Vikan


Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 34

Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 34
KLAPPARSTIG 25-27 SIMI 22675 STJÖRNUSPÍ ______. HBÚTS- MERKIÐ 21. MARZ- 20. APRÍL Segðu viðkomandi und- andráttarlaust hvaða skilyrði þú setur, annars verðurðu endalaust óánægður. Taktu óskir fjölskyldunnar til greina, áður en þú tek- ur endanlega ákvörðun. NAUTS- MERKIÐ 21. APRÍL- 21. MAÍ Leitastu við að ljúka því, sem ekki hefur unnizt tími til að und- anförnu; nýju viðfangs- efnin geta beðið þar til i næstu viku. t>ú hefur skyldum að gegna sem þú getur ekki hlaupizt frá. TVÍBURA- MERKIÐ 22. MAI— 21. JÚNÍ Það er meiri likur á að vel fari ef þú heldur fast við þína fyrri stefnu. Hafðu skyldur þínar vel í huga, er þú ræðst í framkvæmdir. Þú verður að bæta fyrir brot kunningja þíns. KRABBA- MERKIÐ 22; JÚNÍ— 23. JÚLÍ Nú er rétti timinn til að gera samninga og taka ákvarðanir. Stjömuaf- staðan sýnir að þótt þú sért fremur ragur þá rætist úr fyrir þér. Það greiðist furðanlega úr flækju sem valdið hefur áhyggjum. LJÓNS- MERKIÐ 24. JÚLÍ— 24. ÁGÚST Upp á siðkastið hefur þér gengið illa að sam- ræma tilfinningarnar og skyldustörfin. Þú ert óánægður með starf þitt; en þú breýtir ekki til aö sinni. Þú verður fyrir margvíslegum truflunum. MEYJAR- MERKIÐ 24. ÁGÚST- 23. SEPT. ð Vikan verður fyrirhafn- arlítil. Þínir nánustu verða sammála ráða- gerðum þínum og hjálpa þér dyggilega við að koma þeim í fram- kvæmd. Starfsfélagi þinn reynist þér ekkl eins tryggur og æski- legt væri. VOGAR MERKIÐ 24. SEPT.- 23. OKT. Dragðu ekki lengur að hefjast handa við loka- framkvæmdirnar; því þú lýkur undirbúningn- um í vikunni. Leitaðu aðstoðar sérfróðra manna. Settu þér ekki of mikiö fyrir. DREKA- MERKIÐ 24. OKT.- 22. NÓV. Leggðu áherzlu á að vera sem þægilegastur, einkum hvað snertir þá sem þú umgengst mest. Þú skalt ekki fara kæru- leysislega með eigur þínar. Ættingjarnir leita ráða hjá þér. BOGMANNS- MERKIÐ 23. NÓV.- 21. DES. Allt ætti að geta verið eins og bezt er á kosið, ef þú hefur sinnu á hlutunum. Nýjar hug- myndir gætu létt þér störfin. Það sem þú framkvæmir fyrri hluta vikunnar gæti orðið af- bragðsgott. STEIN- GEITAR- MERKIÐ 22. DES.— 20. JAN. Þú ættir að hefjast handa, þegar í stað, áð- ur en aðrir gripa gæs- ina. Vandaðu vel allan undirbúning svo verkið gangi örugglega. Yfir- menn þínir eru ekki allskostar ánæðir með nýjustu tillögu þina. VATNSBERA MERKIÐ 21. JAN.— 19. FEB. Gefðu þeim sem þér er lítið um engan kost á þér; þú getur verið vin- gjarnlegur, án þess að vingast beint við þá. Þú getur reiknað með alls kyns hindrunum, en þær eru sem betur fer yfirstiganlegar. FISKA- MERKIÐ 20. FEB.— 20. MARZ Þú hefur sjálfur kom- izt að eigin niðurstöðu og fetar nú örugglega að settu marki. Þú átt langt og merkilegt ferða- lag fyrir höndum. Þú átt náin samskipti við margs konar fólk. 34 VIKAN 24. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.