Vikan


Vikan - 06.07.1972, Blaðsíða 22

Vikan - 06.07.1972, Blaðsíða 22
◄c honum að móðir hans væri lát- in. Hann átti heimtingu á að vita það. Ég sagði honum að hún hefði látizt af slysförum. Að lokum gat ég komið hon- um í rúmið og sat hjá honum þangað til hann sofnaði. Um níuleytið kom Andrei og kall aði á mig fram á gang. —■ Hvernig á ég að segja Dmitri þetta? — Bíddu þangað til hann er orðinn svolítið hressari og segðu honum svo að þetta hafi verið slys. Hann kinkaði kolli. —• Jean er farinn, sagði hann og svo bætti hann við: — Hvers vegna hafið þér ekki sagt mér að hún var barnshafandi? Spurningin kom mér alveg á óvænt. — Hvernig komust þér að því? — Læknirinn sagði mér það. Hann heldur að Dmitri hafi verið faðirinn og hann sagði að ef Dmitri hafi ekki vitað um það, þá sé bezt að segja honum alls ekki frá því, það auki að- eins við sorgina. En hvers vegna sögðuð þér mér ekki frá því? —- Hverju hefði það . breytt? Hefðuð þér þá komið til að hafa hana á brott með yður og geng- ið barni Jeans í föður stað? Það er auðvelt að tala um þetta eftirá. —- Guð minn góður, hafið þér enga meðaumkun? Skiljið þér ekki neitt? Kom hún ekki til yðar og bað um hjálp? — Ég gerði það sem ég gat. —■ Nema það eina sem hefði dugað. Hvernig haldið þér að mér líði? Hún gekk í dauðann í þeirri trú að ég héldi að hún gæti framið morð. Þessi afstaða hans, eftir þenn- an erfiða dag, gerði mig svo fjúkandi vonda að ég gat ekki einu sinni hugsað skýrt. —■ Hvers vegna ásakið þér mig fyrir yðar eigin vanrækslu? Mér var ekki mikið um Na- tösju gefið, en mér er nú far- ið að skiljast hvernig henni hefur liðið. Hvers vegna kom- uð þér aftur hingað? Hvers vegna létuð þér hana halda að þér elskuðuð hana ennþá, að- eins til að snúa við henni baki? —- Það gerði ég ekki. Það var öllu lokið frá minni hlið, það gerði ég henni fullkomlega ljóst. Það voruð þér sem rákuð hana í arma Jeans. — Nei, það getur ekki verið satt, ég hélt ég væri að reka hana í faðm Dmitris. Það var eins og við gætum ekki setið á okkur, að við yrð- um að særa hvort annað. — Þér vorum um kyrrt til að kvelja hana. er það ekki? spurði ég. — Svo þurftuð þér að hafa eitthvað yður til skemmtunar og ég var svo auðunnin og trúgjörn . . . — Það var alls ekki þannig. Ég ætlaði að segja yður sann- leikann, en svo skeði svo margt og ég fór í burtu, þótt mér væri ljóst hve heimskulegt það var • • ■ En það var eitthvað sem rak mig. — Ó, hve þér hljótið að hafa skemmt yður vel, þér og þessir drukknu vinir yðar, þegar ég kom æðandi á eftir yður, eins og ástsjúk unglingsstelpa. Þér hélduð að ég myndi koma um leið og þér réttuð út höndina. -Ég var drukkinn þessa nótt. Ég man ekki einu sinni hvað ég sagði eða gerði. Ég veit aðeins að ég var búinn að berjast gegn þrá minni eftir yður, í margar vikur, strita á móti löngun minni til að flýta mér til yðar og komast að því hvernig þér . . . En ég hlustaði varla á hann, öll örvæntingin og sársaukinn sem hrannast hafði upp í huga mér síðustu daga, fékk nú út- rás. ■— Haldið þér að nokkuð í heiminum gæti fengið mig til að hlusta á mann sem elskar aðeins aðra konu? Hún er dá- in núna, en hvaða máli skiptir það? Hún mun alltaf standa á milli okkar. Á veiðiferðinni þurfti hún aðeins að líta á yð- ur, þá yfirgáfuð þér mig, án þess að líta um öxl . . . Ég gat ekki haldið áfram, orðin köfn- uðu í kokinu á mér. — Ef þetta er álit yðar, þá hef ég ekki meira að segja. Ég hlýt að hafa verið brjálaður að halda að ég gæti farið til yðar og verið laus við fortíðina. Ég hélt að þetta yrði allt öðruvísi. Mér er nú Ijóst að maður verð- ur sjálfur að bera sínar eigin byrðar, ekki skella þeim á aðra. Fyrirgefið að ég skuli nokkurn tíma hafa dregið yð- ur inn í þetta mál. Mig langaði til að éta ofan í mig hvert orð af því sem ég hafði sagt, en það var of seint. Ég gat ekki neitað því sem ég var búin að segja og hann hafði snúið sér frá mér. Stoltið var eins og múrveggur á milli okk- ar. Hann beið ekki bo.ðanna, hann hneigði sig hæversklega, bauð góða nótt og gekk út úr herberginu. Mig langaði til að kalla á hann, en ég kom ekki upp nokkru orði. Dyrnar lok- uðust að baki hans og mér varð ljóst hvað ég hafði gert. í augnabliks æði hafði ég brotið þann mjóa hlekk sem batt okk- ur saman. Hann hefði kannski getað gleymt með tímanum ... en augnablikið var horfið, ég átti ekkert eftir. Ég varð að fara frá Ara- chino. Ég gat ekki afborið að þurfa að hitta hann daglega. Þegar ég gekk eftir gangin- um fann ég reykelsisilm og heyrði prestana tóna bænir við börur Natösju. Nokkrum vikum seinna fór ég heim til Englands. Þrír mánuðir liðu. Ég reyndi eftir megni að aðlagast litla húsinu í Fulham, þar sem ég varð að sofa í sama herbergi og litlu systur mínar. Olnboga- rýmið var lítið, við vorum sjö: mamma, fimm börn og þjónustustúlka, og mér fannst varla hægt að hreyfa sig. Ég saknaði Arachino ákaflega, stóra hússins, umhverfisins og þagnarinnar. Ég var búin að reyna að fá vinnu í tvo mán- uði og að lokum hafði ég neyðzt til að setja auglýsingu í blað. Það hlaut einhver að þurfa á kennslukonu eða lagskonu að halda. En ég fékk ekkert svar. Svo var það síðari hluta dags að ég lá á hnjánum og var að laga til í skúffunum hjá litlu systrum mínum. Þá kom stúlk- an inn til mín og sagði að það væri herramaður að spyrja eft- ir mér. Ég var í gamla gráa kjólnum mínum og síður en svo snyrtileg. en ég gaf mér ekki tíma til að lagfæra það og flýtti mér niður. Það var Andrei. Hann stóð og sneri baki í dyrnar, var að virða fyrir sér málverkið yfir arninum. Ég var búin að gleyma hve há- vaxinn og axlabreiður hann var, það var eins og hann fyllti út í þessa litlu stofu. Hann sneri sér við, þegar ég kom inn í stofuna og augu okk- ar mættust. Við stóðum graf- kyrr. Svo sagði hann ósköp blátt áfram: — Þetta hlýtur að vera fað- ir yðar, þið eruð mjög lík . . . —- Hvað eruð þér að gera hér, Kuragin greifi? sagði ég og lokaði eftir mér dyrunum. — Ég er hér í viðskiptaer- indum og mig langaði til að heilsa upp á yður. Ég sá að hann virti mig fyr- ir sér og ég skammaðist mín fyrir hve illa ég var til fara og líka yfir fátæklegri stofunni. Þögnin lagðist eins og veggur á milli okkar og ég flýtti mér að segja: —• Það var vingjarnlegt af yður að senda mér þessi tveggja mánaða laun, þótt ég hefði eig- inlega strokið úr vistinni. Ég er að leita mér að vinnu . . . — Þá kem ég kannski á réttu augnabliki, sagði hann. — Ég var nefnilega að skrökva áðan, ég er hér í Englandi að- eins í einum tilgangi . . . og það er að fá yður til að koma aftur til Arachino. — Koma aftur? Hjartað tók kipp. — Hvers vegna, er svona erfitt að fá einhvern til að líta eftir Paul? — í þetta sinn er það ekki Paul sem þarfnast yðar. Það er ég. Og þegar ég stóð samt kyrr, gat ekki. þorði ekki að trúa orðum hans, kom hann til mín og tók ískaldar hendur mínar og þrýsti þær fast. — Er svona erfitt að skilja þetta? sagði hann. — Ég veit að ég krefst mikils af þér. Eg veit að ég er að biðja þig að yfirgefa fjölskyldu þína og heimili, en ég bið þig samt að koma með mér til Rússlands sem eiginkona mín. Mér er líka ljóst að ég er klaufalegur, ég get ekki gert að því. Ég reyndi að biðja þín þegar ég talaði síðast við þig á Arachino, en þú vildir ekki hlusta á mig. Þú hafðir engan áhuga á mér. — Ó, ég sem þráði þig svo hræðilega heitt . . . — Ef þú vissir hve mikið ég hef þráð að heyra þig segja þetta! Það tók mig þrjá mán- uði að yfirvinna þetta heimsku- lega stolt og flýta mér til þín. Ég þorði ekki að öskra þá. En þetta verður ekki auðvelt fyrir þig. Við þörfnumst þín allir, Dmitri, Paul og ég, ég mest af öllum. Ástin mín, elsku litla ljúfa svala, litla skynsama stúlkan mín. sem getur haldið í hemilinn á mér, hlegið með mér og elskað mig . . . Mér var auðvitað ljóst að Framháld á bls. 42. 22 VIKAN 27. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.