Vikan


Vikan - 06.07.1972, Qupperneq 41

Vikan - 06.07.1972, Qupperneq 41
ofan á kistuna, og svo er öllu lokið. Getur ekki einfaldara verið. — Hún fannst, sagði ég. — Hver? — Nú, hún. Skolpræsið var eitthvað í ólagi. Þeir fundu hana þegar þeir voru að grafa. Ég var þar sjálf og horfði á þá slynglega falinn. Pabbi var klókur. Og lögreglumennirnir voru heldur engir bjánar, en þarna gekk alveg fram af þeim. Já, svo var það. Það var ekki í'alleg sjón. Ég var sjö ára. Þetta kvaldi mig. Ég tók að skjálfa. — Ég er alveg að frjósa, Ro- bert. Gefðu mér annað teppi og svo pillur. Ég er með höfuð- verk. Hann þurfti ekkert að vita, að ég væri með sorgar- mars á heilanum. Ég lá endi- löng á bakið. Köngulló var að hlaupa neðan á loftinu. •— Ég ætla að reka herberg- isþernuna, Robert. Hún er subba. Mamma hefði aldrei þolað það. Hún var alltaf svo dugleg. Hún hélt þessu ieyndu fyrir pabba, að minnsta kosti í þrjú kortér. Og það var enginn barnaleikur, skal ég segja þér, en mamma var afburða skipu- leggjari. Missti aldrei jafnvæg- ið. — Farðu út í badminton með4 honum pabba þínum, svo að hann sjái ekki neitt. Þetta hljóta að vera einhverjar leifar frá stríðsárunum. Við fengum á okkur nokkrar loftárásir hérna. En segðu ekkert við hann pabba, það er ekki til annars en angra hann. Þú veizt, hvað hann er viðkvæmur. Robert gaf mér pillur og vatn. Tennurnar í mér glömr- uðu við glasið. — Nei, ég veit ekki, hvernig hún mamma kláraði þetta. Sam- kvæmin hennar voru velþekkt af ýmsum sniðugum uppátækj- um. Allt gekk alltaf eins og eftir klukku. En hér var nú sannarlega ekki um neitt sam- kvæmi að ræða. Ég hló. — Skrýtið, finnst þér ekki? En þetta fór eins og í sögu. Lög- reglan og sjúkravagninn komu samtímis, kannski meira að segja saman. Já, svona hlýtur það að hafa verið: hópvinna, undir stjórn mömmu. Við pabbi lukum leiknum okkar á stóra blettinum fyrir framan húsið, og sátum nú und- ir beykitrénu. Ég sat á hnénu á honum og hann hélt einmitt upp kveikjaranum sínum, handa mér að slökkva á honum, þeg- ar þau komu akandi inn á lóð- ina, með bláu ljósin blaktandi og sírenurnar vælandi. — Pabbi var í góðu skapi þennan dag. Sannast að segja var hann nú alltaf blíður og góður við mig, betri en mamma. Svo stukku margir menn út. Sjúkravagnsmenn í hvítum fötum, burðarmenn, skilurðu. — Hvað er að? spurði pabbi. — Hvað gengur eiginlega á? Hann stóð upp og höndin hvíldi á hárinu á mér, sem hann var að gæla við. Hann var svo hrifinn af hárinu á mér. En þá gleymdi ég loforðinu mínu, vegna þess, hve ég fann til mín. — Þeir voru að finna lík bak við hesthúsið, sagði ég. Hann æpti upp og ætlaði að hlaupa burt, en það náðist strax í hann. Hann streittist á móti eftir föngum, en hjúkrunarmenn á geðveikrahælum eru handfastir eins og þú veizt. Þegar þeir leiddu hann burt, sneri hann örvæntingar- fullu augnatilliti að mér, rétt eins og hann væntist einhverr- ar hjálpar frá mér. Það var froða um munninn á honum. En ég hljóp ekki á eftir honum, heldur skildi hann eftir i neyð- inni. Ég var orðin svikari við föður minn, þvi að á svipstundu skildi ég ailt saman. Spurðu mig ekki, hvernig krakki viti svona hluti. Það kemur bara sjálfkrafa. Hann lét eins og óð- ur maður í sjúkravagninum, og við gátum heyrt skerandi vein, þangað til vagninn sást aðeins sem depill í fjarska. É'g gleymi ekki þessum veinum, þó ég svo verði hundrað ára gömul. Þau nístu hjartað í mér . . . mér er kalt, Robert . . . já, annað eins og þetta eitrar blóðið, og nag- ar sálina. Og það er aldrei hægt að losna við það. Hér hlýt ég að hafa fallið í öngvit, því að meira man ég ekki. Þetta var annað kastið mitt. Sjúkdómurinn var að ágerast. Ég gaf Robert vindlingavesk- ið hans föður míns, veskið, sem var merkt H fyrir Halensee, og hinni eftirtektarverðu áletrun, sem pabbi hafði ritað með hjartablóði sínu — því að nú gat það engar nýjar upplýs- ingar gefið framar. Hin mikla stund var upprunnin. Ég hafði fægt það þangað til það gljáði, og nú lagði ég þénnan minja- grip ástúðlega í hönd Roberts. Pabbi hefði skilið þétta. Ást mín á báðum þessum mönnum gerði þetta að hátíðlegri athöfn, og gjöfinni var ætlað að inn- sigla samband okkar. Hjartað Margir halda aB uppréttar ryksugur séu auBveldari i notkun og hreinsi betur meB burstanum heldur en sogryksugirr geta gert. ABrir hafa tröllatrú á hreinsimætti sogryksugunnar. I þessari skemmtilegu „tvibura-ryksugu” eru beztu eiginleikar beggja. Kraftur sogryksugunnar og bursti hinnar uppréttu. Loksins er komin ryksuga, sem hreinsar heimili yðar fullkomlega Vörumarkaðurinn hí. Ármúli 1 a - Sími 86-113 27. TBL. VIKAN 41

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.