Vikan


Vikan - 06.07.1972, Blaðsíða 3

Vikan - 06.07.1972, Blaðsíða 3
27. tölublað - 6. júlí 1972 - 34. árgangur & Palladómur um yngsta þing- manninn Áreiðanlega leikur mörg- um forvitni á að vita, hvernig Lúpus skrifar um yngsta þingmanninn, knattspyrnukappann vinsæla, Ellert B. Schram. Þeirri forvitni er hægt að svala með því að fletta upp á blaðsíðu 10. Ballettinn - hin þögla tjáning Vikan brá sér á lokaæf- ingu á balletsýningu Þjóðleikhússins, sem er orðinn árlegur viðburður í starfsemi stofnunarinnar. Þar tókum við fallega myndasyrpu, sem sýnir vel, hvernig ballettinn er hin þögula tjáning hreyfinganna. Sjá bls. 26. 12 milljónir manna, en 300 milljón- ir guða Nepal hefur lengstaf verið lokað land, en sið- ustu tvo áratugina hafa þó samgöngur komizt á við Indland. Við birtum skemmtilega grein um þetta sagnaland, þar sem búa 12 milljónir manna, en hins vegar 300 millj- ónir guða. Sjá bls. 14. KÆRI LESANDI! .JFlestar vændiskonur er að finna meðal virðulegra húsmæðra. Eiginmenn þeirra þræla allan daginn, seint og snemma, fjöl- skyldulíf er lítið, þeir hafa ekki tíma til að njóta þess, en frúrnar gera skgldu sina í rúminu og kvitta þar með fyrir peningaupp- hæðinni, sem þær fá tit heimilis- ins!“ Auðvitað verður þér bilt við, er þú lest þessa setningu, lesandi góður. Hver vogar sér að láta annað eins og þetta út úr sér? Jú, það var fyrirlesari nokkur i Nor- egi, sem gekk alveg fram af áheyrendum sínum, er hann sagði þetta. Þetta eru vissulega stór orð, en samt leynist í þeim ofurlítill vís- ir að sannleika; það er í þeim broddur, sem svo sannarlega get- ur stungið illilega, þegar talað er um peningamálin. Þau geta orð- ið mörgum erfið, ef ekki er litið á þau frá skynsamlegu sjónar- miði. Við ræðum ekki þetta umtals- verða efni, hjónabandið og pen- ingamálin, nánar hér, en bend- um á greinina: Mínir peningar, þínir peningar, okkar peningar. Hún er á bls. 18. EFNISYFIRLIT GREINAR______________________________bls. Olían býður heim útrýmingu Indíánanna 8 Velþóknun hans á Sjálfstæðisflokknum mun sama eðlis og tryggð hans við KR. Palla- dómur um Ellert B. Schram, alþingismann 10 Nepal, sagnalandið, þar sem búa 12 millj- ónir manna, en 300 milljónir guða 14 Það skaðar ekki að systkini rífist; þáttur um uppeldismál í greinaflokkinum Við og börn- in okkar 16 Mínir peningar, þínir peningar, okkar pen- ingar, — grein um peningana og hjónabandið 18 ÝMISLEGT_________________________________ Hin þögula tjáning, myndasyrpa frá sýningu Ballettskóla Þjóðleikhússins 26 Leiðin að velheppnuðum bakstri, Eldhús Vikunnar; umsjón: Dröfn H. Farestveit, hús- mæðrakennari 24 Lestrarhesturinn, lítið blað fyrir börn; um- sjón: Herdís Egilsdóttir, kennari 47 SÖGUR María, smásaga eftir Thomas Kragh; þýð- andi: Árni Hallgrímsson; myndskreyting: Sigurþór Jakobsson 12 Natasja, framhaldssaga, 7. hluti, sögulok 20 I húmi næturinnar, framhaldssaga, 9. hluti 34 FASTIR ÞÆTTIR Pósturinn Síðan síðast í fullri alvöru Mig dreymdi Heyra má Krossgáta Stjörnuspá Myndasögur 4 6 7 7 32 50 31 42, 46, 49 FORSÍÐAN Þeir hafa skellt bakpokanum aftan á sig, stigið á bak reiðhjólinu og eru lagðir af stað út í guðs græna náttúruna. Og hver vildi ekki vera í spor- um þeirra? VIKAN Útgefandt: Hilmir hf. Ritstjórt: Gylfi Gröndal. Blaöamenn: Dagur Þorleifsson. Matthildur Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: Sigriður Þorvaldsdóttir og Sigriður Ólafsdóttir. — Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð i lausa- sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu- blöð ársfjórðungslega eða 1100 kr. fyrir 26 blöð misserislega. Áskriftargjaldið grelðist fyrirfram. Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, mai og ágúst. 27. TBL. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.