Vikan


Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 8

Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 8
Þess hefur víða sézt vottur að undanförnu, að áhugi á trúmál- um fer stöðugt vaxandi. Margir spá því, að nú sé í uppsiglingu ný trúarvakning, sérstaklega meðal ungs fólks. Sú stólræða, sem einna mesta athygli vakti á liðnum vetri, var ræða, sem séra Emil Björnsson flutti 19. marz síðastliðinn í kirkju Óháða safnaðarins. Henni var útvarpað og því hlustað á hana um land allt. Séra Emil fjallaði meðal annars um friðþæginguna og talaði af einurð, skynsemi og fullri hreinskilni, sem hefur fundið almennan hljómgrunn hjá fólki. Hins vegar heyrðust örfáar hjáróma raddir, meðal annars ein í Pósti Vikunnar. Sá bréfritari byrjaði á því að skýra frá, að hann hefði alls ekki lilustað á ræðuna, en taldi sig engu síður þess um- kominn að fjalla um hana með stóryrðum og ókurteislegu orð- bragði! Margir lesendur hringdu í okkur og mótmæltu þessu bréfi. Einn stakk meðal annars upp á því, að við birtum ræðu séra Emils í heild, ekki eingöngu til að afsanna ummæli bréfritarans, heldur einnig vegna ágæti ræðunnar sjálfrar — með hliðsjón af þeim mikla áhuga á trúmálum, sem nú er ríkjandi. VIKAN leitaði til séra Emils Björnssonar og fékk góðfúslegt leyfi hans til að birta ræðuna. Fer hún hér á eftir. G. Gr. HIN EONLEGA JESÚBYLTING Eftir séra Emil Björnsson Jesús er vissulega frelsari mannanna, hann hefur leyst allt mannkyn úr fötrum. Hann lagði nýjan mælikvarða á allt í mannheimi og sá mælikvarði er og verður maðurinn sjálfur sem guðsbarn. Það var og er hin eiginlega Jesú- bylting, mesta bylting, sem gerð hefur verið á þessari jörð ... Vei yður fræðimenn og farisear, þér hræsnarar, þér gjaldið tíund af myntu, anís og kúmeni, en skeytið eigi um það sem mikil- vægara er I lögmálinu; réttvís- ina, miskunnsemina og trú- mennskuna En þetta bar að gjöra og hitt eigi ógjört að láta. Þér blindir leiðtogar, sem síið mýfluguna en svelgið úlfaldann. (Matt. 23. 23—24). Hér talar Jesús frá Nasaret í þrumuræðu sinni í 23. kapitula Mattheusarguð- spjalls tæpitungulaust, eins og hann ávallt gjörði, um þá skammsýni og dómgreindar- skort allra tíma, að ekki sé sagt hræsnishneigð, að gera aukaatriði að aðalatriðum en gleyma því mikilvægasta. Það hvarflar æ oftar að oss hvort því sé eigi líkt varið með oss kristna menn, og þá sem Jesús var að ásaka fyrir að þeir skeyttu eigi um hið mikil- vægasta í lögmálinu, síuðu mý- fluguna en svelgdu úlfaldann. Ef vér skiptum aðeins um hugtök og setjum orðin „kenn- ing Jesú“ í staðinn fyrir orðið „lögmál“, þá skýrist það sem fyrir mér vakir og þá hljóðar texti minn svona: Vei yður, þér sem hafið hrúgað upp kenni- setningum í aldanna rás í nafni stofnunar, sem þér kennið við Krist en skeytið eigi um það sem mikilvægara er, and- ann og innihaldið í kenningu þess manns, sem trúin er þó kennd við, réttvísina, miskunn- semina og trúmennskuna sem hann boðaði. Það er oft sagt að menn verði þröngsýnni með aldrinum, en í rauninni ætti lífsreynslan að gefa menn víðsýnni. Þá hefur gefizt yfirsýn til að greina ein- inguna í fjölbreytni fyrirbær- anna og til að hafa það sem sannara reynist. Og þá standa oft eitt eða tvö meginatriði eft- ir og uppúr, þar sem upphaf- lega var frumskógur fyrirbæra. Þegar litið er yfir farinn veg er það eitt eftir, sem staðizt hefur dóm reynslunnar, menn, hugsjónir, kenningar, bænir, listaverk og mannvirki. Það, sem ekki stóðst prófið, er horf- ið eða gleymt. Þeim mun dýr- mætara verður það sem eftir stendur. Sannur vinur, minning góðs manns, hugsjón eða trúar- vissa, ljóð ljóða eða bæn bæna. Ég lærði til dæmis sem lítill drengur margar bænir, sem ég kann allar ennþá, en aðeins ein þeirra er allar stundir efst í huga mér og oft fer ég með hana upphátt. Ég veit ekkert eftir hvern hún er, en hún er svona: Ó minn Jesú elskulegi alla mína neyð þú sér leið mig ávallt lífs á veginn ljós af himnum sendu mér svo að ekkert megna megi mig að villa burt frá þér. Hafa ekki margar kreddur eftirkomenda Jesú Krists, og kirkjukenningar, beinlínis skyggt á bjarta ljósið í kenn- ingu hans, hefur ekki hið mik- ilvægasta týnzt og aukaatriði, sem viðtekin hafa verið sem að- alatriði, staðið löngum sem veggur milli fólksins og hans, sem átti þó greiðastan aðgang að hjörtum fólks meðan hann gekk í kring, kenndi og gerði gott. Aldrei hefur verið nauðsyn- ’egra en nú að brjóta niður þennan vegg, sem vér höfum reist milli hans og vor. Og þeg- ar þetta er fullyrt er bæði tekið tillit til þess hve brennandi spursmál það er fyrir nútíma- manninn að þekkja mannsins son og eiga hann að, og eins er höfð hliðsjón af því að margar kenningar kirkjunnar um Jesú eiga eins lítinn hljómgrunn í hjörtum nútímafólks og hans raunverulegi boðskapur í guð- spjöllunum á ríkan hljómgrunn í oss enn í dag og alla daga. Vér skulum þá fyrst hugleiða megindrættina í kenningu Jesú sjálfs, en grunntónar hennar eru þessir: Guð er kærleikur, lífið er sterkara en dauðinn, lífið er i Guði, allt, sem í hon- um er, ber neista eilífs lífs, en það, sem ekki er í nonum, ber dauðann í sér. Þess vegna er mikilvœgast af öllu að hafa lífssamfélag við hann og það samband, eða farvegur, nefnist bæn og líf í miskunnsemi, rétt- vísi og trúmennsku. Með bæn hleðst einstaklingurinn lífs- mögnum þeim, sem alveran geislar út frá sér. Jesús leggur höfuðáherzlu á að allir séu jafnir fyrir Guði, Guðs börn, og hann kallar höfund lífsins föður —- til að tákna hina nánu og persónulegu kærleiksafstöðu hans til vor, hvers einstaks, og fyrir góðum föður er ekkert barnið rétthærra en annað. Þarna er bá jöfnuðurinnbræðra lagið, réttlætið og kærleikurinn samankomin, megindrættirnir í kenningum Jesú frá Nasaret, 8 VIKAN 24. TBL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.