Vikan


Vikan - 16.11.1972, Síða 13

Vikan - 16.11.1972, Síða 13
■ Næsta morgun sagöi Barka viö prestinn: — Litla svínið ' er stungið af. Presturirin var ekki nema hálfvaknaður, — Til. hvers ertu lika að hleypa þvi út? — Ég hleypti þvi ekkert út. Ég meina, að það er dautt. — Þá hlýturðu að hafa svelt það i hel. Og presturinn geispaði og sneri sér til veggjar. Barka brokkaði heim til kenn- arans. - Presturinn biður að heilsa og spyr, hvort þú getir grafið svinið, sem dó i nótt. Hún laug til þess að vekja ekki ótta hjá svlnabændum á staðnum. Ef svin drepst svona þegjandi og hljóðalaust á næturþeli, gætu skæöar tungur sagt, aö presturinn væri að þagga niöur svlnapestar— faraldur. — Auðvitað er það ekki nema guðvelkomiö, Barka. Kennarinn tók poka og hjólbörur og lagði af stað til að hirða svinið og jarða það i kyrrþey. Þennan dag kafrauk úr strompinum hjá kennaranum og það hélt áfram aö rjúka fram á kvöld. Þegar Barka hitti Tona, kennarasoninn, við brunninn, spurði hún hann til hvers þau væru að eyða svona miklum eldivið og veturinn ekki kominn enn. Toni lét sem hann heyrði ekki til hennar, en Barka tók samt eftir þvi, aö hann var fitugur um munninn. Vatnið skvettist upp úr fötunni hjá Börku á leiðinni heim á prestssetriö og hún setti fötuna frá sér við þriðja hvert skref og hamaöist að hugsa: Hvað gat kennarafólkiö verið að sjóöa, þessir endemis ræflar? Eitthvaö feitt hlaut það að vera, úr þvi hann Toni var allur fitugur um kjaftinn. Gat það verið sviniö, og hvenær hafði það orðiö veikt? Kannski hafði það bara alls ekki orðið neitt veikt? Og nánar aðgætt, þá haföi kennarinn verið svo fús til aö hjálpa .... Hún var alveg friölaus. Undir eins og dimmt var orðið, læddist Barka kring um kirkjuna og yfiraöskólanum. Það var ljós i framstofunni og enn rauk úr strompinum. Barka þefaði og snuggaði og fann svinaketslykt. Lika af súrkáli og fleskpöru. Hún lyfti klinkunni og læddist varlega inn i ganginn. Við endann á ganginum var hurö óg uppi yfir henni rúöa, sem hægt var að opna til þess að fá hreint loft. Barka læddist að hurðinni og hlustaði. Jú, þarna var svei mér veizla — liklega voru þau búin að éta sviniö upp með húö og hári. Þaö glamraði i hnifum og göfflum á diskunum og börnin skröfuðu og hlógu. Hvern skrattann gátu þau verið að éta? Hún dró til sin rimlakassa, sem stóð þarna úti I horni, tók ofan tréfötu, sem hékk á veggnum', hvolfdi henni ofan á kassann, og svo klifraði hún upp til þess að geta séð gegnum rúöuna. En hún varð áðeins of sein fyrir, þvi að konan kennarans var að taka af boröinu og krakkarnir stóðu eins- konar heiðursvörö kringum hana. Kennarinn var rétt að ljúka við borðbænina. . . .Og svo skulum við lika biðja fyrir henni Börku. Barka sperrti eyrun. Hún teygöi sig eins og hún gat og stóð nú á tánum á fötunni, rétt eins og balletdansmær. — Og gerðu hana ekki alveg svona nizka, sagði Soffia, sú elzta.Næst kom Pippa: — Og ekki alveg svona öfundsjúka. . — Og ekki alveg svona skltuga. Þetta kom frá Tómasi. — Og ekki alveg svona úfna. Þetta kom frá Xavier, sem var enn yngri. Og Felix, sem var pæstur að aldri, æpti: — Og ekki svona ljóta. Framhald á bls. 35. 46. TBL. VIKAN 13

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.