Vikan


Vikan - 07.01.1971, Page 42

Vikan - 07.01.1971, Page 42
að borða í kvöld? spurði hún kseruleysislega, meðan hann var að ganga frá dótinu henn- ar, eins og venjulega. — Nei, ég er búinn að segja nei.... —- Nei, það hefurðu ekki sagt. Það var í gær. Hvað er að þér, Nicolas? sþurði hún allt í einu, meðan hann fleygði járnvösunum af óþolinmæði inn í skotið. — Nú byrjar það aftur, hreytti Nicolas út úr sér. — Hvað byrjar aftur? — Þessar ímyndanir þínar, þessi tortryggni.... — Hvaða tortryggni? Lucile horfði skelfd á Nicolas. Tor- tryggni? Henni hafði aldrei dottið neitt slíkt í hug. Hvað var hann að gera á kvöldin? Hvers vegna hafði hann ekki lengur tíma til að eyða kvöldunum hjá henni, eins og hann hafði alltaf gert? Og þegar hún leit upp, sá hún fjóluvöndinn í sultukrukkunni, sem virtist segja: — Gleymdu mér ekki, Lucile! Á bak við hann sá hún stóru bláu aug- un, sem horfðu brosandi og með eftirvæntingu á hana. Hvers vegna? Þau töluðu eiginlega ekkert saman fyrr en eftir að á þessu hafði gengið í hálfan mánuð. Hann fékk Lucile blómvönd- inn sinn og sagði: — Frá móð- ur minni. Hvað henni þætti gaman að eiga þig fyrir dótt- ur! Og hann var lagður af stað í burtu, þegar Lucile kallaði allt í einu: — Áttu móður? Er hún hérna? -—- Því miður! sagði hann og sneri við. Nei, móðir hans bjó langt í burtu, uppi í sveit, í húsi umkringdu stórum trjám, sem þaut hægt og mjúklega í, eins og öldum hafsins. Tveim- ur dögum seinna vissi Lucile, að René bjó í matsöluhúsi, þar sem móðir hans hafði komið honum fyrir. Eftir það dvaldi hann löngum stundum hjá henni, og drap tímann með því að tala um háu skógana í Poi- tou, stígana með kastaníutrján- um á báðar hliðar, hljóðlátt hús á gjárbarmi. . . . Á hverju kvöldi kom Nicol- as, þögull og ólundarlegur, og hjálpaði Lucile til að ganga frá, en eins og hann væri nauð- beygður til þess. Þegar hún spurði hvort hann væri þreytt- ur, sagði hann: —- Auðvitað er ég þreyttur. Þú heldur víst að ég sé allan daginn að leika mér. Heldurðu að enginn erfiði nema þú? En þetta fékk ekkert á Lu- cile lengur. Samræðurnar við René, þegar hann var að hjálpa henni til að binda grænum borða utan um blómvendina og skipta um vatn á blómun- um og þetta undarlega lands- lag, sem hann seiddi fram, græddi sárin eftir ruddaskap Nicolas. —- Komdu þá ekkert, ef það þreytir þig, sagði hún loks við hann dag nokkurn, — ég kemst af ein. Henni hafði dottið nokk- uð í hug. Á morgun bið ég Re- né um að hjálpa mér. Nicolas yppti öxlum ólund- arlega. — Það er rétt eins og ég vilji ekki hjálpa þér, nöldr- aði hann. — Þú þarft alltaf að gera veður út af öllu. ... En kvöldið eftir kom hann ekki. Og þann sama dag kom Re- né ekki heldur. Allan daginn vonaðist hún eftir honum. — Mamma hans er kannski veik, hugsaði hún. En hún var allt- af að líta upp í von um að sjá stóru bláu augun horfa á sig, og allan daginn dreymdi hana um stóra garðinn, sem bylgj- aðist á einhvern dularfullan hátt, hvorki fyrir áhrif vinds né vatns.... Um kvöldið gramdist henni að Nicolas skyldi ekki koma, en hún hafði engar áhyggjur af því. Öll hennar umhyggja beindist að René. Dagarnir liðu. Lucile sá Ni- colas aðeins bregða fyrir, allt- af jafn önugum og þungum á brúnina. En dag nokkurn sagði blaða- sölukonan allt í einu við ungu stúlkuna: — Æ-já, það var eitt, sem ég ætlaði alltaf að segja þér. Manstu eftir unga litla piltinum, sem kom svo oft . . . já, þessum með fjóluvöndinn. . . . Það var eins og hjartað í Lucile hætti að slá. — Það er búið að loka hann inni. Í5g frétti það af hreinni tilviljun, því herbergið hans var laust og einn viðskiptavinur minn hafði áhuga á því. — Hvernig veiztu að það var hann? — Það er enginn vafi á því, svaraði blaðasölukonan ákveð- in. — Samkvæmt frásögn hús- eigandans er það áreiðanlega hann. Hann eyddi öllum sínum peningum í blóm, sem hann gaf hverjum sem var. Einn daginn keypti hann blóm fyr- Alltaf'er hringt þegar maöur er að.-:set jast niður• 0lt)6 &ONq -------A----- 42 VIEAN 1 tbi.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.