Vikan


Vikan - 14.01.1971, Side 39

Vikan - 14.01.1971, Side 39
NÝTT FRÁ RAFHA NÝ ELDAVÉL GERÐ HE6624. 4 hellur, þar af 1 með stiglausri stillingu og 2 hraðsuðuhellur, stór ofn, 56 lítra, yfir- og undirhiti fyrir steikingu og bökun, Ijós í ofni. Fæst með eða án glóðar- steikar elements (grill). — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÖÐINSTORG - SlMI 10322 núna með þessum mönnum og ég held að mórallinn innan hljóm- sveitarinnar hafi aldrei verið betri. Auðvitað gengur þetta svona upp og niður og í augnablikinu erum við, að mínum dómi, örlitið niður á við, en ég hef ekki stórar áhyggj- ur af þvi. Þetta hefur verið svona öll þessi átta ár og er eðlilegur hlutur." „Einu sinni sagðir þú mér að það sem þú vildir helzt gera væri að vinna í stúdíói; áttu þann draum ennþá?" „Já, og það lítur út fyrir að það sé að verða eitthvað meira en bara draumur. Við höfum verið að gera könnun á því hvað það myndi kosta okkur að koma hér upp góðu stúdíói, 8 rása, og eigum að fá ákveðið svar á morgun (15 jan- úar) frá nokkrum fyrirtækjum. Ef þessi svör verða eins og allt bendir til, þá kaupum við þetta tæki og setjum hér upp stúdíó. Meiningin er að það verði komið gagnið í júlí, þannig að við gætum farið beint í það . . ." „Og hverjir eru svo þessir „við"? „Eins og er get ég ekkert um það sagt, en ég tel það ákaflega nauðsynlegt að hér sé komið upp góðu stúdói, þv' hér verða engar verulegar framfarir á þessu sviði tónlistar fyrr en málum er þannig háttað. Nú er svo komið að er- lendir tónlistarmenn vinna að miklu leyti sína músík í stúdíóun- um, en hér verða menn að hlaupa inn í klukkutima og vera þá 100% vissir á því sem þeir ætla að aera. Plata er ekki það sama og dans- leikur eða hljómleikar og þvi verð- ur að vinna plötur á þann hátt. Svo myndum við siálfsagt reka þetta stúdíó eins og hvert annað fyrirtæki, en ég hef á tilfinning- unni að okkur eigi að ganga betur en sumum öðrum sem vinna við upptökur hérlendis, þvi við þekki- um þetta það vel, og ég tel nauð- synlegt að við betta verði sem m“'t músikantar." ,,.Ef svo skyldi fara að þi.ð ákvæðuð að hætta, myndir þú þá algjörlega helga þig stúdíóinu?" „í öll þessi ár hef ég fenqið mest út úr því að semia og þótt mest gaman að því, svo ég reikna með að gera meira af bví að semja, bæði fyrir mia og aðra. Og svo held ég alveg útilokað fyrir mia að ætla að hætta að soila: éa hreinlega qæti það ekki, enda sé ég ekki fram á að éa verði at- vinnulaus þó éq sé ekki i hlióm- sveit. Ég er til dæmis nvbúinn að spila inn á um það bil klukkut'ma heimildakvikmvnd um Leif heoona. og voru það íslenzk rímnastef oq lög. Það er alltaf eitthvað svona, til dæmis hefur komið til tals að ég sjái um hljómplötu fyrir eitt fyrirtækjanna hér í bænum og á hún að vera örlítði nýstárleg, svo það er engin hætta á að ég fari á sveitirta. Ég hef aldrei haft nein- ar áhyggjur af peningum. Það er leiðindamál. „Þú talaðir um að þú myndir semja fyrir sjálfan þig og aðra. Þýðir það að þú ert að hugsa um að hefja einskonar „sólóferil" svipað og John Sebastian, Steve Stills, James Taylor og fleiri?" Gunnar dró aðeins við sig að svara. „Tja, maður þarf nú að vera fj . . . . góður til að geta svo- leiðis. Ekki það að mig langi til þess, en ég veit ekki . . . Hitt er annað mál að ég er sífellt að verða hrifnari af þesskonar tónlist og boðskapnum. Þó textarnir séu ekk- ert stórkostlegir þegar maður heyr- ir þá fyrst, þá kafa þeir dýpra — ja, mér liggur við að segja flestir aðrir. Mér finnst sérsakleqa ánægjulegt hversu tónlistin í daq er að færast nær manninum oq hugarheimi hans. „Því hefur heyrzt fleygt að bandarískir aðilar hafi sýnt áhuga á plötum ykkar. Er eitthvað til í því?" „A þessu sigi málsins vil ég ekkert um það segja." ☆ Nei, ép vil ekki... Framhald af bls. 19. eitthvað sem stangast á við vilja foreldranna, geta orðið slæmir árekstrar. Gömul reynsla af eigin uppeldi, sem hefur safnazt saman í undir- vitundinni, kemur upp á yfir- borðið og krefst síns réttar. Foreldrar geta þá staðið and- spænis erfiðu vali. Á Pelle að fá vilja sínum framgengt, eða bau? Það er mjög nauðsynlegt að foreldrarnir geri sér ljóst að þetta er ósköp eðlilegt þroska- stig og að það ríður á miklu að sýna þolinmæði og umburð- árlyndi, jafnvel þótt það kosti nokkurt erfiði. Lillian Gottfarb segir alltaf við foreldra, sem eiga börn á þessum aldri. að þeir skuli ekki vera að revna að ala þau upd á þessu skeiði. Þegar barnið er á þessu þrjózkuskeiði er um að gera að «era sem minnstar kröfur til þess, það borsar sig bezt. Barn- inu er svo nauðsynlegt að hefða sig á þessu tímabili, til að Peta hagað sér rétt síðar og til að geta umgengizt aðra síð- ar á réttan hátt. Þetta er í fyrsta sinn sem það sjálft er einstaklingur. Lillian Gottfarb er ekki hrif- in af orðinu „þrjózka" og ,,þrjózkualdur“, það hefur fengið leiðinlegan hljóm, hún vill heldur kalla það „sér- vizkualdur". Börn eru oft sér- vitur og þverstæð og þau vita ekki alltaf hvað þau vilja eða vilja ekki. Ef móðirin segir barninu að koma út með sér, getur verið að það svari; — Nei, ég vil það ekki. Barnið vill kannski í raun og veru fara út og stendur nú í ber- höggi við tvær mótstæðar hvatir. Það getur orðið barn- inu erfitt að greiða úr þessari flækju, nú þegar það hefur komizt að því, að það geta ver- ið fleiri hliðar á sama máli. Slíkt ástand getur orðið til þess að óskiljanleg þrjózka hlaupi í það. Það hefur ein- faldlega ekki lært að hafna og velja. Þess vegna á helzt að komast hjá því að setja barn- ið í þennan vanda, það á til dæmis ekki að láta það velja á milli hvort það vill heldur vanilluís eða súkkulaðiís, köku eða bollu, svo dæmi séu nefnd. En fyrsti ,,þrjózkualdurinn“ líður hjá. Hann getur staðið í nokkra mánuði en sjaldan meira en hálft ár. Og því meiri þolinmæði sem maður getur sýnt, því meiri möguleikar eru á því að þetta verði hvorki langur né erfiður tími. Og gleymið ekki að barnið þarf jafnt á báðum foreldrum að halda á öllum aldri. ☆ 2. tbi. VIIvAN 39

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.