Vikan


Vikan - 16.09.1971, Qupperneq 34

Vikan - 16.09.1971, Qupperneq 34
 RENAULT □ RENAUU RENNUR ÚT HVERS VEGNA VELJA RENAULT R4? Það er auðvelt að útskýra. — Renault R4 eyð- ir aðeins 5,5 1. af bensíni á 100 km. og er auð- veldur í viðhaldi. — Hann hefur verið sérstak- lega reyndur við erfiðar aðstæður sem hér á landi. — Þess vegna hefur Renault R4 einstak- lega góðan fjaðraútbúnað og er hár á vegi. BIFREIÐAR VARAHLUTIR VIÐGERÐIR KRISTIINIIM BUÐIMASOIM KLAPPARSTIG 25-27 SIMI 22675 © peningamálum, þá kostaði það hann óhemju fé að losna við Sylyiu. Hann sór og sárt við lagði að þetta yrði hans síðasta hjónaband, fjögur hjónabönd yrðu að nægja honum fyrir lífstíð. Nú ætlaði hann að helga sig starfi sínu. Það var greini- legt að hann fann hvergi jafn- ingja Carole Lombard. Það liðu fjögur ár þangað til Kay Williams kom fram á sjónarsviðið og hún sannaði það fyrir honum og að honum hafði skjátlazt. Kay var fimmtán árum yngri en Clark, lagleg, ljós- hærð og glaðlynd. Hún var vel- þekkt fyrirsæta og sýningar- stúlka, hafði tvisvar verið gift auðugum mönnum, sem hún skildi við, átti tvö börn, pilt og stúlku og var mjög vel stæð. Hún hafði hitt Clark Gable, rétt eftir andlát Carole Lom- bard og varð strax hrifin af honum, eins og milljónir ann- arra kvenna. Og árið 1955, þeg- ar hann hafði endurheimt stöðu sína í Hollywood, sem frægasti kvikmyndaleikari heims og fann að hann var að lifna til Hfsins, kvæntist hann henni. Þá var hann fimmtíu og fjögra ára og hún þrjátíu og sjö. Nú gat hann hagað lífi sínu að eigin vild, átt róleg kvöld heima hjá sér, með konu, sem fylgdi honum líka á veiðar og gat haldið skemmtileg sam- kvæmi fyrir vini sem hann hafði dálæti á. Hann hafði líka mikið yndi af börnum hennar og þreyttist aldrei á að leika við þau. Hann, sem aldrei hafði eignast barn. Þetta var hamingjusamasta tímabil á ævi hans, síðan Car- ole dó. Og hann vann af full- um krafti, hver kvikmyndin af annarri hlaut góða dóma. Hann var að verða sextugur og ennþá var hann meðal þeirra fremstu. Hann hafði líka gríðarlegar tekjur, fékk aldrei minna en milljón doll- ara fyrir hverja mynd. Hann var líka orðinn ákaf- lega vandlátur með hlutverk, en að lokum fékk hann tilboð um hlutverk, sem hann gat ekki staðizt. Það var í „Mis- fits“, skrifað af þeim höfundi, sem hann hafði mestar mætur á, Arthur Miller. Hann átti að leika eldri kúreka og honum fannst það eins og að vera kominn heim aftur. Og nú átti hann að leika á móti Marilyn Monroe í fyrsta sinn. Þetta var árið 1959. Hann gat ekki neitað slíku tilboði. Þetta var á margan hátt ein- stök kvikmynd. Það var fyrsta kvikmyndahandritið, sem Art- hur Miller skrifaði. Síðar skildu menn að þetta var upphafið af skilnaði hans og Marilyn Mon- roe. Og svo var það að meðan Clark Gable lék í þeirri mynd, að hann fékk að vita að hann ætti von á erfingja og það var mesta gleðiefnið, að það ætti fyrir honum að liggja að verða faðir, nú, þegar hann var fimm- tíu og níu ára. Nú fékk hann loksins uppfylltan gamlan draum. Hann var hamingju- samur maður, frægur, auðug- ur og dáður. Honum leið vel í hjónabandi með konu, sem hann elskaði; hann var hraust- ur og honum fannst hann vera orðinn ungur aftur. Strax og töku kvikmyndar- innar var lokið, flýtti hann sér heim á búgarðinn til Kay, hann ætlaði að vera hjá henni með- an hún beið eftir barninu. Hann tilkynnti að hann tæki ekki að sér ný hlutverk fyrr en barn hans væri fætt og hann ætlaði líka að taka sér iangt frí á eftir. Nú ætlaði hann að njóta ham ingjunnar til fulls. En sú hamingja varð ekki langvinn. Nokkrum vikum eftir heimkomu sína var hann að leika sér við börnin, lá á gólf- inu og tuskaðist við þau, þeg- ar hann fann sáran verk fyrir br;ósti. Hann skildi ekki hvað þetta gat verið og fór snemma að hátta, til að sofa úr sér verkinn. Hann vaknaði um miðja nótt með óbærilegum kvölum, svo Kay hringdi strar í lækni. Eftir stutta rannsókn hringdi læknirinn á sjúkrabíl. Nokkrum dögum síðar var hann látinn. Hann þurfti ekki að heyja neitt dauðastríð, hann fann ekkert til og vissi ekki að tjaldið féll endanlega. Hann sat uppi í rúmi sínu og var að glettast við hjúkr- unarkonuna. Svo lokaði hann augunum og hallaði sér aftur á koddann. Lífi hans var lokið, einmitt þegar hann var svo hamingjusamur og sáttur við það. Hann hafði ákveðið sjálfur að útför hans færi fram í kyrr- þey, „iáttu þá ekki troða upp með sirkus", sagði hann nokkru áður við Kay. En það gat eng- inn komið í veg fyrir að íbúar Hollywood fjölmenntu til að fylgja „konungi" sínum til hinztu hvíldar. Hann er graf- inn í Forest Lawn, við hliðina á Carole Lombard. Hann hafði verið búinn að tala um það við Kay. Hún lét taka frá grafreit handa sér við hlið hans. En Kay varð að horfast í augu við lífið, eftir að hann var horfinn. Þrem mánuðum eftir andlát hans fæddi hún son þeirra, á sama sjúkrahúsi sem hann hafði lifað sínar síð- ustu stundir. Hún gat ekki varizt gráti, þegar hjúkrunarkona lyfti drengnum upp, svo hún gæti séð hann. — Hann er lifandi eftirmynd föður síns, sagði hún. — Ég vona að pabbi geti séð hann núna og brosað til hans. — En, bætti hún svo við, — h«nn er ekki líkur honum.að öllu leyti, hann hefir ekki eins stór eyru. POPPI Framhald af bls. 12. bindinu hans. Það var áreiðan- lega langfallegasta bindið í allri borginni. Það var hálfpartinn til að leyfa heiminum að sjá bindið, að hann kom til Platia Omo- nia. Hann var líka að leita að góðri mynd. Kostas stóð á miðju torginu. Fólkið streymdi fram hjá hon- um. Blómasalarnir voru farnir að taka saman hafurtask sitt. Hann horfði ekki á Lycabett- pus, hæðina í miðri borginni. Efst á hæðinni var kirkja. Hann sá ekki heldur sólina setjast á bak við Parþenon. Hvaða mynd ætti hann nú að sjá? Átti hann að sjá glæpa- mynd eða söngleik? Það var 34 VIKAN 37. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.