Vikan


Vikan - 09.11.1972, Qupperneq 32

Vikan - 09.11.1972, Qupperneq 32
Bob Calvert 30 ára. Hann er lagasmiður, texta- höfundur og söngvari hljómsveit- arinnar. Hann er höfundur Silver Machine. Simon King 21 árs. Hann er trommuleikarinn og er jafnframt sérfreeðingur í elektrónik. Nik Turner 32 ára. Hann er fyrrverandi jass- leikari og spilar á alt saxafón. Hann er stofnandi hljómsveitar- innar ásamt Dave Brock. sviðinu er stúlka, Stacia, sem dansar og gerir yfirleitt hvað sem henni sjálfri dettur í hug, meðan hljómsveitin spilar. Þetta „hvað sem er“, var einu sinni þannig, að hún málaði allan líkamann með marglitri málningu og dansaði síðan á sviðinu fyrir framan hljóm- sveitina í máluðum Evuklæð- um einum saman. í fyrstu voru viðbrögð áhorfenda svipuð og þegar sést til óléttrar nunnu, en nú orðið er Stacia þáttur í öllu því, sem Hawkwind ger- ir. Stacia var í fyrstu ekki ráð- in af hljómsveitinni, heldur birtist hún öllum að óvörum á sviðinu og hóf að dansa eftir músíkinni. Og eins og áður Dave Brock 28 ára. Gítarleikari hljómsveitar- innar og stofnandi. Aður en hann stofnaði Hawkwind var hann ban- jo leikari í jasshljómsveit. Haukaþytur Hljómsveitin Hawkwind er ekki ný af nálinni, þó svo að hún sé lítið þekkt hérlendis. Hún var stofnuð 1968, en fyrstu meiriháttar hljómleikar sem hljómsveitin kom fram á, var Isle of Wight hátíðin árið 1969. Komu alls um 400 þús. manns til eyjarinnar, sem er í Ermar- sundi, þá daga sem hátíðin stóð yfir. Það höfðu flogið margar fiskisögurnar um Hawkwind dagana fyrir hátíðina, enda var ferill hljómsveitarinnar með þeim dularfyllri. Hawkwind var eins konar sjö manna sirk- us og hafði ferðazt víða um og framið tónlistarlega verknaði hvar sem var og hvernig sem á stóð. Urðu aðallega húsaport og gangstéttir fyrir valinu. En ekki fengu þeir alltaf að vera í friði á fyrrgreindum stöðum, því oftast nær var rykið dust- að af laganna bókstaf og þeim félögum bent á, að hljómstyrk- ur þeirra mætti ekki vera meiri en svo, að húsmæður í nærliggjandi húsum gætu heyrt í sjálfum sér bía og blaka yfir börnunum. Laganna bókstaf brutu þeir alltaf áheyrendum að kostnaðarlausu, og hlutu að vonum miklar vinsældir fyrir. Með öðrum orðum, aðgangs- eyrir að hljómleikum þeirra var enginn, hvar og hvenær sem þeir spiluðu. Sú músík, sem Hawkwind spilar, flokkast að öllum lík- indum undir það sem kallað er á fagmáli „underground" mús- ík, eða í beinni þýðingu neð- anjarðarmúsík, hversu asna- lega sem sú þýðing kann nú að hljóma. Þeir nota mikið el- ektróník eða Moog í flutningi sínum. Annað, sem vekur at- hygli á hljómleikum Hawk- wind er það, að með þeim'á HAWKWIND 32 VIKAN 45. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.