Vikan


Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 17

Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 17
Kissinger i veizlu til heiðurs tónskáldinu Oscari Hammerstein ásamt sjónvarpsstjörnunni Marlo Thomas. OrSrómur um náinn kunningsskap þeirra hófst þá þegar fjöllunum hærra ... „Hegry the Kiss" og Nancy McGinnis, ferrík heimasæta í Washington, sem hann hefur oft sézt með. Louis Kissinger búa þar ennþá. Louis fékk sér minniháttar skrifstofustarf og vann fyrir brauði fjölskyldunnar i sveita sins andlitis — siðar varð hann yfirbókari — en sonurinn ákvað að verða alger Bandarikjamaður, enda virtist það vænlegra til frama. 1941 útskrifaðist hann með ágætiseinkunn úr New Yorker High School. Sama ár voru fjörutiu og átta munaðar- laus börn frá Furth drepin með gasi i einúm dauðabúðum nasista, ásamt kennara sinum dr. Isaac Hallemann. Skömmu siðar kynntist Adolf Heinz, sem nú hafði breytt nafni sinu i Henry, snoturri stúlku þýskri, þá átján ára að aldri. Hún hét Anna Fleischer. Henry leitaði sér að atvinnu, þar eð hann var staðráðinn i að kvænast önnu. Hálft annað ár starfaði hann hjá skipaafgreiðslu með fjörutiu og tvo dollara iiVÍkuiaun.Skrifstofan þar sem hann vann var við höfn- ina i New York, og mátti Henry þar oftsinnis standa i argaþrasi við gagnnjósnaþjónustuna, þvi að þótt Þjóðverjar litu á hann sem Gyðing, þá voru Bandarikjamenn ekkert á þvi að bakka með það að íann væri Þjóðverji. Hann fékk kki rlkisborgararétt i Banda- Ikjunum fyrr en 1943. Samtimis 'ar hann kallaður i herinn. Eftir .kamma þjónustu I ótgönguliðinu var hann tekinn i *agnnjósnaþjónustu hersins, CIC. Henry fylgdist með innrásar- herjum bandamanna inn i Frakkland og hafði það hlutverk að yfirheyra fyrrverandi landa sina, sem Bandarikjamenn tóku til fanga. Hann kom aftur til föðurlandsins yfir landamærin hjá Aachen og var rétt fyrir striðslokin skipaður yfirmaður hernámsliðsins i Krefeld. 1946 sagði hann skilið við herinn, þá orðinn höfuðsmaður, og hóf nú nám I mannkynssögu og stjórn- málum við Harvard-háskóla. Hann stóðst öll próf með ágætum og útskrifaðist með nafnbótinni dr. phil. Hann átti nú visa glæsta framabraut sem visindamaður. 1 einkalifinu gekk honum ekki eins vel. 1949 hafði hann kvænst Önnu Fleischer, en þau skildu. Þau eignuðust tvö börn, Elisabeth og David. Astæðan til skilnaðarins mun einkum hafa verið sú, að Henry hafði einfaldlega of litinn tima fyrir konuna sina. Skilnaðurinn átti áer stað 1964. Henry Kissinger var þegar hér var komið sögu orðinn prófessor við Harvard og hörundur frægra bóka, sem fjölluðu um kjarnorku- vopn, stjórnmál og samskipti stórvelda. Þau ritstörfNjfluðu honum sliks álits að hann var skipaður ráðgjafi stjórnarinnar. MeÖ Joyce Haber Cramer á Þakkarhátíðinni 1971. Sem slikur þjónaði hann repúblikananum Eisenhower, siðan demókratanum Kennedy og gerir nú slikt hið sama fyrir repúblikanann Nixon. Kissinger hefur skrifstofu sina fast hjá herbergjum forsetans. Hann getur náð fundi voldugasta manns Vesturlanda hvernær sem hann vill. Sú aðstaða — og áreiðanlega einnig hans þýsk- gyðinglegi uppruni — aflaði honum lengi vel ótal öfundar- manna, og gerir kannski enn.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.