Vikan


Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 39

Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 39
Dögg skreytir við öli tœkifœri Dögg sendir blómin um allan heim Dögg hefur opið alla daga og öll kvöld Blómabúdin Dögg Álfheimum 6 sfmi 33978 fálkinn sjálfur var horfinn hvort sem þa& var af þvi, að hat:;' hafði látið ginnast af nýrri bráð, eða hann hafði verið að forðast leirkelduvatnið, eða þá að hann hafði látið hefjast á loft af einhverjum dutlungum, - en til einskis var hans leitað, til einskis var kallað á hann með fallegustu gælunöfnum og til einskis voru hornin þeytt, svo að ómarnir buldu á hverri hæð og hnúk. Herra Enguerrand sló yfirfálkarann á munninn með rauða hanzkanum, svo að blæddi. og reið heimleiðis yfir móana á harða spretti, og varirnar herptust enn fastar saman en venjulega og augnalokin sigu enn dýpra niður yfir sjáöldrin, sem varla hreyfðust - og fálkinn fannst ekki. En Renaud fann hann - flæktan á fótreiminni i villirósarunni. Hann bærðist ekki og beið hungurdauðans með föstu taki um eina greinina, annar vængurinn lafði, en hinn var hafinn til flugs, eins og af þráa. Hann teygði mjóa höfuðið ógnandi fram á við, með uppglenntum augum og hvössu nefi, - hann var fallegur þarna innan um blóðrauð berin. Hönd Renauds skalf af ákafa, þegar hann greiddi reimina úr þyrnunum og bjöllurnar og hringurinn með merki herra Enguerrands glömruðu við fingur hans, og hann æpti upp af gleði. þegar oddhvassar klærnar læstust inn i sinaberan handlegginn, og hann var orðinn fálkinn hans, fálkinn með breiðasta brjóstið og lengstu vængina og þóttafyllstu augun, sem voru eins og glóandi gull. Hann var fálkinn hans þvi fremur, sem Renaud gat aldrei sýnt hann nokkrum manni, þvi að hann vissi, að ströng lög voru sett til að vernda skemmtanir riddaranna. Hann ætlaði að gera búr handa honum i skóginum og læðast til hans nemma á hverjum morgni, áður en fuglinn hefði hrist úr sór hrollinn. og siðan skyldu þeir fylgjast að út yfir heiðina og skyggnast út i hvitleitt himinhvolfið, þeir skyldu verða vinir, meðan að sólin hækkaði og lækkaði yfir höfðum þeirra og vindurinn bæri hinar þögulu hugsanir þeirra meö sér, og fálkinn skyldi aldrei sakna rauða hanzkans né perluskreyttu hettunnar. Hann batt fálkann aftur og hljóp i flýti niður að tjörninni og kom svo von bráðar með önd, sem hann hafði rotað með steini, og fálkinn tók við henni, og hjarta Renauds varð altekið af fögnuði, þvi að þetta var tákn þess, að fálkinn fyrirliti hann ekki og vildi verða fálkinn hans. Og hann varð fálkinn hans. Hann teygði höfuðið fram og hlustaði með rólegum, vakandi augum, þegar greinarnar, stökkar af frosti, brustu undir fótum Renauds i morgunkyrrðinni. Hann stökk léttilega niður úr búrinu og teygði sig eftir hendi hans og baðaði vængjunum út, eins og hann ætlaði að fljúga, en hann gerði það ekki, - hann minnti aðeins á, að hann gæti það - og siðan flýttu þeir sér út á heiðaflæmin, sem morgunbjarminn var að færast ýfir. Þeir skimuðu hvössum augum um dumbrauðan himininn. Svartir ásar og lauflausir runnar iágu umhverfis þá, og trén sváfu með greinarnar þungar af þögulum fuglum. En himinninn varð bjartari og bjartari og ljómaði af gulli og purpura, sléttudrögin blánuðu, og uglan straukst fast við jörðina og leitaði að fylgsni, og dagfuglarnir teygðu úr vængjunum og tistu lágt af kulda, og flug þeirra var eins og svartur fleygur i skinandi loftinu. En Renaud og fálkinn hans flýttu sér fram hjá, þvi að þetta voru spörvar og þrestir, en ekki bráð við þeirra hæfi. Niðri við tjörnina flugu hegrarnir þegar á löngu vængjunum sinum gargandi i stóra sveiga, þar var herfang þeirra. Þar var fálkanum slöngvað upp, með brjóstið þanið til flugs og vængina tilbúna að slá, og Renaud sá, hvernig sólin gyllti hann, og stóð með ofbirtu i augum og svima i höfði, meðan að fuglinn hvarf upp i blámann, og heyrði hversu bjölluhljómurinn blandaðist ögrandi saman viö garg hegranria. Þeir snarsnerust, eins og hjól, i skelfingu sinni. Ýmist reyndu þeir að renna sér niður á bakkann og fela þar löngu liálsana og heimsku. óttaslegnu höfuðin með fjaðurskúfunum undir dökkum trjágreinum, eða þá að þeir reyndu i einhverju ráðaleysi að skrúfa sig upp á við, i þeirri von, að breiðu vængirnir bæru þá hærra en óvinurinn gæti komist, og þeir kiknuðu eins og sef i vindi 24. TBL. VIKAN 39

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.