Vikan - 07.01.1971, Blaðsíða 45
seruðu íbúar höfuðborgarinn-
ar. Kviksögur komust á kreik
og jukust og margfölduðust
eins og kanínur eða kaþólikk-
ar. A Akureyri varð á einum
eða tveimur stundarfjórðung-
um almælt, að Rússar hefðu
hertekið Reykjavík og skotið
Keflavíkurflugvöll í mél og
mask. Á Dalvík sóru menn og
sárt við lögðu, að þeir sæju
með eigin augum rússneskt
orrustuskip fyrir utan Hrísey
á leið inn til Akureyrar. í Nes-
kaupstað þóttust menn hafa
sannfrétt, að atómsprengju
hefði þegar verið varpað á
Reykjavík eða þó líklega frek-
ar Hvalfjörð. Fiskiskip, sem
voru á miðum, stefndu í ofboði
til lands. Víðast hvár á landinu
var gengið út frá því sem vísu,
að heimsstyrjöld væri skollin
á, og þótti engum mikið. Veð-
urglöggir menn þóttust greina
eldsbjarma frá vetnisspreng-
ingum úti í nóttinni. Á Horna-
firði þóttust menn sjá fallhlífa-
lið svífa niður á Vatnajökul.
Síðar um kvöldið rauf sjón-
varpið sendinguna á Churchill-
sögunni og nær samtímis birt-
ist andlit á skerminum. Það
tilheyrði ungum manni með
hár svo glóbjart, að því var
likast að geislabaugur lægi um
höfuð honum. Svipurinn var
ábúðarmikill og augun sokkin
í miklar húðfellingar, líkt og
á fíl. Fjölmargir sjónvarpsnot-
endur báru þegar kennsl á
hann, þar eð hann hafði nokkr-
um sinnum komið fram á
skerminum áður og leitt framá-
menn til aftöku í spurninga-
þáttum. Um hann vissu menn
það helzt, að hann hafði fyrir
fáeinum árum dvalizt erlendis
við nám, einkum á Bretlands-
eyjum, týnzt um nokkurra
mánaða skeið í verksmiðju-
reyknum í Lancashire og sagð-
ist vera viðskiptafræðingur, er
hann kom út úr honum aftur.
Þá hafði hann lagt leið til fóst-
urlandsins og látið mjög að sér
kveða í æskulýðssamtökum
Miðflokksins. Þeir, sem bezt
voru inni í pólitíkinni, minnt-
ust nú þess að hafa heyrt hans
getið í sambandi við tilburði
til valdabrölts, sem nokkuð
hafði kveðið að meðal ungra
manna í flokknum undanfar-
ið, af því að þeir höfðu heyrt,
að það væri fínt úti í heimi.
„Góðir íslendingar, hóf mað-
urinn á skerminum máls. Það
er Grímur Ólafsson, viðskipta-
fræðingur, sem talar. Es vil
hérmeð endurtaka þá áskorun.
sem flutt var fyrr í kvöld, til
landsmanna að sýna stillingu
og forðast hvers konar fljót-
ræðisaðgerðir. Sökum þess
neyðarástands, sem þjóðin hef-
ur ratað í vegna spilltra stjórn-
arhátta, hafa frjáls og ópóli-
tísk samtök borgara neyðzt til
að taka völdin í sínar hendur
til bráðabirgða. Hefur nú, að
tilhlutan byltingarmanna, ver-
ið mynduð ný ríkisstjórn, sem
fara mun með völd, unz unnt
verður að efna til nýrra þing-
kosninga. Hef ég, samkvæmt
sérstakri beiðni byltingarráðs-
ins og formanns þess, sem geng-
ur undir nafninu Brennisóleyj-
an, tekið að mér forsæti stjórn-
arinnar.
Eftirfarandi ráðstafanir hafa
verið gerðar eða koma til
framkvæmda án tafar:
Allir núverandi stjórnmála-
flokkar verða lagðir niður.
Fjármagn það, sem þeir eiga í
sjóði, mun ganga til reksturs
byltingarinnar.
Þar eð málgögn dagblaðanna
eru fyrst og fremst mál-
gögn stjórnmálaflokkanna,
missa þau gildi sitt með niður-
lagningu þeirra. Þau verða því
einnig lögð niður. Byltingar-
ráðið og hin nýja ríkisstjórn
líta svo á, að sjónvarp og út-
varp nægi landsmönnum til
flutnings frétta og skemmti-
og fræðsluefnis. Tilkynningar
hinnar nýju stjórnar verða
gefnar út á sérstökum fjölrit-
uðum eyðublöðum, ef þurfa
þykir.
Allar ferðir Islendinga er-
lendis verða bannaðar að svo
komu máli. Einnig verður tek-
ið upp nánara eftirlit með kom-
um útlendinga til landsins.
Hin nýja stjórn vill sérstak-
lega taka fram, að stefna ís-
lands í utanríkismálum verður
óbreytt. Við munum, héreftir
sem hingað til, kappkosta að
hafa vinsamleg samskipti við
allar þjóðir, einkanlega þó
þær, sem eru okkur skyldast-
ar landfræðilega, stjórnarfars-
lega og menningarlega. Bylt-
ingarstjórnin lýsir yfir fullum
stuðningi við Sameinuðu þjóð-
irnar og telur aðild íslands að
varnarsamtökum vestrænna
þjóða eðlilega, að siálfsögðu
þó með því móti, að fullt til-
lit sé tekið til sérstöðu íslands
og sérhagsmuna.
Ég vil ennfremur ekki láta
hjá líða að tilkynna, að ríkis-
stiórn fslands, handhafar for-
setavalds, borgarstjóri Reykja-
víkur og lögreglustjóri auk
nokkurra annarra eru nú fana-
ar bvltinearlögreglunnar. Eg
vil sérstaklega leyfa mér að
fullvissa aðstandendur fang-
anna um, að þeir hafa ekkert
að óttast og munu sæta góðri
meðferð.
Byltingarstjórnin væntir þess
eindregið, að landsmenn, háir
sem lágir, taki aðgerðum henn-
ar með skilningi og gangi fús-
lega til samstarfs við hana um
framkvæmd hugsjóna bylting-
arinnar: að endurreisa íslend-
inga og stolt þeirra sem þjóð-
ar. Við hvetjum alla lands-
menn, hvar í stétt sem þeir
standa, til að halda áfram
störfum sínum eins og ekkert
hafi ískorizt. Það skal líka gert
ljóst, að eins og nú er komið
málum, þegar líf og framtíð
þjóðarinnar er í veði, getur
byltingarstjórnin ekki sætt sig
við nokkurs konar andspyrnu,
hversu smávægileg sem hún
kann að virðast. Hvers konar
andspyrnutilraunir verða bæld-
ar niður með festu og ein-
beitni, en ekki með meiri hörku
en nauðsyn ber til.
Efnahagsráðstafana byltingar-
stjórnarinnar er að vænta inn-
an fárra daga.
Hinn nýi forsætisráðherra
las síðan upp ráðherralista
sinn. Hinir ráðherrarnir voru
einnig ungir menn, sem höfðu
látið nokkuð að sér kveða inn-
an samtaka hinna ýmsu stjórn-
málaflokka og yfirleitt skorið
sig úr um framagirnd.
☆
HLÆGIÐ EKKI AÐ ...
Framhald af bls. 23.
sem Indíánarnir notuðu í lyf
sín, en þeir höfðu ekki hug-
mynd um, hvernig þeim var
breytt í læknisdóma. Og í hof-
móði sínum hafði þeim aldrei
dottið í hug að rannsaka mál-
ið nánar.
Dr. Walter Strathmeyer hafði
gert uppgötvun, sem svokall-
aðir villimenn höfðu gert ein-
hvern tíma fyrir fleiri öldum
en nokkur vissi. Upprunalega
höfðu þeir látið jurtirnar gerj-
ast, þar eð það var eina að-
ferðin til að geyma matvæli,
sem þeir þekktu. Síðar höfðu
þeir uppgötvað, að við gerjun-
ina sköpuðust aukaverkanir,
sem höfðu stórkostlegan lækn-
ingamátt.
Hlægið ekki að hómópatan-
um! Rannsóknir dr. Strath-
meyers og uppgötvun Merks
minna á vísdóm, sem sumt
svokallað frumstætt fólk hef-
ur búið að í óræðan aldur. —
Venjulega er lítið gert úr töfra-
læknum þessa fólks, en það er
ástæðulaust að gera grín að
þeim. Hvað Indíánum Amazon-
as-svæðisins viðvíkur, er hætt
við að öll sú merkilega vitn-
eskja, sem þeir kunna að búa
yfir, verði von bráðar að ei-
lífu glötuð — ásamt þeim sjálf-
um. Allt frá landnámi hvítra
manna í Brasilíu hefur verið
unnið að útrýmingu Indíána
þar, af mismunandi kappi eft-
ir aðstæðum, en aldrei af meiri
grimmd og að yfirlagðari ráði
en í dag. Hrannmorðin á Indí-
ánunum eru daglegt fréttaefni
í blöðum, en engir — hvorki
einstaklingar, ríki eða alþjóða-
stofnanir —■ hreyfa hönd né fót
til að hindra glæpinn. Og svo
er verið að hneykslast á nas-
istunum út af morðunum á
Gyðingunum!
Enn segjast vísindamenn
þeir, sem vinna að rannsókn-
um út frá þessu töfralyfi Ink-
anna, ekki vita nákvæmlega
hvað gerist í gerjuninni. Efna-
greiningarvísindi nútímans eru
ekki komin lengra en það. En
svo mikið er vitað, að hinar
lífrænu gerfrumur taka í sig
og samlaga sér framandi efni
og breyta þeim jafnframt efn-
islega.
Nýlega hefur verið uppgötv-
að, að gersveppir framleiða
eggjahvítu í stórum stíl, fái
þeir jarðolíu að nærast á.
Hungrið í heiminum er ekkert
smáræðis vandamál, eins og
vitar er, og enn hefur lítið að
gagni áunnizt í baráttunni gegn
því. En ekki er óhugsandi að
einmitt með stórframleiðslu
eggjahvítuefnis á þennan hátt
mætti bægja því frá að ein-
hverju leyti.
☆
A GÖNGU
f VORREGNINU
Framhald af bls. 29.
— Jú, sagði ég, — þegar
maður er á þessum aldri, þá er
það sjálfum manni að kenna
ef maður gerir vitleysur. Og
við verðum að gera eitthvað
í þessu máli. Hvers vegna
hjálpar þú mér ekki?
— Hvers vegna viltu ekki
heldur vera glöð, það gerir
mig svo hamingjusaman.
’Ég reyndi að kalla fram í
huga mínum fyrstu kynni okk-
ar, þegar hann lét svo augljós-
lega í ljós aðdáun sína og ég
hélt að hann væri einfaldlega
vífinn karl. Ég reyndi að telja
sjálfri mér trú um að hann
væri stöðugt á hnotskóg eftir
kvenfólki.
i. tbL VIKAN 45