Vikan


Vikan - 06.07.1972, Side 8

Vikan - 06.07.1972, Side 8
OLÍAN BÝÐUR HEIM ÚTRÝMINGU INDÍÁNANNA Nú æða vélbátar með skellandi vélum eftir fljótum, sem eintrjáningar Indíánanna liðu hljóðlaust eftir fyrir fáeinum árum. Drunurnar í þotunum flæma skara marglitra fugla á flótta. Olíuturnar rísa upp úr frumskóginum. Og veiðilendur Indíánanna eru „keyptar" fyrir plasthatta og hárspennur. Tuttugasta og níunda marz 1967 var gerður heyrinkunnug- ur mikill olíufundur í hérað- inu E1 Oriente í Ekvador. íbú- ar landsins, fimm milljónir talsins, tóku tíðindunum með miklum fögnuði. Eða svo stend- ur skrifað í miklum upplýs- ingabæklingi frá bandarísku olíuhringunum Gulf og Texaco. Einhver gleðilæti af þessu til- efni hafa líka orðið í ekva- dorsku pressunni. f einu blaði þarlendu var birt viðtal við fjölskyldu af Indíánaættbálki, sem heitir Cofán. Hjónunum, sem heita Elías og Barbarita, og barnabörnum þeirra er lýst sem betlurum úr frumskógin- um. Hér liggur andstyggileg saga að baki, saga sem vissir aðilar vilja efalaust að gleymist að baki tilbúinna gleðiláta í fjöl- miðlum. Elías gamli og Bar- barita bjuggu við San Miguel- fljót á landamærum Kólombíu og Ekvadors, þar sem Elías var höfðingi yfir einum þeim stærsta af hópunum, sem Co- fán-Indíánar skiptust í. Hann var sannkallaður höfðingi, merkur maður með sterka ábyrgðartilfinningu gagnvart fólki sínu. Indíánarnir á þessum slóð- um hafa oft tekið hvítum gest- um með magnaðri tortryggni, s&ggjaB 8 VIKAN 27. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.