Vikan


Vikan - 07.01.1971, Qupperneq 19

Vikan - 07.01.1971, Qupperneq 19
og kanarífugl ÞANGAÐ TIL FYRIR nokkr- um vikum hafði Lucile alltaf haldið að hún væri í þeim hópi manna, sem fæddir eru til að vera hamingjusamir. Samt sem áður var langt frá því að hún baðaði í rósum: hvernig sem veður var, og það skal viður- kennt að veðrið í París er oft- ar drungalegt en gott, þá var Lucile komin út klukkan sjö á morgnana, til að útbúa blóm- vendina sína, sækja borðið, sem hún kom fyrir á palli fyrir framan skúr við Platre-götuna, inn í portið, ásamt járnvösun- um undir blómin, sem keypt voru kvöldið áður á markaðn- um og hjálpfús blómasali flutti til hennar um leið og hann flutti sín eigin blóm. Herberg- ið, sem hún kom heim í eftir vinnu seint á kvöldin, var ekki stórt og hafði engin þægindi. Allan daginn lét Lucile sig dreyma um ókunna manninn. Hvers vegna hafði hann gefiS henni blóm? Hún hafði þó aldrei séð hann áður. En það gerði henni létt í skapi. Aldrei hafði Nikulási dottið í hug að gefa henni blóm ... SMÁSAGA EFTIR GABRIELLE CARRINI En þar fannst Lucile hún líka hafa verið heppin: Nicolas, unnusti hennar, hafði gert upp herbergið fyrir hana og búið úr því litla höll handa henni, meðan þau biðu eftir því að draumurinn um þessa lang- þráðu íbúð, sem hann talaði sí- fellt um, yrði að veruleika, svo þau gætu gift sig. v Meðan Lucile var að útbúa borðið sitt í rigningunni þenn- an morgun í byrjun nóvember, var hún samt sem áður svo hrygg, að hún þurfti að beita allri sinni orku til að blanda ekki tárum sínum saman við stóru regndropana, sem flýttu sér svo mikið og runnu niður eftir regnkápunni hennar, eft- ir höndunum á henni yfir stóru margariturnar hennar, rósirnar og fjólurnar. Ástæðan var sú, að Nicolas var í fyrsta skiptið í marga mánuði orðinn eitt- hvað öðruvisi í hennar garð. Lucile var ástfangin af unn- usta sínum, kannski of ástfang- in og hún dró sorgbitin þá ályktun að ástin væri orsök þess að hamingjan hefði snúið við henni bakinu. - Hvað getur verið að hon- um? spurði hún sjálfa sig. Hann var orðinn æstur í skapi; kvöldið áður hafði hann þótzt eiga eitthvert áríðandi erindi svo að hann gat ekki borðað kvöldverð hjá henni, eins og hann var vanur, þegar hann var búinn að hiálpa henni að ganga frá og setia inn borðið. Og þegar hún hafði orð á því, að þetta væri í fyrsta skiptið sem hann skildi hana eina eft- ir á sunnudegi. bá hafði hann ekki brosað heldur orðið æst- ur og fundizt hún haga sér eins og kjáni. Hvers vegna er hann svona? sagði Lucile við sjálfa sig hálf upphátt. Ég er líka þreytt, ég hef líka erfitt starf og samt læt ég hann ekki vera einan, án þess að gefa honum full- nægjandi skýringu. Hvers vegna? endurtók veik rödd innra með henni, svo það fór hrollur um hana, vegna þess að hann elskar þig minna.... •—■ Er það í dag, sem þau fást ókeypis? Leigubílstjóri nokkur, fyrsti viðskiptavinur- inn hennar þennan morgun, hafði stanzað fyrir framan borðið hennar og valdi sér blómvönd. Að minnsta kosti þrisvar í viku í meira en heilt ár hafði hann stanzað þarna á leiðinni á bílstöðina og alltaf sagt sömu setninguna. Venju- lega svaraði Lucile: —• Ekki í dag, á morgun! En þennan morgun gleymdi hún að svara. — Hvað er það sem amar að? Hefur hann nú rifizt við þig? sagði bílstjórinn, sem ekki vissi að hún var trúlofuð, um leið og hann borgaði. — Nei, svaraði Lucile og hristi höfuðið. Nú kom fólk upp úr neðanjarðarbrautinni og hún fékk nóg að gera. Það var mánudagur og margt vinn- andi fólk keypti lítinn blóm- vönd, til að lífga upp á vinnu- stofuna sína eða skrifstofuna í byrjun vikunnar. Ungur maður með stór blá augu og liðað óstýrilátt hár hafði stanzað fyrir framan borðið. — Fallegan blómvönd? spurði Lucile. Ungi maðurinn virtist hika. Hann virti fyrir sér blómvend- ina, valdi fyrst stór gul blóm og síðan rósir, en þær voru ekki mjög fallegar: rigningin hafði leikið þær illa. —- Ætlið þér að gefa þær? Já. Takið þá fjólurnar. ráð- lagði unga stúlkan. — Þær standa lengur, þær eru alveg nýjar. því þetta eru þær fyrstu á árinu. Sjö krónur stærri vendirnir. sem eru jafn stórir og þrír á tvær og sextíu. Það borgar sig. -— Það eru blómin, sem kon- ur vilja helzt, sagði Lucile sannfærandi. Un“i maðurinn leit á hana m°ð bessum stóru augum. — Eruð þér vissar um það? Alveg viss, svaraði hún hlæjandi. Hann borgaði og flýtti sér í burtu, um leið og hann bretti upp rúskinnskraganum á blúss- unni sinni, til varnar gegn regninu. — Það hefur einhver gleymt blómunum sínum, sagði blaða- sölukonan, sem verzlaði þar rétt hjá, allt í einu. — Þau eru Framhald á bls. 40 1. tbi. VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.