Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 28
SUMARGETRAUN
VIKUNNAR1972
Getraunin verður i fimm blöðum. Þegaröllfimm blöðin eru komin
— ekki fyrr— sendið þið lausnirnar til VÍKUNNAR,
PÓSTHÓLF 533, REYKJAVÍK og merkið umslagið „Sumargetraun”
EKKI MÁ OTIGRILLIÐ vanta f sumarleyfimi, hvort sem menn
eyöa þvi i tjaldi eöa sumarbústaö. Fimm útigrill eru meöal
vinninga I Sumargetraun Vikunnar. Þau eru vestur-þýzk og fást
í Tómstundahúsinu, Laugavegi 164. Um tvær geröir er að ræða.
Annað hentar sérstaklega vel i útilegu, þar sem hægt er aö
leggja þaö saman, þannig aö þaö er ekki fyrirferöarmeira en litil
taska. Hitt er einnig hægt aö leggja saman, en ekki eins mikið,
og hentar bezt heima við eða i sumarbústaö.
VINNINGAR:
1. Háfjallaferð fyrir tvo með Guðmundi Jónassyni.
2. Chopper-reiðhjól frá Fálkanum. 3.-4. Einndagur iLaxáiKjós.
5.-14. Veiðistöng og veiðihjól frá Sportval.
15.-17. Vindsæng frá Sportval. 18. Tjald frá Belgjagerðinni.
19. Svefnpoki frá Belgjagerðinni. 20. Bakpoki frá Belgjagerðinni.
21. Hitatæki frá Þórði Sveinssyni og Co.
22.-26. útigrill frá Tómstundahúsinu.
CHOPPER-REIÐHJOL er annar aöalvinningurinn Hér er um
mjög óvenjulegt og nýstárlegt reiöhjól aö ræöa, sem framleitt er
i Bretlandi, en fæst hér á landi i Fálkanum. Chopper er meö
girskiptingu, frá þremur og upp i fimm girum, og auk þess er
sætiö og stýriö mjög frábrugöiö þvi, sem er á venjulegum
reiöhjólum. Þaö er ekki nema rúmt ár, siöan Chopper kom á
markaö erlendis og aöeins fáeinir mánuöir, siöan þau fóru aö
sjást hér á landi. Nú dreymir alla krakka um aö eignast
Chopper-hjól, enda er eftirspurnin eftir þeim svo mikil, aö
verksmiöjurnar hafa ekki undan. í Sumargetraun Vikunnar er
tækifæri til aö eignast Chopper-reiöhjól - ef heppnin er meö.