Vikan - 07.01.1971, Síða 48
síðan
síðast
/■------------------\
málshátturinn
• Það er frétta fljótast,
sem í frásögn er Ijótast.
\___________________✓
Anna og Carl Gustaf eru glæsilegt par
Hinn verðandi konungur Svía
var nýlega á ferð ! London og
vann þá mikla hylli almennings.
Hann lét sér ekki nægja að heim-
sækja Buckinghamhöll, heldur
ferðaðist hann frjálslega um borg-
ina. Hér á myndinni er hann í
heimsókn á fiskmarkaðinum í
Billingsgate, klæddur slopp, en
eflaust í glæsilegum einkennis-
búningi undir. í apríl verður hann
25 ára og verða mikil hátíðahöld
í tilefni af því að hann verður þá
opinberlega gerður að rikiserf-
ingja. Það hefir verið tilkynnt að
Anna prinsessa verði viðstödd há-
tíðina, og þykir það jafnvel benda
til þess að eitthvað samband sé á
milli þessara tveggja konungs-
barna. En þau eiga sannarlega við
ýmislegt að stríða, því að stöðugt
eru þau á milli tannanna á fólki
og geta ekki hreyft sig án þess að
fréttamenn og Ijósmyndarar séu á
hælum þeirra. Þær eru að minnsta
kosti ekki fáar ungu stúlkurnar,
sem búið er að bendla Carl Gustaf
við á síðustu árum.
geturöu botnaö?
Það er gömul og góð íþrótt að botna vísur, og þrátt fyrir breytta tima
og formbyltingu í Ijóðum, er enn til hópur manna, bæði ungra og
gamalla, sem eru hagmæltir og fást við lausavísnagerð. í þessu horni
ætlum við að kveðast á við lesendur og hvetjum alla hagyrðinga til
að senda okkur botna. Við munum velja bezta botninn hverju sinni,
en einnig birta fleiri botna, ef ástæða þykir til. Og fyrsti fyrriparturinn
hljóðar svo:
Víst er nóg um vandamál, '
versnar heimur okkar.
Tekur hún þátt í
Olympíuleikunum
árið 1972?
Anna Bretaprinsessa er mikil
íþróttakona, en hún tekur reið-
mennskuna fram yfir annað. Það
er haft fyrir satt að hún geti hve-
nær sem er gengið inn í keppnis-
flokk til Olympiuleikanna, en það
er nú samt ekki fullvíst að hún
geri það. Hún er líka mikil skíða-
kona og mjög æfð í siglingum,
sem hún stundar mikið með föður
sínum. Það er líka sagt að hún
noti nokkuð óþvegið orðbragð á
stundum og er föður hennar kennt
um þann ósið.
En sjálfsagt á hún erfitt upp-
dráttar eins og önnur kóngabörn,
sem aldrei fá að ráða einkalífi
sínu. Þá er oftast efst á baugi hjú-
skaparmál þessara unglinga, til
þeirra verður um fram allt að
vanda. Onnu prinsessu langar lítið
til að hljóta sömu örlög og Mar-
garet móðursystir, sem ekki fékk
að eiga þann sem hún unni, enda
ber hún það greinilega með sér
að hún er óhamingjusöm, þrátt
fyrir það að hún á tvö indæl börn.
Nú hefir því verið spáð að Anna
prinsessa myndi sóma sér vel sem
drottning Svíaveldis.
/ \
• í reglum alþjóða flug-
málasambandsins IATA segir
meðal annars svo: „Það er
bannað að fara um borð eða
reyna að fara um borð í flug-
vél, sem er á ferði"
• Verkalýðsbaráttan lætur
ekki að sér hæða. Verkamað-
ur einn i Detroit sneri sér til
verkstjóra síns og fór þess á
leit, að hann fengi auka frí-
dag til þess að jafna upp
kaffitímana, sem hann hafði
misst af, á meðan hann var í
sumarleyfi!
------------------------------J
hvar
er borgin Dacca?
hvenær
er krossmessa á hausti?
hver
samdi bókina Hernámsáraskáld?
hvernig
endar biblían?
48 VIKAN i. tbi.