Vikan - 03.12.1970, Page 64
Kardemommubærinn
heitir jólaplata okkar í ár. Hér er hið vinsæla barnaleikrit
eftir Thorbjörn Egner loksins komið á hljómplötu, sem vafa-
laust mun njóta jafn mikilla vinsælda og leikritið sjálft
þegar það var sýnt í Þjóðleikhúsinu fyrir tæpum áratug.
Fyrri jólaplötur SG-hljómplatna nj'óta enn sömu vinsælda.
Ber þar fyrst að telja hina frábæru plötu ÓMARS RAGN-
ARSSONAR þar sem hann bregður sér í hlutverk GÁTTA-
ÞEFS. Þá er það platan JÓLIN HENNAR ÖMMU, sem er
sérstaklega falleg jólaplata. Þá er það önnur plata með
ÓMARI RAGNARSSYNI, sem heitir KRAKKAR MÍNIR
KOMIÐ ÞIÐ SÆL og síðan hið vinsæla leikrit Thorbjörns
Egner. DÝRIN í HÁLSASKÓGI, sem gefur Kardemommu-
bænum ekkert eftir.
SG - hlfómplötur
PHILIPS
sjónvarpstœkin sýna nú
STÆRRI HLUTA
ÚTSENDRAR
MYNDAR
Hafið þér nokkurn tíma Ve!t fyrir yður, hvers vegna
myndlampar sjónvarpstækja hafa bogadregin horn. -
Philips gerði það og framleiðir nú nýja gerð af mynd-
lampa, sem sýnir stærri hluta af útsendri mynd, vegna
þess að' nú eru hornin orðin rétt. - Athugið myndina
hér að ofan, hún skýrir sig sjálf. Lítið inn og skoðið
tækin, þá sést munurinn enn betur.
NÝIR
AFBORGUNARSKiLMÁLAR:
ÚTBORGUN KR. 5.000,OO
EFTIRSTÖÐVAR á 12 MÁN
HEIMILISTÆKI SF.
HAFNARSTRÆTI 3, SIMI 20455
SÆTÚNI.8, SlMI 24000
ÞAR TIL AUGU ÞÍN
0PNAST
Framhald af bls. 59.
ars brýt ég handlegginn, hrópaði
Ken.
Cathy fannst ferðin með lestinni
næstum óendanleg, og þegar henni
var loksins lokið og Cathy komin í
sinn eigin bíl, þá braut hún næstum
allar umferðarreglur og hraðatak-
markanir, þegar hún brunaði til
sjónvarpsstöðvarinnar.
Vörðurinn vildi ekki hleypa henni
inn. En hún hélt áfram að berja
dyrnar að utan og hrópa um mikil-
vægi erindis síns, þar til hann lét
undan og opnaði. Hún kom inn í
sjónvarpssalinn, þegar Jack var rétt í
þann veginn að Ijúka við ræðuna
sína.
Tíu mínútum síðar hafði Jack
heyrt alla söguna og hringt á lög-
regluna, sem ók þeim heim með sír-
enurnar í fullum gangi. Cathy og
Jack sátu í aftursætinu.
Annar lögreglubíll stanzaði fyrir
framan húsið um leið og þau beygðu
fyrir hornið. Cathy og Jack voru
næstum komin út úr bílnum, áður en
hann var stanzaður. Þau þutu að
hliðinu og komust að raun um, að
það var ólæst. Þau þustu inn.
— Ilsa, hrópaði Cathy.
64 VIKAN-JÓLABLAÐ