Vikan - 09.11.1972, Qupperneq 3
45. tbl. - 9. nóvember 1972 - 34. árgangur
Blessað
stressið
Stressi’ð er ekki eingöngu
til ills. Ákveðið magn af
því er nauðsynlegt til
viðhalds orku og til að
öðlast langlífi. Hins veg-
ar er of mikið álag á of
skömmum tíma hættu-
legt. Sjá athyglisverða
grein á bls. 8.
Allir eru
hræddir
við Dada
Idi Aman Dada, forseti
Úganda, er 48 ára að
aldri og vakti fyrst á sér
athygli sem boxari í
þungavigt. Þegar Asíu-
menn í landinu heyra
nafn hans nefnt, þá
skjálfa þeir af hræðslu.
Sjá grein á bls. 18.
Grimmdar-
legur
orðrómur
„Fæðingar voru álitnar
alger einkamál kvenna.
Ef læknir var viðstaddur
fæðingu, fór hjálp hans
fram undir laki, þar sem
annar endinn var bund-
inn um háls hans og
hinn um háls hinnar fæð-
andi konu." Sjá greina-
flokkinn Konungleg
hneyksli á bls. 12.
KÆRI LESANDI!
Það má heita orðið föst venja,
að VIKAN efni á þessum árstíma
til jólagetraunar, sem sérstak-
lega er ætluð börnum og ungling-
um.
Þessar getraunir urðu 'sirax
vinsælar og þá einkum vegna
þess, hve vinningarnir eru marg-
ir og miklir möguleikar til að
hljóia einhvern þeirra. 1 getraun-
inni, sem efnt var til í fyrra, varð
þátttakan meiri en nokkru sinni
fyrr. Okkur bárust hátt á fimmta
þúsund lausnir
Jólagetraun Vikunnar er með
svipuðu sniði í íír. Vinningar eru
500 talsins, leikföng af ýmsum
stærðum og gerðum, bílabrautir,
brúður, manntöfl, spil, fótboltar,
snjóþotur og ótalmargt fleira. —
Getraunin er í fimm blöðum og
birtist sá fyrsti í þessu blaði, en
sá síðasti í jólablaðinu. Þeir sem
hljóta vinning fá hann fyrir jól.
Það líður óðum að jólum.
Fyrstu jólaútstillingarnar í mið-
borginni eru farnar að kalla til
sín blessuð börnin.
Og\enn eitt merki þess, að jól-
in eru i námd, er hin vinsæla Jóla-
getraun Vikunnar.
EFNISYFIRLIT
GREINAR bls.
STRESS, grein um streitu ásamt töflu, þar sem menn geta reiknað út hve mikið álag þeir þola 8
Grimmdarlegur orðrómur, önnur grein í greinaflokkinum um konungleg hneyksli 12
Allir eru hræddir við Dada, grein um hinn alræmda Amíd Úgandaforseta 18
VIÐTÖL
Bara betra að hafa hvort sitt áhugamál, VIKAN heimsækir hjónin Guðrúnu Stephen- sen, leikkonu, og Hafstein Austmann, list- málara 23
SÖGUR
Eyðimerkurflug, smásaga eftir Daphne Ball- ard 16
Rensjöholm, framhaldssaga, 9. hluti 20
Konan í snörunni, framhaldssaga, 11. hluti 34
ÝMISLEGT
JÓLAGETRAUN VIKUNNAR, fyrsti hluti, 500 vinningar, leikföng af ýmsum stærðum og gerðum 26
Appelsínuréttir í Eldhúsi Vikunnar, umsjón: Dröfn H. Farestveit, húsmæðrakennari 28
3m — músik með meiru, umsjón: Edvard Sverrisson 32
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn 4
Síðan síðast 6
Mig dreymdi 7
1 fullri alvöru 7
Stjörnuspá 45
Krossgáta 50
Myndasögur 49, 31, 34
FORSÍÐAN
Forsiðan visar á tvö efnisatriði þessa blaðs: — Jólagetraunina, sem verður í fimm blöðum, og heimsókn til Guðrúnar Stephensen og Hafsteins Austmanns. (Ljósm. Sigurgeir Sigurjónsson).
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjó’ri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matt-
hildur Edwald og Kristín Halldórsdóttir. Útlits-
teikning: Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar:
Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigríður Óiafsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing.
Sfðumúla 12. Símar: 35320 — 35323. Pósthólf
533. Verð í lausasölu kr. 60,00. Áskriftarverð er
575 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega eða
1100 kr. fyrir 26 tölublöð misserislega. Áskriftar-
vérðið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: nóvem-
ber, febrúar, maf og ágúst.
45. TBL. VIKAN 3