Vikan - 06.07.1972, Blaðsíða 4
¥ Hvað er verið
l að skamma mann?
liru þctta ekki Sommer-teppiii
Jrá Litaveri scm þola aWtlÆ
Teppin sem endast, endast og endast
á stigahús og stóra gólffleti
Sommer teppjn eru úr naelon. Það er sterkasta teppaefnið
og hrindir bezt frá sér óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá-
róttum þráðum. Undirlagið er áfast og tryggir mýkt,
sfslétta áferð og er vatnsþétt.
Sommer gólf- og veggklæðning er heimsþekkt. Sommer teppjn
hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, m. a. á fjölförnustu
járnbrautarstöðvum Evrópu.
Við önnumst mælingar, lagningu, gerum tilboð og gefum
góða greiðsluskilmála. Leitið til þeirra, sem bjóða Sommer verð og
Sommer gæði.
LITAVER
GRENSÁSVEGI 22-24
SÍMAR: 30280 - 32262
PÓSTURINN
Hvernig fer það
saman?
Kæri Póstur!
Nú langar mig til að þú segir
mér hvernig þessi merki passa
saman: Steingeitin og fiskarnir,
fiskarnir og meyjan og stein-
geitin og meyjan. Ég vona að
þetta bréf verði birt. Hvað lestu
úr skriftinni og hvernig er staf-
setningin?
Ein I vanda.
Steingeit og fiskar búa bæði yf-
ir mikiili fórnarlund og hafa
þannig nokkra möguleika til
samstarfs, en annars eru þau
mjög ólik i eðli sínu. Fiskar og
jómfrú geta orðið hvort öðru til
mikils góðs þegar þau ná sam-
an, en það skeður bara sjald-
an, til þess eru þau of ólik. —
Steingeit og jómfrú eiga á hinn
bóginn ágætlega saman, eru
bæði siðsöm, reglusöm og gef-
in fyrir að láta skynsemina ráða.
Því miður — þér þarf að fara
drjúgt fram i skriftinni til að úr
henni sé nokkuð lesandi. Hins
vegar virðistu vera góð í staf-
setningu.
Svar til BSR
Fyrst stelpan er þetta ung, er
varla gerandi ráð fyrir öðru en
þetta séu bara einhver krakka-
læti. En haldi hún uppteknum
hætti næstu eitt eða tvö árin,
bendir það óneitanlega á kyn-
villu — lesbisma eins og það er
kallað hjá kvenfólki. En vita-
skuld er ástæðulaust að hneyksl-
ast á því ef því er mátulega
stillt í hóf — og það gildir nú
raunar um kynhvatir yfirleitt.
Reynir hann að slíta
á milli?
Kæri Póstur!
Ég hef séð í Vikunni að þú
leysir mörg vandamál. Vildir þú
vera svo góður að hjálpa mér?
Þannig er mál með vexti að ég
er með strák, sem er seytján
ára, en ég er bara fimmtán ára.
Ég er ekki hrifin af honum. Svo
er strákur, sem ég er ofsalega
hrifin af (ég veit ekki hvort
hann er hrifinn af mér), hann
er fimmtán ára (við höfum ver-
ið saman). Þegar ég er með öðr-
um strákum reynir hann að slíta
sambandinu á milli mín og
stráksins, sem ég er með. En
þegar ég er ein er hann svo
merkilegur með sig að hann
lítur ekki á mig. Þessi strákur,
sem ég er hrifin af, fylgist allt-
af með mér.
Heldur þú, kæri Póstur, að hann
sé hrifinn af mér? Er hann að
reyna að slíta á milli mín og
stráksins, sem ég er með?
Með fyrirfram þakklæti.
Ein áhyggjufull.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni? —
Hvernig eiga vogarmerkið og
fiskarnir saman? Vona að bréf
mitt lendi ekki í ruslakörfu
þinni.
Þessi stráklingur jafnaldri þinn
er varla neitt hrifinn af þér, en
hins vegar hefur hann sjálfsagt
veðrað það að þú ert veik fyrir
honum og hefur því gaman af
að sýna vald sitt yfir þér með
því að stía þér frá öðrum strák-
um. Láttu því sem þér standi á
sama um hann. Hins vegar skil-
ur Pósturinn ekki fyllilega hvað
þú ert að gera með hinn, eða
hvaða meining er í þvi að vera
með strák sem maður er ekki
hrifinn af?
Ur skriftinni má lesa tilhneig-
ingu til vandvirkni og full-
komnunar, en skapgerðin mætti
vera sterkari.
Bæði vogin og fiskarnir eiga
mikið af kærleika og mannúð,
og þetta dregur þau saman. En
samband þeirra verður oftast
óákveðið og hikandi. Þau botna
sjaldnast fyllilega hvort í öðru,
verða oftast hvort öðru fram-
andi hve lengi sem þau þekkj-
ast.
Stundum kallar
hann á mig
Kæri Póstur!
Ég er svo ofsalega hrifin af
strák en veit ekki hvort hann er
hrifinn af mér. Hann er alls ekki
feiminn. Stundum kallar hann á
mig á götu og spyr mig þá um
ákveðinn strák sem ég þekki,
þótt hann þurfi ekki beint á
þeim upplýsingum að halda. Ef
ég sé honum bregða fyrir á
götu sný ég mér undan og passa
4 VIKAN 27. TBL.