Vikan


Vikan - 03.12.1970, Side 58

Vikan - 03.12.1970, Side 58
ÞARTIL, AUGU ÞES OPNAST.... FRAMHALDSSAGA EFTIR MIKE ST. CLAIR Cathy heyrði hvað hann sagði, en fannst það svo fjarstætt, að hún gerði sér alls ekki grein fyrir, hvað orð hans þýddu í raun og veru. Henni var svipað innanbrjósts og þegaf maður sér myndir af föngum í einangrunarbúðum nazista frá stríðsárunum. Maður sér vissulega af hverju slíkar myndir eru, en hryll- ingurinn er of mikill til þess að mað- ur geti gert sér hann ! hugarlund. Einmitt þannig leið Cathy nú. — Eg get ekki gert það sjálfur, útskýrði Ken hinn rólegasti. — Þá verður ekki um neitt réttlæti að ræða. Þú skilur það vonandi? Hann beið eftir svari, en þegar það kom ekki, hélt hann áfram: — Þú verður að gera þetta. Þú hlýtur að gera þér það Ijóst. Cathy þorði ekki að andmæla honum, taldi réttast að hafa hann góðan, ef hægt væri. Hún reyndi að sýna engin merki um ótta. Fætur hennar voru þungir sem blý og hjart- að barðist ákaft ! brjósti hennar. Ef hann grunaði bara, hve hrædd hún var . . Nei, hún varð að halda þv! leyndu. Hann var geðveikur og gat fundið upp á hverju sem var. — En . . . en hvað mundi Jack segja? Það var fáránlegt að varpa fram þessari spurningu, en hún gerði það samt til þess að draga samtalið á langinn og reita ekki Ken til reiði. — Jack þarf ekki að vita neitt um þetta, sagði Ken. — Þú getur kæft barnið með kodda. Segðu, að kött- urinn hafi gert það! Prissy er hvort sem er hjá þér enn. Segðu, að kött- urinn hafi lagzt ofan á barnið og kæft það, á meðan það svaf. Slíkt hefur komið fyrir. Ég hef lesið um það ! blöðunum. — Nei, sagði Cathy ósjálfrátt. Hann leit tortrygginn á hana. Hon- um fannst þessi hugmynd sín bréð- snjöll. Hún var svo einföld og svo rökrétt og gat ekki misheppnast. Hvers vegna gat Cathy ekki skilið það? — Barnið finnur ekki hið minnsta til, sagði Ken. — Það sefur bara og vaknar ekki framar. Það er allt og sumt. Ken leit vonaraugum á Cathy. En hún gat ekki komið upp einu einasta orði. — Skilurðu þetta ekki, sagði hann óþolinmóður, en samt var minni hót- un í rödd hans en oft áður. — Þú verður að gera þetta, Cathy. Lofaðu mér því! Þá erum við loksins skilin að skiptum að fullu og öllu. Þá skal ég láta ykkur ! friði, en ekki fyrr. Þú skilur þetta, Cathy, er það ekki? Hann var viti sínu fjær, og Cathy reyndi að hegða sér með þá stað- reynd ! huga. — Ég skal fara heim og hugsa um þetta, sagði hún. — Þú heyrir frá mér seinna. En þú gerir ekkert ! málinu, fyrr en ég hef látið þig vita. Hún gekk hröðum skrefum út úr myrkrakompunni. Henni fannst ó- þægilegt að þurfa að snúa baki við í dagstofunni snarstönzuSu þau og urðu sem lömuS af ótta og skelfingu. Stórum Ijósmyndum af barninu þeirra hafði verið stillt upp út um allt herbergið... ÁTTUNDI HLUTI honum. Honum var trúandi til að kasta sér yfir hana eða vinna henni mein á einhvern hátt. En hann reyndi ekkert ! þá átt- ina. Þegar hún var komin út úr hús- inu og hafði náð sér ( leigubd, sá hún hins vegar, hvar hann kom æð- andi út og kallaði á eftir henni: — Þú verður að gera þetta, Cathy. Þú vilt það kannski ekki fyrst. En ef þú hugsar málið vel, þá hlýturðu að sjá, að þetta er ekki nema réttlátt. Þú verður að gera þetta! Hann stéð kyrr og starði á eftir leigubílnum. Síðan hljóp hann að sínum eigin b(l. Hann varð að flýta sér, áður en Cathy kæmi heim. Þegar Cathy kom að stöðinni, hringdi hún ! Jack. En hann var þá nýfarinn niður í sjónvarpið til að flytja ræðuna sína. Cathy leit á klukkuna. Hún hafði tíu mínútur til stefnu, áður en lestin lagði af stað til San AAateo. Þegar þangað kom ætlaði hún að aka rakleitt til sjón- varpsstöðvarinnar, ná tali af Jack og segja honum allt um Ken og fyrirætl- un hans. Hún hringdi heim. — Ilsa? Hvar er barnið? — Nú, ég held á því ! fanginu, sagði llsa móðguð. — Er ég kannski ekki vön að gæta þess sómasam- lega? — Hlustaðu nú á mig, llsa! Lok- aðu báðum dyrunum! Settu öryggis-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.