Vikan


Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 33

Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 33
QUINTESSENCE HALDA HLJÓMLEIKA í DÓMKIRKJU Það var víðar en hér á ís- landi sem poppað var í kirkjum um páskana. í Norwich á Eng- landi hélt hljómsveitin Quin- tessence hljómleika í dóm- kirkjunni á staðnum og voru þeir teknir upp fyrir sjónvarp, að viðstöddum 2000 manns. Quintessence er hin fullkomna hljómsveit til að leika í kirkj- um og reyndar hverskonar bænahúsum, þar sem tónlist þeirra er hátíðleg og trúarlegs eðlis; spannar yfir svo gott sem öll trúarbrögð. Að sogn voru þessir „hljóm- leikar“ reyndar meira guð- þjónusta en hljómleikar og mun stemmningin í kirkjunni hafa verið með eindæmum góð. Bekkirnir höfðu allir verið fjarlægðir og fólk sat á gólfinu með krosslagða fætur. Á svið- inu léku sér lítil börn að fall- egum bjöllum, blómum og þess- háttar, íklædd skrautlegum kirtlum, og sagði til dæmis Framhald á bls. 44. John, Yoko og Elephant's Memory, sem John segir eiga beztu rokkhljómsveit í heimi. LENNON MEO NÝJA PLÖTU Tvær LP með honum, Yoko, Frank Zappa og fleirum, m.a. nýju hljómsveitinni hans, Elephant’s Memory John Lennon hefur ekki ennB lagt upp í hnattreisu sína, endaB hefur nóg verið að gera hjaj honum. Meðal annars hefur ? hann verið að æfa með nýju hljómsveitinni sinni, Elephant’s Memory, en það er hljómsveit sem til var áður og töfraði Lennon er hann heyrði í þeim í sjónvarpsþætti vestanhafs ekki alls fyrir löngu. Hafa allir aðilar látið í ljós fádæma hrifn- ingu með samstarfið og meðal annars var haft eftir einum meðlim hljómsveitarinnar að John væri með „raunveruleika og lífsdellu", og að þeir vildu gefa fólki ,,up-vibes“, not down-vibes“. Double- albúmið sem á að vera komið á markaðinn núna, er með „live“-upptökum á annarri plötunni, og er á þeirri fyrri upptaka frá Fillmore East í New York, þar sem þau John & Yoko komu fram með Frank Zappa & Mothers of Invention og hinum megin eru hljómleik- ar sem haldnir voru í London árið 1969, en þar kom Lennon fram með mönnum sem allir þekkja: George Harrison, Billy Preston, Eric Clapton, Keith Moon, Delaney & Bonnie og Klaus Voorman. Heil plötusíða er tileinkuS hljóm- leikum þeim sem Lennon kom fram á ásamt Frank Zappa. Á hinn plötunni eru 10 lög, öll hljóðrituð á „venjulegan" hátt, í stúdíói. Þar er hann með Elephant’s Memory með sér, en þó hefur hann látið svo um mælt, að þetta sé fullt eins Framhald á bls. 44. 24.TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.