Vikan - 03.12.1970, Síða 37
iKYLDUNA
AÐ TÍNA EPLI
Hér er ofurlítil reiknisþraut fyrir fullorðna
fólkið. Sextán epli liggja í hring. Það á að
velja sér eitt epli til að byrja með og skipta
síðan á því og þriðja hverju epli. Við förum
sólarganginn. Nú er spurningin: Hvaða epli
á að taka íyrst til þess að epli númer 1 komi
þar sem epli númer 16 er? Það þarf heldur
betur að brjóta heilann við þessa þraut!
ÞRJÚ GLÖS MEÐ JÖLAÖLI
Hér hefur verið stillt upp sex glösum. Þrjú
þeirra eru tóm, en þrjú eru fyllt með indælu
jólaöli. Áður en þú drekkur jólaölið, verður
þú að leysa eftirfarandi þraut: Með því að
hreyfa aðeins eitt glasið áttu að koma þessu
þannig fyTÍr, að þrjú glösin með jólaölinu
standi í röð öðrum megin, en tómu glösin í
röð hinum megin.
FIMM SINNUM FIMM
AÐ GIZKA Á ÞYNGD
Á þessari mynd sjáum við fimm ólíka hluti:
bók, öskubakka úr þykku gleri. kvenskó,
banana og bolla úr postulini. Þið skuluð raða
þessum hlutum upp á borð eins og hér er
gert. Og þrautin er að gizka á, hvað þessir
hlutir eru þungir, þ.e.a.s. ekki upp á kíló-
gramm, heldur hver sé þyngstur og hver
næstþyngstur og svo framvegis. Það má alls
ekki snerta á hlutunum.
PYRAMÍDI ÚR KAFFIBOLLUM
Nú skuluð þið fara fram í edhús og taka
út úr bollaskápnum tíu bolla, og raða þeim
upp á borð, eins og gert er hér á mynd-
inni. Þeir mynda hið sígilda pyramídaform,
en nú er vandinn að snúa forminu alveg við,
þannig að toppurinn snúi frá fjölskyldunni
á myndinni, en botninn að henni. Það má að-
eins hreyfa þrjá bolla til þess að gera þetta.
VIKAN-JÓLABLAÐ 37
Hér hefur verið teiknaður á pappírsblað
ferhyrningur með 25 rúðum, fimm á hæðina
og fimm á breiddina. Ennfremur höfum við
náð okkur í tíu sykurmola og staðsett þrjá
þeirra eins og myndin sýnir. En það á eftir
að staðsetja sjö sykurmola, og nú er vand-
inn að gera það á þann hátt, að tveir molar
verði í hverri röð, bæði lárétt og lóðrétt. Það
má ekki hreyfa molana þrjá, sem þegar hafa
verið staðsettir.
HNETUÞRAUT
Hér hefur verið raðað upp 36 hnetum í
ferhyrning, sex hnetur á hæð og sex á breidd.
Vandinn er að taka burt sex hnetur á þann
hátt, að útkoman út úr öllum röðum, bæði
lárétt og lóðrétt og meira að segja horn í
horn líka sé jöfn tala, 2, 4 eða 6. Nú ríður á
að brjóta heilann, áður en hægt er að brjóta
hneturnar og éta þær, og spurningin er:
Hvaða sex hnetur á að taka burt?