Vikan - 14.01.1971, Page 32
Um þessar mundir eru liðin átta
ár slðan HLJÓMAR urðu til suður
í Keflavík, með Gunnar Þórðarson
í broddi fylkingar. Það er engin
ástæða til að fara að rekja þá sögu,-
það hefur oft verið gert, meira að
segja í bók, sem síðar var seld á
30 aura stykkið!
En eftir allan þennan tíma er
ekki laust við að fari að sækja á
mann ýmsar spurningar í sam-
bandi við framtíð þessa manns og
félaga hans og því var það að ég
fékk Gunnar til að líta við hér
einn daginn í byrjun aðventu, til
að segja mér upp og ofan af sínum
högum.
„Voruð þiS ánægðir með síð-
ustu Danmerkurför ykkar og plöt-
una sem kom út um jólin?"
,,Já, ég get ekki neitað því, og
mérfinnst þetta eiginlega skemmti-
legasta plata sem við höfum gert
frá upphafi. Hún er mannleg að
mínum dómi, ekkert stórkostleg
músíklega, en mér finnst gaman
að hlusta á hana, og mjög gaman
var að gera hana. Svo ber hún nafn
er í eigu Óla þess sem var höfuð-
paurinn í hljómsveitinni „Ola &
the Janglers". Nú, rétt eftir að við
komum heim fengum við hring-
ingu frá fyrirtæki í Svíþjóð, sem
vildi láta okkur hafa mánaðartúr
um Svíþjóð, en því miður gátum
við ekki tekið því tilboði á þessum
tíma, þar sem við erum bundnir
allt fram í marz, til dæmis t „Fást".
Meiningin er að fara aftur til Dan-
merkur í apríl, til að taka þar upp
aðra LP-plötu og þá er ætlun okk-
ar að taka þessu boði frá Svíum,
ef hægt er að koma því við.
Platan sem við tökum upp þar
yrði þá væntanlega meira í þess-
um „kassagítarastíl" sem við höf-
um verið að fara út í í vetur, en
mér finnst ekki nærri nóg af því á
þessari síðustu plötu okkar."
„En er nokkuS vit í aS vera aS
fara erlendis í mánuS og mánuS í
einu eins og þiS hafiS veriS aS
gera? Er ekki ráðlegra að vera
erlendis í allt að hálft ár, ef þaS
á að bera einhvern árangur?"
„Jú, vissulega, en það er í raun-
Mjög athyglisvert viðtal við Gunnar Þórðarson, sem ætlar
ekki að láta sitja við orðin tóm. Hann lætur einnig liggja
að ýmsu í þessu spjalli . . .
Nauðsynlegt að koma hér
upp stúdíói
með rentu, því á henni er mikið af
þeim áhrifum sem við erum aldir
upp í, en ég veit að margir halda
ranglega að við höfum gert þessa
plötu „undir áhrifum" af einhverju
ákveðnu efni.
Hvað Danmerkurferðina snertir,
þá var hún ágæt, en hún gerði
okkur svo sem ekkert sérstakt. Við
fengum að vísu tilboð um að koma
tiI Svíþjóðar og vera þar í viku á
klúbb ( Stokkhólmi, en sá klúbbur
inni bara peningaspursmál. Á með-
an maður er að koma sér inn í
vissan hring sem tryggir manni
góða og stöðugt vinnu, þá er
maður á svo litlu kaupi að það
jaðrar við ekki neitt. En síðan er
manni borgið, svo við höfum hug-
leitt að vera í Danmörku og víðar
allt að þrjá til fjóra mánuði þegar
— og ef — við förum í vor.
En við höfum Itka rekið okkur á
Framhald á bls. 37
32 VIKiAN 2 tbl'