Vikan


Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 16

Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 16
CASANOVA HVÍTA HÚSSINS Bandaríkjamenn dá greind hans og hnífskarpa rökhugsun, en brosa að smámunalegri ná- kvæmni hans og þýzkum áherzlum. Sumir þeirra líta á Dr. Henry A. Kissinger sem undra- verðan vísindamann í stjórnmálum, aðrir sem uppskafning frá Þýzkalandi. En eitt eru allir sammála um: Ráðunautur Nixons í öryggis- málum er stórvinsæll af konum ... ,,Hann veit ekki enn þann dag i dag hvernig kúla fer að þvi að komast út úr hlaupinu á byssu,” sagði Norstad, fyrrum yfirhershöfðingi Nató, um Henry A. Kissinger.- Og þó er þessi maður ábyrgur fyrir meðferð allra öryggismála Bandarikjanna og þar að auki aðalráðgjafi Nixons forseta. Fljótt á litiö virðast ekki mikil tengsli milli Þjóðverjans Adolf Heinz Kissingers, sem fæddist i Mathilderstrasse tuttugu og þrjú i Furth, og Bandarikjamannsins Henrys Kissingers, sem hefur embættisaðsetur á efri hæð hússins Pennsylvania Avenue 1600, er i daglegu tali er nefnt Hvita húsið. Framan af var lifshlaup Adolfs Heinz; sem var i þennan heim borinn 1923, ósköp venjulegt. Honum gekk vel i skólanum og varði fristundunum svo til eingöngu á knattspyrnuvellinum. En þegar nasistar komust til valda i Þýzkalandi, kom heldur betur strik i reikninginn. En foreldrar Adolfs Heinz voru Gyðingar. Faðir hans, sem var yfirkennari við Madchenschule Furth og stóð til að gera að rektor, var neyddur til að fara á eftirlaun aðeins hálffimmtugur aðaldri. Adolf Heinz varð að fara úr sinum miðskóla i annan, sem Gyðingar áttu og ráku. En foreldrarnir, Paula og Louis Kissinger, vildu þó ekki yfirgefa land sitt - ekki ennþá. Þau gátu einfaldlega ekki imyndað sér að þessum þarna Hitler væri einhver alvara með æsingaræðum sinum gegn Gyðingum. Fyrst eftir „Krystalnóttina” skildu hjónin að alvara var á ferðum. „Kristalnóttin” hlaut nafn sitt af þvi að þá braut og bramlaöi nasiskur skrill glugga og varning I verzlunum Gyðinga. Þýð.) Þau fluttu búferlum til Bandarikj- anna, og nutu við það hjálpar • ættingja þar vestra. Fjölskyldán settisl að i Washinfetnn Heights hverfi þvi i New York þar sem einkum búa þýskir Gyðingar. Og Paula og

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.