Vikan


Vikan - 14.01.1971, Page 20

Vikan - 14.01.1971, Page 20
r Spennandi framhaldssaga eftir Lenu Winter, sem gerist á þriðja tug þessarar aldar. Gleymdu Hún starði á bréfhausinn og las síðan hinar fáu vélrituðu línur, sem bréfið hafði að geyma. Lög- fræðingurinn skrifaði, að móður- bróðir hennar hefði nýlega látizt, Per Uno Melander, verksmiðjueig- andi . . . Hún las nafnið aftur og aftur, en kannaðist ekkert við það. Móðir hennar, Elisabeth Linder, hafði aldrei talað um bróður sinn. Mikaela vissi, að hann var til, en gekk út frá því sem vísu, að hann væri jafnfátækur og þær mæðgurn- ar voru. Nú starði hún á þetta framandi bréf og í brjósti hennar vaknaði von um betri daga og bjartari framtíð. Þetta bréf gat ekki þýtt annað en það, að móðurbróð- ir hennar hefði skilið eftir erfða- skrá og að hún væri erfingi hans. Ef það var rétt, þá mundi hún verða rík innan skamms. Fátæktin og baslið heyrði þá liðinni tíð til, og nýtt líf myndi hefjast. Hún lét sig falla aftur á koddann; hún lá grafkyrr og hjarta hennar barðist ótt og títt af eftirvæntingu. Hún lá þarna lengi með bréfið í höndunum. Hann var semsagt dáinn, þessi Per Uno Melander, sem hún hafði aldrei séð og ekki þekkt hið minnsta. Hún hafði ekki einu sinni vitað, hvaða eftirnafn móðir hennar bar, áður en hún giftist. Hún vissi það eitt, að móðurforeldrar hennar dóu snemma og að móðir hennar óx upp ásamt miklu eldri bróður sín- um og að hann kostaði uppeldi hennar og sá fyrir henni á allan hátt. Það var hið eina, sem Elisa- beth Linder hafði sagt dóttur sinni. Og Mikaela hafði alltaf gengið út frá því sem vísu, að hinn ókunni móðurbróðir hennar lifði við sult og seyru alveg eins og þær. Hún vissi ekki, hve hatrömm andstaða Per Unos Melanders hafði verið gegn því, að systir hans giftist Mikael Linder, sem var tón- listarmaður, hafði enga fasta stöðu og var auk þess heilsuveill. Þegar hún hljópst á brott með honum, skrifaði bróðir hennar henni stutt og harðort bréf. Elisabeth hafði breytt gegn vilja hans og hegðað sér bæði barnalega og heimsku- lega. Hann vildi ekki hafa neitt meira saman við hana að sælda. Hann kvaðst ekki lengur líta á ANNAR HLUTI

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.