Vikan


Vikan - 16.09.1971, Qupperneq 18

Vikan - 16.09.1971, Qupperneq 18
Garth Hudson THE BOYS tnt -rir r THE BAND er vafalaust orðin virtasta hljómsveit í heimi — meðal annarra hljóm- sveita jafnt og almennings — síðan fyrsta plata þeirra kom út fyrir þremur árum. En það var einmitt þessi fyrsta plata sem beindi athygli plötukaupenda að þeim, vegna þess, að þegar hún kom út var enginn almennilega viss hvort Music From Big Pink spiluðu á plötunni The Band eða The Band spiluðu Music From Big Pink. Þetta gaf fólki svo sann- arlegn rifthvnð til að hugsa um. Robbie Robertson. Samt sem áður komu nauð- synlegar auglýsingar frá plöt- unni sjálfri og síðar frá Bítl- unum og fleiru fínu fólki, sem lofaði og prísaði hljómsveitina sínkt og heilagt. Það bezta við The Band var og er — hversu vel þeir ná saman og hversu þétt þeir hljóma. Þegar Big Pink kom út var þetta sánd svo nýtt og frískandi, að jafnvel Life Ma- gazine gerði tilraun til að út- skýra músíkina og komst að þeirri niðurstöðu að hún væri . flókin en örugg“. Levon Helm. Bassaleikarinn Rick Danko lýsir þessari samstöðu þeirra á þennan hátt: „Sennilega er það vegna þess að við höfum verið saman sem manneskjur svona lengi. Við fimm höfum spilað saman í 10 ár.“ 10 ár hlýtur að vera met fyr- ir starfandi hljómsveitir, en það er nær eingöngu þessum 10 ár- um að þakka að tónlist þeirra hefur fengið að þróast til þess sem hún er í dag. „Ég byrjaði í skólanum," heldur Danko áfram. „Þá var ég með eigin hljómsveit sem hét — minnir mig . . . Rick Danko! Ég held aftur á móti að ég hafi verið um það bil 17 ára þegar ég kynntist hinum í The Band. „Hinir" í hljómsveitinni eru gítarleikarinn Robbie Robert- son, sem semur mest af efni hljómsveitarinnar, píanóleikar- inn Richard Manuel, trommu- leikarinn Levon Helm og Garth Hudson, sem leikur á orgel. — Allir nema Helm eru frá Kan- ada. Robertson er fæddur og uppalinn í Toronto. „Ég var ungur, mjög ungur, þegar ég fór að spila eitthvað," segir hann. „Móðir mín var músík- ölsk og ég hlustaði mikið á „country & western" músík. Svo man ég að þegar ég var 5 ára, fékk ég ofurást á stórum hljómsveitum (big bands). Annars hef ég spilað svo lengi á gítar, að ég man eiginlega ekkert hvenær ég byrjaði. Sennilega hef ég komizt inn í rokk rétt eins og hver annar.“ Þetta hefur slegið marga: Fólk hefur yfirleitt ekki talið The Band rokkhljómsveit. En Danko tekur undir orð Robert- sons: „Ójú, við erum vissulega rokkhljómsveit. Við spilum rokk ‘n‘ roll.“ Richard Manuel á svipaðar Richard Manuel. 18 VIKAN 37. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.