Vikan


Vikan - 14.01.1971, Blaðsíða 13

Vikan - 14.01.1971, Blaðsíða 13
lifað án öldunganna í þorpinu, en ekki án hrísgrjónanna. Hann lét handleggi falla niður með hliðum sér, gerðist vingjarn- legur og sannfærandi í máli. En hann hélt áfram. „Félagi Lí, það er margt og mikið sem Maó formaður veit, en ég ekki. En hrísgrjón eru lífsviðurværi okkar og ef til vill ekki hans. Hann er heldri maður, en það er ég ekki. Fað- ir hans var jarðeigandi en fað- ir minn var bara bóndi. Afi minn var líka bóndi og for- feður mínir mann fram af manni. Á þessum ökrum hafa hrísgrjón verið ræktuð um þúsundir ára. Og það ekki hvaða hrísgrjón sem vera skal, heldur sérstök úrvalsgrjón sem þroskast bezt í þessari mold hér, undir fótum okkar.“ Hann stappaði niður hægra fæti. Félagi Lí hlustaði með varir kipraðar í glotti. „Haldið áfram, féla<*i Wang," mælti hann af oflátungslegri þolinmæði. Honum hafði verið kennt að hann yrði að vera þolinmóður gagnvart þessu sveitafólki, en aldrei umburðarlyndur. Látum það tala og sýna hug sinn all- an. Beitum síðan miskunnar- lausu valdboði. Hópurinn stóð þegjandi og allir horfðu til jarðar. Kvenmannsóp rauf þögnina. Það var kona Wang Sans. Hún hafði snúizt á hæli og hlaupið pegnum mannþröng- ina til litla leirkofans, sem þau biur^u ennþá i. Timburhurð hevrðist skellt og slagbrandi hleypt fyrir. ..Haldið áfram, félagi Wang,“ endurtók félagi Lí. Op Wang San tók aftur til máls, þótt ekki væri laust við að kvíðahrollur færi um hjarta hans. Hann væ+ti varirnar. „Þér segið að ameríkumenn p1æ°'i divnt og fái mikla upp- skeru. Þér segið að þeir hafi vélar til að nlægia með o« nú hafi Maó formaður keypt slík- ar vélar af hinum rússnesku bræðrum okkar. Með þessum vélum segið þér að við eigum að plægja akra okkar míög djúpt. En nú er spurningin, sá ameríkumenn hrísgrjónum í sína diúpt plægðu akra? Mér er spurn.“ Félaga Lí brast skyndilega þolinmæði. „Spurningin er hvort þú, Wang San, vilt gera eins og þér er sagt. Ég skal svara þessari spurningu fyrir þig. Þú gerir eins og þé’- er sagt. Þið perið, allir eins og ykkim er skipað. Þið eruð fá- vísir menn. Þið kunnið el:ki einu sinni að skrifa nafnið ykk- ar. Þið getið ekki lesið fyrir- mælin. Fyrir því er ég kom- inn hingað til þessa smáþorps, að segja ykkur það sem þið ekki getið lesið. Allt fylkið, frá Wan-li-hsiang til San-li-wan -tse á að verða einn stórfeng- legur hrísgrjónaakur. Öll landamerki skulu afnumin og störfin verða leyst af höndum af héraðsbúum í heild. Ykkur verður leyft að búa í ykkar eigin húsum um sinn, en land- ið er ekki framar séreign ykk- ar. Það eiga allir í sameiningu. Ykkur verða send fyrirmæli frá mönnum, sem þjálfaðir hafa verið erlendis í jarðyrkju. Við getum ekki framar lagt dýrmæta gróðurmold lands vors í hendur fákunnandi fólks. Er nú spurningunni svarað, fé- lagi Wang?“ Wang San starði á þetta pír- eygða andlit. Hugur hans var blandinn óvissu og ótta. Ef til vill hafði ungi maðurinn rétt að mæla. Þessi djúpplæging hafði aldrei verið reynd. Það gat verið vit í henni. En þó hafði faðir hans sagt honum sjálfur, að hrísgrjónaakra ætti aldrei að plægja mjög djúpt. Ekki dýpra en svo, að rætur jurtarinnar stæðu í vatni og toppurinn upp úr, það voru hans óbreytt orð. Væri þeirri reglu fylgt og útsæði vandlega valið, fékkst full uppskera. „Hrísgrjónajurtin er eftirlát eins og kona,“ hafði faðir hans oft sagt þegar þeir voru að planta ungu sáðsprotunum út í vatnsbeðin. „Meðhöndlið hana eins og bezt á við og þið þurf- ið aldrei að svelta. Ef þið Framhald á bls. 43 Það var furSulegt, hvílík áhrif þessi fáu orð höfðu. Félagi Lí þaut á fætur, kreppti hnefana og snaraðist gegn Wang San. „Langar þig til að láta skjóta þig þarna úti á þreskipallinum?“ öskraði hann svo hátt, að undir tók... 2. tbi. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.