Vikan


Vikan - 14.01.1971, Qupperneq 48

Vikan - 14.01.1971, Qupperneq 48
Tunglið var komið upp, þeg- ar við komum út úr veit- ingahúsinu og við ókum meðfram ánni heim. — Kvöldið er alltof fagurt til að fara inn strax, sagði ég, þegar hann stöðvaði bilinn, fyr- ir utan húsið. — Eigum við ekki að kveikja eld og sitja hér úti stundarkorn? Og ég hélt að þetta væri leiðin til að brjóta múrinn, sem var á milli okkar, — að liggja vafin í teppi við snarkandi eld. —■ Ég var að hugsa um að fara snemma í rúmið, sagði Roger. — ÍSg er ekki vel hress. Eigum við nokkuð við höfuð- verk? — Eg skal finna aspirin fyr- ir þig. Vesalingurinn, ég vissi ekki að þú varst með höfuð- verk. Ég man hverja mínútu af þessari nóttu. Sg hef aldrei fundið mig sjálfa svo vel vak- andi og lifandi eins og þá. Til þess að trufla ekki Roger, gekk ég út á veröndina í tunglsljós- inu. Reyndu nú að vera skynsöm, Libby, sagði ég við sjálfa mig. Þú getur ekki dæmt vesalings manninn þinn, fyrir það eitt að vera með höfuðverk á svo fögru kvöldi. En hvers vegna gat ég ekki fengið hann til að gleyma höf- uðverknum? Hvers vegna gat ég ekki haft sömu áhrif á hann og Will hafði á mig? Var það ekki hægt? Með sjálfri mér heyrði ég orð Wills: — Þú ert svo Ijúf, Libby, þú ert öll svo ljúf og yndisleg. En hvað sem öðru líður, hefði aldrei þýtt neitt fyrir mig að segja eitthvað í þessa átt við Roger. Skyndilega sá ég þetta allt í broslegu ljósi, miðaldra konu, sem stóð þarna í tunglskininu og hugsaði um ástarorð, ég fann að hláturinn sauð niðri í mér alveg upp í augu, sem voru full af tárum, svo skringilegt sem það var. Hvaða glæp höfðum við Ro- ger framið gagnvart hvort öðru? Hvað höfðum við gert okkur sek um? Hve lengi hafði hann gengið með þessi vonbrigði í hjartanu, vonbrigði vegna lífsstarfs síns, án þess að ég hefði hugmynd um það? Var það breytingin á mér sjálfri sem hafði gert það að verkum að við vorum eins og framandi verur? Mér varð kalt og ég flýtti mér í rúmið. Einn daginn, þegar Will kom í eina af þessum skyndi- heimsóknum sínum, sagði hann okkur að Mark hefði ver- ið að reyna að ná í okkur gegn- um símann í þorpsbúðinni. Fyrsta hugsun mín var Bucky! Það hafði eitthvað komið fyrir Bucky! Will beið heima meðan við Roger ókum til búðarinnar. Þar var enginn símaklefi, sím- inn hékk á veggnum. Allir, sem í búðinni voru, vissu að eitt- hvað slæmt hafði komið fyrir og störðu á Roger, alveg eins og ég, meðan hann talaði í símann. Allir heyrðu hann spyrja hvaða læknir hefði ver- ið sóttur. Svo sagði Roger: — Við leggjum strax af stað, Mark, við getum farið strax í kvöld. Ég vissi að hann vildi ekki segja neitt þarna inni í búð- inni, svo ég gekk á undan hon- um út að bílnum. — Það er Ellen, sagði hann. — Hún er með krabbamein. Hún er á sjúkrahúsi núna. — Krabbamein? Ellen? En hún er svo ung . . . ! sagði ég, en ég vissi mæta vel að marg- ar ungar manneskjur deyja úr krabbameini. —- Heilaæxli, sagði Roger. — En það hlýtur að vera röng sjúkdómsgreining. Það getur ekki annað verið. Hve lengi verðum við að setja niður dót- ið okkar? Þegar Roger hafði sagt Will fréttirnar og beðið hann um að ganga frá húsinu fyrir okkur, kom Will til mín. Hann fylgdi mér eftir, eins og barn, og mér fannst ég myndi tryllást við að síá vonleysissvipinn í ajsgum hans. Í5g vildi að ég hefði eitt- hvað til að drekka, það er ekki droDÍ af áfengi í húsinu. Sg þurfti á einhverju sterku að halda til að hrista upp í heil- anum, svo ég gæti komið mér að verki. — Hérna, sagði Will og rétti mér vasapelann með heima- brugginu, sem hann bar alltaf á sér. 0g tók gúlsopa úr pelanum og viðbjóðurinn brann í háls- inum á mér. — Hvertu ferðu, Libby? sagði Will. — Við verðum að búa heima hjá dóttur minni, að öllum lík- indum. Það eru leigjendur í húsinu okkar, enda þarf ein- hver að vera tii að passa Bucky, litla drenginn hennar dóttur minnar. Við verðum að gera eitthvað fyrir hann, það væri slæmt ef honum yrði komið fyrir í fóstur. — Ætlar þú að yfirgefa mig? spurði hann. — Skilurðu það ekki, Will? Ellen er barnið okkar! sagði ég. — Eg drap barnið mitt þín vegna, sagði hann. — Hvað ertu að segja? Will, þú mátt ekki tala svona, sagði ég. — Það var slys. Þú veizt það sjálfur. Ég sá það með mínum eigin augum. En þá rann skyndilega upp fyrir mér hvað hann hafði átt við, þegar hann sagði að það væri skylda hans að sjá fyrir barnabörnum sínum og ég fann átakanlega fyrir því hyldýpi sem var á milli okkar. En um leið var ég reið vegna þess að hann skyldi brydda upp á þessu einmitt nú, þegar ég þurfti að hraða mér heim til dóttur minnar. Ég fann hvernig tíminn leið, hratt, hratt. . . . Hann tók stóran sopa úr vasapelanum og skrúfaði lokið á með fumkenndum hreyfing- um og stakk honum svo í vas- ann. Svo leit hann niður eftir þreklegum arminum á kreppt- an hnefann. Hvað kom mér til þess að slá hann, ég hafði aldrei fyrr slegið hann? Ég kom einu sinni í veg fyrir það að hann kálaði manni og það eina sem ég gerði þá, var að halda honum þang- að til hann var orðinn upp- gefinn. Hvað kom mér til að slá hann? Will, sagði ég, þú mátt ekki segja þetta. Ekki núna. Hjálpaðu mér, þú verður að hiélpa mér, einmitt núna! E» st'óð- þacna og kreisti saman hendurnar, algerlega vanmáttka, gat ekki yfirgefið Will í þessu sálarástandi. Ég heyrði gneggið í hrossagaukn- um, mér fannst það eins og óp, sársaukaóp frá minni eigin angistarfullu sál. 'É'g varð að fá Will til að hreyfa sig, hugsaði ég, fá hann til að vakna til lífsins, áður en ég sneri mér að bví að láta niður dótið okkar. Ég varð að ganga til hans og snerta við honum. En einmitt þá lét hann armana falla og stundi þungan. Hann hafði ekki einu sinni hug- mynd um nærveru mína. Ennþá einu sinni er ég kom- in heim að húsi Ellenar, án þess að hafa hugmynd um hvernig ég komst þangað, eins og svefngengill. Það er hreinasta kraftaverk að ekki skuli hafa verið ekið yfir mig og að ég skyldi ennþá halda á pakkanum með kótelettunum. Það sást ekkert á honum ann- að en naglaför mín á pappírn- um. Er það ekki furðulegt að maður skuli geta haldið ytra útliti og virðuleik, hagað sér eins og venjulega, þegar innri maðurinn, sálin, er sem blæð- andi und? Ég sá að bíll Rogers var ekki í bílskúrnum, þá hlaut hann að vera á bókasafninu. Það væri miklu auðveldara fyrir Roger, ef við gætum flutt heim til okkar, þegar. . . . Það verður erfitt fyrir hann að hafa ekki vinnuherbergi sitt, þegar hann fer að kenna aftur. En hvernig verður það þá með Bucky? Og Mark? Nú þarf ég að leysa hjúkr- unarkonuna af hólmi, svo hún geti fengið sér göngu. Og ef það verður einhver stund, áð- ur en Bucky kemur heim úr leikskólanum, þá ætla ég að reyna að fá mér blund. Ég hef oft hugsað um að skrifa Will, en það hefur aldrei orðið af því. Hef ég ekki gert honum nógu mikið illt nú þeg- ar? Ég veit ekki heldur nema að konan hans sé komin heim frá Kentucky, rétt einu sinni. Hún gæti fundið bréfið og les- ið það á undan Will. Þess utan er konan á pósthúsinu frænka hennar; það væri nóg að henni fyndist póststimpillinn grun- samlegur. Og ég get ekki hringt til hans, nema að öll sveitin komist að því. Ég hugsa oft núna um öll þau skipti sem ég hef stjakað honum frá mér og sagt: — En hvers vegna er það einmitt ég, Will? Þú ættir að halla þér að einhverri konu, sem er ekki svona hræðilega samtvinnuð eins og ég, full af flækjum. Ég get aldrei slitið af mér öll bönd og ég er of mikill heig- ull til að elska þig opinberlega og get heldur ekki losað mig við þig. Þú þarft að finna ein- hverja konu, sem þú getur elskað. Hvers vegna ert þú svona hrifinn af mér, Will? — Vegna þess að þú ert svo lík sjálfum mér. Og það eru ekki margir slíkir til. í rökkrinu fyrir utan glugg- ann get ég séð svolítinn stúf af götunni. Ég sit þar oft og bíð eftir að Mark eða Roger komi heim. Ég tek fram glös, stend við gluggann og sé þeg- ar kveikt er á götuljósunum, eins og sviðsljósum. Ég stend utan við þetta allt eins og áhorf- andi. En þetta er New York og hér eru engir hrossagaukar. Fyrir það er ég þakklát. ☆ 48 VIKAN 2- tw.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.