Vikan


Vikan - 16.09.1971, Síða 20

Vikan - 16.09.1971, Síða 20
FRAM H ALDSSAGA EFTIR IRA LEVIN 5. HLUTI Þegar Rosemary kom út úr húsinu, gekk hún af stað til Madison Avenue. Hún spurði sjálfa sig hvort Hutch lifði þetta af eða dæi. Og hvort hún myndi nokkurn tíma eignast vin, sem yrði henni svo mikils virði. Hún hugsaði líka um Grace Cardiff, sem svarað hafði í símann hjá Hutch. Eftir rödd- inni að dæma gæti hún verið silfurhærð og aðlaðandi. Höfðu þau Hutch lifað saman, á þann notalega hátt sem miðaldra fólki er eiginlegur? Rosemary vonaði það. Hún var að skoða útstilling- arglugga, þegar hún heyrði rödd Minniear bak við sig. —- Nei, ekki bjóst ég við að hitta þig hér, sagði Minnie. — Ég er nýbúin að heyra dálítið hræðilegt, sagði Rose- mary. — Edward Hutchins hef- ur veikzt. Og hún sagði allt af létta. —- Var það ekki hann, sem Roman hitti hjá þér um dag- inn? Roman fannst hann svo viðkunnanlegur og koma greindarlega fyrir. Talaði um hann í heila klukkustund. Þetta er vonandi ekki það sama og kom fyrir Lilly Gardenia, sem bjó í íbúðinni ykkar á undan ykkur? Rosemary hafði upp á síð- kastið snætt allt kjöt blóðugt, og nú át hún það næstum hrátt. Steikti það einungis lítilshátt- ar. Verkirnir færðust í vöxt með hverjum degi — en henni var hætt að bregða við þá og hún kvartaði ekki lengur um þá við Sapirstein lækni. Um síðir hætti hún meira að segja að hugsa um þá. Þau höfðu ákveðið að kaupa

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.