Vikan


Vikan - 09.11.1972, Qupperneq 20

Vikan - 09.11.1972, Qupperneq 20
0 0 Framhaldssaga eftir W. D. Roberts 9. hluti Eftir þessa nótt var ekkert eins og áður tortryggnin hvíldi yfir húsinu, allir voru á verði... Nú heyrðust raddir á göng- unum, það var greinilegt að allir höfðu vaknað við óhljóð- in og þotið upp úr rúmum sín- um. Klemens gekk til dyr- anna og varnaði þeim vegar. Rödd hans var þreytuleg og hás. —- Bíðið inni. Vill ekki ein- hver hringja til læknisins. Og til lögreglunnar líka. Axel, ef þú ekki nærð í byssu og skýt- ur þessi villidýr strax, þá geri ég það. — Hvað hefur skeð? Axel tróð sér gegnum hópinn við dyrnar og leit yfir öxlina á Klemens. Ó, guð . . . Fleiri sáu hvað skeð hafði, nokkrir hljóðuðu upp yfir sig, ein af stúlkunum fór að gráta, og einhver að kúgast. — Nei, pabbi, farðu ekki út, þú ekki heldur, Gabriella, þið getið ekkert gert. Farið inn — öllsömul. Ég lá ennþá á hnjánum við hliðina á líkarrianum, sem var svo hræðilega útleikinn og hafði ekki mátt til að rísa upp. Klemens reisti mig harkalega á fætur og það var eins og honum væri alls ekki ljóst hvað hann gerði. Það var ópið frá Claes, sem kom mér til að átta mig. Hann æddi áfram, sleit mig af frú Mattson, sem reyndi að stöðva hann og smeygði sig undan þeim sem ætluðu að hindra hann. Svo kom hann auga á mig og nam staðar andartak. Svo fleygði hann sér í fang mér og ríghélt sér. — Ég hélt að það hefði ver- ið þú, snökkti hann og andlit hans var tárvott. — Ég hélt að það værir þú, sem hljóðaðir! Ég þrýsti andliti hans að brjósti mér og leit á Klemens yfir höfuð hans. — Farðu með hann burt héðan, sagði hann og gekk aftur niður í garðinn. Ég heyrði að hann sagði við Axel: — Hvernig í fjandanum komust hundarnir inn í garð- inn? Var hliðið opið? Og bak- dyrnar læstar. Þær eru aldrei læstar! Hundarnir hefðu ekki snert hana, ef henni hefði tek- izt að opna, en þegar hún fór að berja á dyrnar . . . Ó, guð minn góður, hvers vegna voru dyrnar læstar? Við héldumst fast í hendur, þegar við gengum inn og það var ekki aðeins Claes, sem var í þörf fyrir stuðning. É'g er viss um að það hefði liðið yfir mig, ef ég hefði ekki haldið í hönd hans. Orðið „martröð“ hafði aldrei verið mér eins raunverulegt. Nú var mér ljóst hvernig það var að ganga í gegnum hræðilega martröð. Allt heimilisfólkið var safn- að saman í stóra forsalnum og beið eftir lögreglunni. Allir voru hljóðir og náfölir og forð- uðust að horfast í augu. Ga- briella var svo föl, að faðir hennar fékk hana til að setj- ast. Hann stóð svo og studdi hönd á öxl hennar og það leit út fyrir að hann ætti bágt með að standa uppréttur. Við heyrðum skotin, fimm skot fyrir þrjá hunda. Fætur mínir létu undan og ég hneig niður á bekk. Claes sleppti mér ekki, hann hélt svo fast í hönd mína að fingurnir voru aumir daginn eftir. Axel kom með byssuna í höndunum og lagði hana frá sér á borð. Hann strauk yfir augun. —■ Þetta er hræðilegt. — Hvar er Klemens? Mér fannst doktor Renfeldt hafa elzt um mörg ár. — Hann er ennþá — ennþá hjá — henni. Hann sagði að hann yrði . . . að einhver yrði að vera hjá henni. — Er engin von -—- engin von að það leynist með henni líf? spurði Gabriella og leit á mig. Ég hristi höfuðið þegjandi. — Þetta er mér að kenna, sagði Axel skyndilega. — Hlið- ið, þetta fjandans hlið, ég sá að það var opið rétt fyrir mið- degisverðinn. Ég ætlaði að biðja Lund um að loka því, en svo komu gestirnir og ég gleymdi því alveg . . . gleymdi því algerlega. Mínúturnar seigluðust áfram og loksins kom lögreglan. Eng- inn tók sig fram um að vísa þeim leiðina, Axel benti aðeins út í garðinn. Einn þeirra kom aftur inn eftir fimm mínútur eða svo, jafn náfölur og við hin vorum. Hann bað um að fá lánaðan síma, Hann gaf skýrslu um það sem skeð hafði, bað um liðs- auka, Ijósmyndara og tækni- menn. Flest okkar voru ber- fætt og í náttfötunum einum. Mér var kalt og mig langaði til að fara upp til að ná í slopp og inniskó, en ég hafði ekki rænu á því. Einn lögregluþjónanna varð kyrr hjá líkinu og Klemens kom inn. Hann settist við hlið mér og ég óskaði þess svo inni- lega að hann legði arminn um axlir mér, það hefði verið svo mikil huggun, en hann gerði það að sjálfsögðu ekki. Doktor Renfeldt ræskti sig. — Það er bezt að þér farið upp með Claes, systir. — Þetta er of óhugnanlegt fyrir barn- ið. En lögregluþjónninn, sem gætti okkar, sagði: — Af- sakið, doktor Renfeldt, ég verð að fara fram á það að allir verði hér um kyrrt, þangað til lögregluforinginn kemur. Lögregluforinginn? Hvað kom til að hann léti ónáða sig? Og það um miðja nótt? Það var líklega vegna Renfeldt nafnsins, eins og oftar, hugs- aði ég. Við sátum því kyrr og ég var raunar fegin. Það hefði verið ennþá verra að vera ein upp á lofti. — Guði sé lof að gestir mín- ir gistu ekki hér i nótt, taut- aði Axel. — Það hefði verið hræðilegt að blanda þeim í þetta. Hann var ólastanlega klædd- ur í glæsilegum slopp og nátt- fötum í sama lit. Ég tók líka eftir því að Klemens var kom- in í slopp yfir. náttbuxurnar, —■ hann hlaut að hafa farið inn á herbergið sitt, áður en hann kom til okkar. Lemming lögregluforingi var miðaldra maður, þrekinn og breiðleitur. Hann spurði alla viðstadda um nafn og stöðu. ■—- Og konan sem dó, hver var hún? — Hún hét Vera Dickman og var ritari föður míns. Hún hjálpaði mér líka með bók- haldið. — Og skyldfólk hennar, — því hefur auðvitað ekki enn- þá verið tilkynnt lát hennar? — Nei, foreldrar hennar eru ekki á lífi, en ég held hún eigi systur í Helsingborg, ég man ekki nafnið í augnablikinu, en það hlýtur að koma. Hann spurði ýmissa spurn- inga og lögregluþjónninn, sem var með honum, skrifaði það allt niður. Svo kom röðin að mér. Já, það var ég sem kom fyrst að henni, ásamt herra Renfeldt. Klemens Renfeldt. Nei, ég var ekki sofandi, þegar hundarnir fóru að gelta, ég hafði setið við gluggann. Jú, hann var opinn, en ég hafði ekki horft út. En ég heyrði í lásnum og vissi að einhver hafði farið út í garð- inn. Ég heyrði fótatakið. — Vissuð þér að þetta var 20 VIKAN 45. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.