt það syndsamlegt að gifta sig aftur, meðan fyrri maðurinn var á lífi. Jenny dvaldi mest á „ekkjuheimilinu", þar sem amma hennar var vistuð. Húsvörðurinn þar og konan hans voru góð við telpuna og hjá þeim var hún langdvölum. Þar sat hún oft í glugga móti Jakobskirkjunni og söng. Rödd hennar var þá strax búin að fá þenn- an hreina klukkuhljóm, sem alltaf einkenndi hana. Fólkið í nágrenninu stanzaði fyrir neð- an gluggann, til að hlusta á telpuna syngja. Ein þeirra sem heyrði til hennar, var þjón- ustustúlka einnar dansmeyjarinnar við óper- una og hún sagði húsmóður sinni að hún yrði að hlusta á þessa telpu. Mademoiselle Lundberg gerði það og fór svo til móður Jennyar, og hvatti hana til að setja Jenny í óperuskólann. Anne-Marie tók þessu dræmt; hún sagði, að það væri hneykslan- legt að vera í sambandi við leikara og leik- hús, og hún var búin að fá nóg af því eina hneyksli að fæða óskilgetið barn. En að lokum var þó farið með telpuna til óperu- skólans, þar sem söngkennarinn, herra Croe- lius, hlustaði á hana. Jenny söng aríu úr gleymdri óperu eftir Winter. Enginn vissi, hvar hún hafði náð í hana. En þegar hún hafði lokið söng sínum, gerðist nokkuð furðu- legt: herra Croelius hágrét. Þetta varð tákn- rænt fyrir Jenny um alla framtíð: Áheyr- endur hennar gátu aldrei tára bundizt. I áratugi grétu menn þegar Jenny Lind söng. Almenningur grét, kóngar og drottn- ingar grétu og réttu hinni guðdómlegu Jenny skartgripi og dýrar gjafir. Þegar Jenny var niu ára, varð hún nem- andi í „leikaraskólanum", enda þótt móðir hennar hefði á því mestu andstyggð. Og 7. marz árið 1883, var hún tilbúin undir frum- 14 VIKAN-JÓLABLAÐ raun sína, sem var hlutverk Agöthu í „Skyttunum“ eftir Weber. Söngkennari hennar, madame Eriksson, sagði við hana: — Barnið mitt, ég get ekki kennt þér meira. Héðan af verðurðu að fara eftir þínu eigin eðli. Sigur Jennyar var alger. Áheyrendur risu úr sætum sínum og hrópuðu og klöppuðu, og fjöldinn ruddist bak við sviðið, til að óska henni til hamingju, en hún fannst ekki. — Hún er í herberginu sínu, sagði ma- dame Eriksson. Ég leit þangað inn fyrir nokkru og þá lá hún á hnjánum. ÍÉg held hún hafi verið að biðja. — Biðja! öskraði óperustjórinn, — og all- ir Stokkhólmsbúar bíða eftir að óska henni til hamingju! Eftir þetta hélt Jenny Lind upp á 7. marz sem annan afmælisdag sinn. „Ég var önn- ur manneskja, þegar ég háttaði um kvöld- ið, ég hafði fundið vald mitt.“ Þessi unglingur var nú „primadonna as- soluta“ Stokkhólmsborgar, án þess að þess gætti nokkuð í fari hennar og útliti. Sví- arnir höfðu því ennþá meira dálæti á henni. Og svo hittust þau. H. C. Andersen, sem „ferðaðist til að lifa“, hafði heyrt henn- ar getið í Stokkhólmi og mikið af henni látið. Nú sá hann af tilviljun nafn hennar í gestabók á hóteli. Hún var á skemmtiferð til Kaupmannahafnar til að skoða borgina. Hann var ekki lengi að hugsa sig um, hann ákvað að heilsa upp á þessa stúlku, sem söng eins og næturgali. Það er aðeins háttvísi, hugsaði hann. Hún tók á móti honum, kurteislega en nokkuð kuldalega. Líklega hefur það verið fas hans, sem kom henni á óvart. Hann hafði reynt sig við leiklist á yngri árum og lært ýmsa takta og dans og hann bar þess merki alla ævi, enda hafði hann dálæti á skringi- legum hreyfingum og klæðaburði. Hinn viðkvæmi Andersen var mjög von- svikinn, þegar hann hvarf af fundi hennar, særður að hjartarótum. Hann reyndi að telja sjálfum sér trú um, að hún væri ósköp venjuleg stúlka. ... rjú ár liðu. Þá sá hann aftur nafn hennar í gestabók hótels. Á þeim tíma hafði Jenny Lind oft heyrt hans getið og nú var hún komin til Kaupmannahafnar til að syngja. Hún var eins hengd upp á þráð. Hún hafði verið hafin til skýjanna, nú mátti hún ekki bregðast. Andersen var sokkinn niður í hugsanir sínar, þegar hann gekk út úr hótelinu, en þá rakst hann af tilviljun á góðan vin sinn, August Bournonville, ballettmeistara. — Ertu nú að hugsa um eitthvert ævin- týrið, Andersen? sagði Bournonville. Já, það fegursta sem til er. .. . Jenny Lind. Og alveg eins og í ævintýri, var Bournon- ville einmitt á leið til að hitta „næturgal- ann“. Nú var Jenny Lind ekkert annað en elsku- legheitin, lék á als oddi. Hún sagðist hafa lesið mörg af ævintýrum hans og henni fannst þau dásamleg. Þau töluðu mikið um Frederiku Bremer, sem var sameiginleg vin- kona þeirra. Frá þeirri stundu var Andersen glataður maður. Tilbeiðsla hans á henni, bæði sem konu og listamanni, var takmarkalaus. Hann var alveg utan við sig, þegar hann sagði: — Hún opinberaði fyrir mér helgidóm listarinnar. Hann var í algeru uppnámi; hann tilbað hana. Hann gerðist nú stöðugur fylgdarsveinn hennar og jós yfir hana blómum. Hann stóð við hlið hennar, þegar danskir stúdentar sungu serenöður undir glugganum hennar og hann gaut afbrýðisömum augum til allra þeirra manna, sem flögruðu kringum nætur- galann, — og þeir voru margir! Dálætið á Jenny Lind var líkast farsótt, sem brauzt út aftur og aftur Jenny leiddist á hótelinu, svo að hún flutti heim til Bournonville-fjölskyld- unnar. Frú Bournonville var sænsk að uppruna, Helena Hakansson frá Landskrona. Á hverjum morgni skaut Andersen upp kollinum á hinu gestrisna heimili. Börnin voru mörg og þau voru fyrstu börnin, sem fengu að heyra ævintýri hans, en hann sagði þau eingöngu vegna Jennyar. Ef hún var ekki komin inn í herbergið, þegar hann settist niður til að segja ævin- týri, þá starði hann á dyrnar. Þegar hún kom inn, létti honum sýnilega, hann var hamingjusamur yfir nærveru hennar og ást- in skein úr augum hans. Á hverjum morgni spurði hann börnin: Hefur Jenny ekki talað um mig? Segir hún aldrei, að hún sé hrifin af mér? Og ein af hinum ungu dætrum Bournon- villes svaraði með sinni barnslegu grimmd og hugsunarleysi: — Nei, það er hún sannarlega ekki. En hún nefndi hann oft á nafn, en aðeins sem góðan vin. Einn daginn kallaði hún hann „kæra bróður". Hún vissi ekki, hve djúpt hún særði hann. Jenny sem einlæg systir. Hví- lík auðmýking! Hann hugsaði sér hana sannarlega ekki sem systur; hann þráði hana sem elskandi eiginkonu, einlæga ást- mær. Hann bað hennar í hvert sinn er hann fékk tækifæri til þess. Hann virti hana fyr- ir sér með athygli, til að vita hvort hann gæti ekki séð einhvern lítinn vott ástar, — eitthvert andsvar, en árangurslaust. Það leit jafnvel út fyrir, að vinir þeirra beggja gætu ekki tekið þessari tilbeiðslu hans með al- vöru. Hún átti eftir að særa hann oft, þessa hlýju sumardaga, þegar ást hans brann heit- ast. Bæði viljandi og óviljandi. . . . Dag nokkurn gaf hún honum spegil í skrautlegum ramma. Hann átti sem sé að skoða sjálfan sig í spegli til að sjá, að hann væri svo Ijótur, að hann gæti ekki gert sér nokkrar vonir; hann var ljótari en
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.