Vikan - 13.04.1972, Page 36
stereo5000
STEREO-magnari og útvarp með FM, MW,KW OG
LW bylgjum.Utspilun 1x30 music watts, for-
magnari fyrir Magnentic og kristal pic-up.
Tónbrenglun minni en 0,3% og tónsvið 15 -
40.000 HZ rið, bassa og diskant tónstillar.
Kaupið aðeins vandaða vöru. Sérstaklega þeg-
ar um er að ræða t.d. ferðaviðtæki, segulband
eða sjónvarp. Og síðast en ekki síst STEREO-
hljómtæki. Vandið valið. Komið og kynnist
vörum frá ITT SCHAUP-LORENZ.
Ódýrt en vandað.
Verzlunin
Garðastræti 11 sími 20080
hendinni ok sagði henni að
Barbara systir hennar hefði
ásakað hana fyrir að hafa eitr-
að fyrir Charles Blanchette. Og
það stóð ekki á viðbrögðunum:
Bettina ásakaði þá systur sína
um að hafa ráðið Leonard Day
af dögum. Lögregluforinginn
sagði þeim ekki hvað hefði
komið í ljós viðvíkjandi morð-
inu á Leonard Day, svo syst-
urnar, sem voru alls ekki und-
ir þetta búnar. gáfust upp og
játuðu á sig morðin.
Við réttarhöldin um haust-
ið 1960 sagði verjandi systr-
anna að þær hefðu meðgengið
svona fljótt, vegna þess að þeim
hefði verið lofað að þær yrðu
ekki dæmdar til dauða.
Þegar Bettina sagði frá því
að eiginmaður hennar hefði
keypt arsenikið í Dublin, var
fljótlega, með aðstoð lögregl-
unnar í Dublin, haft upp á lyf-
salanum, sem seldi eitrið. Hann
var yfirheyrður i Belfast og
leiddur þar sem vitni. Hann
hafði fengið að velja á milli
þess að koma til Belfast eða
að vera kærður fyrir eitur-
lyfjasölu og sviptur lyfsala-
leyfi.
Kviðdómendur voru sam-
mála, systurnar voru sekar um
bæði morðin. Ef Leonard Day
hefði lifað, hefði hann verið
dæmdur meðsekur, þar sem
hann vissi til hvers átti að
nota arsenikið.
Það varð aldrei fullkomlega
ljóst hvort lögreglan hefði lof-
að tvíburasystrunum vægari
dómi, en dómarinn gaf þá
skýringu að hann áliti lífstíð-
arfangelsi nægilega refsingu.
20. desember árið 1970 var
Barböru og Bettinu Prentiss
sleppt úr haldi og þá voru þær
um fertugt. Þetta skeði með
mestu leynd, en þeim var
sleppt fyrir góða hegðun i
fangelsinu.
Það var ekki f.yrr en um
áramót að fréttin um náðun
þoirrn komst í hámadi. Þá
losnaði kona, sem vaf sam-
l'angi þeirra, úr haldi og hún
sagði frá því að Prentisssystr-
unum hefði verið sleppt og þá
stóð ekki á þvi að eltingarleik-
ur blaðamannanna hófst. Það
varð keppikefli hjá þeim að ná
til systranna og fá þær til að
segja sögu sína. Fréttamenn
eltu þær um London en höfðu
ekkert upp úr krafsinu og i
Liverpool hurfu öll spor. í Bel-
fast var enginn sem vissi um
þær, enda áttu þær enga ætt-
ingja þar lengur.
Það var mikið um þetta rætt.
en enginn veit hvar Prenitss-
systurnar eru niður komnar.
Margir hafa haldið því fram
að þetta mál sé táknrænt upp
á það að nauðsynlegt sé að við-
halda dauðarefsingu. Þarna eru
konur sem gert höfðu sig seka
um hræðileg morð og eftir tiu
ára fangelsi er þeim sleppt og
þær geta byrjað nýtt líf, gift
sig og hafið glæpaferil að nýju.
Aðrir taka málstað systranna
og bera þá spurningu fram,
hvernig aðrir hefðu hagað sér,
ef þeir hefðu verið i sporum
þeirra.
☆
AST HENNAR VAR
AFBROT
Frtnrilwlcl tif blx. .7.7.
vindlingastúfum. Það hafði
enginn tekið á móti henni við
lestina. Hún horfði leitandi i
kringum sig.
Gérard hlaut að koma. Hún
gat ekki afborið einnianaleik-
ann lengur. Húti laut höfði, þeg-
ar hún gekk út úr stöðvarbygg-
ingunni. til að losna við að sjá
að enginn var þar. Hún nam
staðar á gangstéttinni, án þess
að líta upp og beið þess að hlý
hönd snerti öxl hennar og hristi
hana upp af martröðinni.
Þannig stóð hún lengi og beið.
Að lokum tók hún töskuna
sína og gekk að leiguhíl
36 VIKAN 15. TBL