Vikan


Vikan - 13.04.1972, Page 31

Vikan - 13.04.1972, Page 31
VEKIÐ EKKI SOFANDI BjÖRN SMÁSAGA EFTIR NILS PARLING Og nú var það grábjörn, sem þeir leituðu að. Þeir komu hingað eftir götustígnum mínum frá aðalveginum og vildu, að ég hjálpaði þeim við að vekja bjarndýr, sem þeir svo að segja höfðu keypt fyrirfram ... ■mm 11111 , I I 'v S ' s : Traustlega byggður bjálkakofi með rúmfletum og stríðhærðum skinn- ábreiðum. Á borðinu reykt elgs- læri, rýtingi stungið í þykkasta kjötbitann eins og skrautpinna. Rjúkandi svart kaffi eða glas af sterku „Ever Clair“, til að taka saltbragð- ið af kjötöinu. Þetta er meira en nauð- þurftir lífsins. Þetta er veizla. Og fyrir þessu gestgjafi, sem er reiðu- búinn til að skýrafrá óralangri reynslu sinni sem veiðimaður hérna í auðninni. Óli gamli Jansen, fornmaðurinn norski við Kathleen-vatn í landamærafjöllunum milli Kanada og Alaska. — Sem sagt, drengir. Þið getið aldrei treyst honum. Hann er duttlungafullur, bráður og reiðigjarn. Og sérstaklega ef hann er truflaður eftir að hann er lagztur til dvalar fyrir veturinn ... Heima í gamla daga var til málsháttur... Og eins og með þennan hérna ... „Þessi hérna" er hlutur, sem hann sæk- ir inn í skáp í litla svefnskálanum. Hrjúf- ar og veðurbarðar hendur hans snúa hlutn- um til og venda, til að sýna hann betur. Hrukkótt andlitið er óvenjulega alvarlegt, dapurlegar minningar varpa skugga á sæ- blá augu hans. Lampaljósið varpar beingulum bjarma á hauskúpuna í höndum hans. Tveggja tommu langar höggtennurnar skína ó- hugnanlega. Svartar augntóftirnar gína tómlega mót gestunum, sem skjálfa af æsingi. — Hauskúpa af morðingja, heldur gamli veiðimaðurinn áfram og lætur þykka nögl vísifingurs fylgja margra millimetra djúpri skoru í ennisbeini hauskúpunnar. — Og þarna sjáið þið, hve tilgangslaust er að reyna að skjóta í hauskúpuna að fram- an, ef vinkillinn er of stuttur. Eins og kom fyrir annan þeirra þeirra. Kúlan kom skáhallt og rauk í burtu... Jæja, ég skal segja ykkur söguna ... Hann leggur glottandi grábjarnarhaus- kúpuna á borðið við hlið elglærisins. Lyft- ir glasinu til að fá sér smásopa. Tekur fram tóbaksdósina, bankar í hana og læt- ur vænan skammt í stórgert nefið. Mað- urinn er áttræður, en innan þykkra var- anna má sjá allsendis óskemmdar tennur, þó að svo virðist sem yfir þær hafi verið strokið með þjöl allt niður að tannholdi. — Já, strákar. Það var málshátturinn, já. Vekið ekki sofandi björn! Og það er svo sannarlega rétt. Óhjákvæmileg þögn meðan hann treður tóbaksdósinni í buxnavasann og þurrkar biún tóbakskorn af hökunni. Beingul hauskúpan á hrjúfri borðplötunni fær ó- blítt augnatillit. Síðan: —• Þeir komu hingað frá Reddings við Sacromento-ána í Kaliforníu. Það var fyr- ir fimm árum... Það verða fimm ár í næsta mánuði. Tom Bradley hét annar. Hann átti plastverksmiðju. Kunningi hans hét Ernie Thompson, og hann átti víst bílaverkstæði þarna niðurfrá. Báðir voru þrautreyndir veiðimenn, eftir því sem þeir sögðu sjálfir. Maður hefði getað hald- ið að þeir hefðu með vopnum sínum út- rýmt öllum elgsdýrum úr Klettafjöllum, ef trúandi var afrekssögum þeirra. Verk- smiðjueigandinn hafði þar að auki skotið bjarndýr. Svart! Drottinn minn, drengir! Samanborið við Old Efraim, grábjörninn, má segja, að sá svarti sé sára meinlaus eins og úrkynjaður Nýfundnalandshund- ur, og heldur ekki ýkja stærri. Og nú var það grábjörn, sem þeir leituðu að. Eyddu 500 dölum í leyfi, því að grá- bjarnaóhræsið er friðað ... nema í sjálfs- vörn... og stjórnin ein veitir leyfin. Og svo komu þeir hingað eftir götustígnum mínum frá aðalveginum og vildu að ég hjálpaði þeim við að vekja bjarndýr, sem þeir svo að segja höfðu keypt fyrirfram af slægum Indíána í Klukshu, gamlan grá- björn, sem Indíáninn vissi af í híði nokkr- ar mílur uppi í fjallinu hinu megin við Kathleen-vatnið. Indíáninn hafði sjálfur engan áhuga á að fara með þeim. Rauðskinnarnir hafa kannski ekkert orðatiltæki eins og ég sagði ykkur frá, en þeir vita alveg, hvað þeir gera. Og þeir ganga ekki til móts við dauðann, nema þeim sé þvingað til þess. — Þeir komu hingað um miðjan dag og voru yfir nóttina. Ekki vantaði hvatningar af þeirra hálfu, og þeir sögðust vera góðir v eiðimenn, báðir tveir. En ég neitaði. Ég var farinn að eldast og vildi ekki þvæl- ast út í ónauðsynleg ævintýri. Þar að auki var ég með nokkrar fellur norður með ánni. Ég sagðist verða að passa mitt, því að fjallfressinn er alltaf á kreiki og Framhald á bls. 39. 15. TBL. VIKAN 31

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.