Vikan


Vikan - 16.11.1972, Síða 4

Vikan - 16.11.1972, Síða 4
f Hvað er verið l að skamma mann? Eru þetta ekki Sommcr-tcppin, Jrá Litaveri sem þola allti^P Teppin sem endast endast og endast á stigahús og stóra gólffleti Sommer teppin eru úr nælon. ÞaS er sterkasta teppaefniS og ■hrindir bezt frá sór óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá- réttum þráðum. Undirlagið er áfast og tryggir mýkt, sislétta áferð og er vatnsþétt. Sommer gólf- og veggklæðning er heimsþekkt. Sommer teppln hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, .m. a. á fjöiförnustu járntorautarstöðvum Evrópu. Við ðnnumst mælingar, lagnlngu, gerum tilboð og gefum góSa greiðsluskilmála. LeitiS til þeirra, sem bjóSa Sommer verS og Sommer gæSi. UTAVER GRENSÁSVEGI 22-24 SÍMAR: 30280 - 32202 P0STURINN Ekki í síma Kæri Póstur! Mitt vandamál er, að ég er m|ög hrifin af strák, sem er einu ári eldri en ég, en ég er 16 ára. Við höfum verið saman í sveit síðustu 3 árin og höfum líka verið saman einstöku sinnum. Mig langar til þess að hafa samband við hann, en ekki í gegnum síma, því að það finnst mér hálfasnalegt. Hvað á ég að gera? Hvernig er skriftin? — Hvernig eiga Ijónið og mærin saman? Ein í sorg. Það er nú ekki um margt aS ræða, ef þú vilt ekki nota sím- ann. AnnaS hvort verSurSu aS taka þig til og heimsækja hann eSa setjast niSur og skrifa bréf. Svo er auSvitaS þriSji möguleikinn, og hann er aS lofa strax. Vatnsberakona nytsamlegra en draumóra út af 17 ára strák. Þú hefur nógan tíma til aS svipast um eftir lífs- förunaut. Skriftin er ágæt og lýsir nákvæmni og samvizku- semi. SambúS Ijóns og meyjar lánast vel. Lýðháskóli í Noregi Kæri Póstur! Mig langar til að biðja þig að segja mér, hvort það sé lýðhá- skóli úti í Noregi, og hvert ég á að snúa mér til þess að sækja um skólavist þar? Mig langar nefnilega svo til þess að læra eitthvað í uppeldisfræði. Jæja, ég þakka kærlega fyrir allt gott efni í Vikunni, ég kaupi hana alltaf. Hvernig er skriftin, og hvað lestu úr henni? Ein vingsandi. Víst eru lýðháskólar í Noregi, eins og á hinum NorSurlöndun- um. Norræna félagið I Reykja- vík hefur í mörg ár haft milli- göngu um útvegun skólavista hvarvetna um NorSurlönd og útvegaS fjölda íslenzkra ung- linga ókeypis námsdvöl í lýS- háskólum á NorSurlöndum. — Norræna félagiS hefur aSsetur í Norræna húsinu viS Hring- braut, sími 10165 — og hefur opna skrifstofu kl. 5—7 daglega. Þú hefur góSa rithönd, sem bendir til samvizkusemi og já- kvæSrar skapgerSar. Enn eru það merkin Kæri Póstur! Eg hef aldrei skrifað þér áður og vona, að þetta bréf lendi ekki í ruslinu. Vikan finnst mér ofsalega fín, og ég les mest af því, sem í henni er. En nú ér bezt að koma sér að efninu. Hvernig fara saman dreki og vatnsberi, steingeit og steingeit, dreki og steingeit, vog og bog- maður. Hvernig er skriftin, og hvað lestu úr henni? Með þökk fyrir allt. K. Hansd. SporSdreki og vatnsberi eiga heldur illa saman. Tvær stein- geitarpersónur eiga erfitt með aS taka tillit hvor til annarrar. Dreki og bogmaður geta átt hamingjuríka sambúS, einkum ef karlmaðurinn er í dreka- merkinu og konan í bogmann- inum. Og vog og bogmaður eiga Ijómandi vel saman. Skrift- in er ósnyrtileg og lítiS hægt aS lesa úr henni. Áhugasöm um matseld Kæri Póstur! Er ekki hægt að hafa þátt í matreiðslubók Vikunnar, sem fólk getur skrifað og spurt ráða um ýmislegt í sambandi við mat? Jæja, ég vona, að þú birtir þetta bréf. Vikan er bezta blað, sem hægt er að hugsa sér, og ég vona, að þið haldið áfram að birta þættina um leyndarmálin, þeir eru nefni- lega eins og hverjar aðrar smá- sögur. Að lokum ætla ég að spyrja þig, hvernig vatnsberi (kona) og tvíburi (karlmaður) eiga saman og biðja þig að lesa úr skriftinni, ef þú getur. Sigrún. Þetta meS spurningaþáttinn er til gaumgæfilegrar athugunar hjá okkur, en viS þorum engu aS lofa strax. Vatnsberakonan og tvíburakarl eru líkleg til aS halda þaS út saman alla ævi og þaS hin ánægSustu. Úr skrift- inni þykjumst viS lesa, aS þú sért glaSlynd og félagslynd. 4 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.