Vikan - 09.11.1972, Síða 45
STJORNUSPA
•^y - ' ' -4 XV >
Hrúts-
merkiS
21. marz-
20. apríl
Vandamál, sem þú
hefur glímt við um
tíma, leysist á hinn
farsælasta hátt. Af-
staða stjarnanna er
mjög góð í þessari
viku, og þú skalt
reyna að notafæra þér
út í yztu æsar.
Nauts-
merkið
21. apríl-
21. maí
Vikan verður skemmti-
leg og ef til vill nokk-
uð rómantísk. Þú ættir
að halda kvöldboð
fyrir kunningjana.
Einn fjölskyldumeð-
lima þinna þarfnast
þess að vera í nánari
tengslum við þig.
Tvíbura-
merkið
22. maí-
21. júní
Persóna, sem þú
bjóst við að mundi
styðja þig með ráðum
og dáð, bregzt þér
gjörsamlega. Þú skalt
ekki örvænta þess
vegna, því að málin
eiga eftir að taka
nýja stefnu innan
skamms.
Krabba-
merkið
22. júní—
23. júlí
Þú ert óþarflega
bjartsýnn í fjármálun-
um. Bjartsýni er ekki
tímabær núna, því að
það eru heldur erfiðir
tímar framundan hjá
þér í þeim efnum.
Taktu þér verkefni,
sem þú ert beðinn að
vinna.
Ljóns-
merkið
24. júlí—
24. ágúst
Ákveðin persóna hefur
gerzt einum of nær-
göngul við þig upp á
síðkastið og stundum
beinlínis uppá-
þrengjandi. Þú skalt
ekki hika við að segja
meiningu þína við
hana, áður en verra
hlýzt af.
Meyjar-
merkið
24. ágúst—
23. sept.
i
Fremur hversdagslega
vika, sem þó er margt,
sem þú þarft að vara
þig á. Sérstaklega
skaltu varast að segja
það, sem þú hefur
ekki fulla vissu fyrir,
jafnvel þó að gengið
verði á þig.
Vogar-
merkið
24. sept,-
23. okt.
Gamall vinur leitar til
þín og biður þig að
gera sér greiða. Þú
skalt hiklaust liðsinna
honum, því að þú
munt hagnast á því
síðar meir. Helgin
verður eins skemmti-
leg og þú bjóst við.
Dreka-
merkið
24. okt.-
22. nóv.
Þú átt í einhverjum
vanda og skalt ekki
draga lengur að leita
ráða hjá einhverjum.
Þótt þú sjáir skástu
leiðirnar, þá er alltaf
öruggara að láta aðra
samþykkja þær og
ræða málið almennt.
Bogmanns-
merkið
23. nóv.—
21. des.
Veraldlegu gæðin eru
eins eftirsóknarverð
og þú hyggur. Það
kann aldrei góðri
lukku að stýra
að fórna of
miklu þeirra vegna.
Hamingjan er fólgin í
allt öðrum hlutum.
Stein-
geitar-
merkiS
22. des,—
20. jan.
Telgin lítur út fyrir að
/erða einkar skemmti-
eg, að minnsta kosti
ijá þeim, sem fæddir
;ru síðast í desember.
.íklega áttu ferðalag
Fyrir höndum, ekki
mjög langt, en mjög
ziðburðaríkt.
Vatnsbera-
merkiS
21. jan.—
19. feb.
Prófraun, sem þú
verður að þreyta á
næstunni. mun ganga
þér í haginn. Sjálfs-
traust þitt eykst mikið
á eftir og þú verður
ánægðari með sjálfan
þig og heiminn en
oftast áður.
Fiska-
merkið
20. feb.
20. marz
Þú ert alltof ragur við
að eiga frumkvæðið að
máli, sem þér er hug-
leikið. Ef þú tekur
ekki sjálfur rögg á þig,
er hætt við að það
mistakist. Fjármálin
eru í óvissu, en það
rætist brátt úr þeim.
Vcrðlag hcfur þrefaldast á tíu áruiji
Meginvandi íslenzks efnahagslifs á undan-
farandi áratugunrhefur verið hin öra verð-
bólguþróun. Sl. 10 ár hefur visitala fram-
færslukostnaðar tæplega þrefaldazt og
visitala byggingarkostnaðar er nú þremur
og hálfum sinnum hærri en fyriMO árum
siðan.
Sannvirðistr>gging er forsenda fuilra bóta
Ef til vill gera ekki allir sér grein fyrir, að
sannvirðistrygging er forsenda fullra tjón-
bóta, þvi séu eignir eigi tryggðar á fullu
verði, þá verður -að lita svo á, að trygging-
artaki sé sjálfur vátryggjandi að þvi.sem á
Vantar fullt verð og ber því sjálfur tjón sitt
að þeim hluta'.
Hækkun trygginga samkvæmt vísitölu
Samvinnutryggingar hafa nú ákveðið að
taka upp visitöluákvæði i skilmála innbús-
trygginga og lausafjártrygginga, þannig að
upphæöir hækki árlega meö hliösjón af
visitölu framfærslukostnaóar og byggingar-
kostnaði. Til þess að þessi ákvæði komiað
fullum notum er mjög áriðandi, að allar
tryggingarupphæðir' séu nú þegar leiöréttar
og ákveðnar eftir raúnverulegu verðmæti
þess, sem tryggt.er.
SAMVINNUTRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 - SlMI 38500
— Annaðhvort hættirðu að taka þessi hormónalyf eða þú verður að
kaupa þér rakvél!
45. TBL. VIKAN 45