Vikan - 06.09.1973, Side 14
Það kemur oft fyrir, að börn
fá 'alls konar eitrun vegna þess
að þau ná i og gleypa lyf. sem
ekki eru geymd á nógu örugg
um stað. Það er árátta hjá litl-
um börnum að troða öllu upp i
sig, jafnvel þótt það sé siður en
svo gott á bragðið. Og þau gera
aðsjálfsögðu ekki greint á milli
þess, hvort um lyfjatöflur,
óskaðlegar töflur eða sælgæti er
aö ræða. Það er þess vegna
fyllsta ástæða til aö leggja rika
áherzlu á það, sérstaklega á
heimilum þar sem óvita börn
eru, að geyma öll lyf, töflur,-
dropa og lyfjablöndur, á svo
öryggum staö, að útilokað sé að
börn nái til þeirra.
Hið sama er aö segja um önn-
ur efni, sem notuð eru við
heimilishaldið, svo sem alls
konar lútarefni, áalmiak, sóda,
óleskjað kalk, ediksýru, salt-
sýru, blettavatn, skordýraeitur
og ótalmargt fleira.
Þaö er heldur ekki úr vegi að
minna á þaö, að margar tegund-
ir af skrautjurtum eru stór-
hættulegar og geta orsakað
alvarlega eitrun, svo ekki sé tal-
að um exem og útbrot.
Þvi miður er alltof algengt, að
börn nái i lyf og önnur efni, sem
geta orðiö þeim skaðleg, jafnvel
lifshættuleg. Þess vegna er
ástæða til að telja hér upp nokk-
ur slik efni og hvernig brugðizt
skuli við, ef óhapp ber að hönd-
um:
ACETYL-SAUCYLSÝRA er
aðalefnið i margs konar töflum.
t.d. aspirin og magnyl, sem
daglega eru notaðar við höfuð-
verk, gikt og alls konar verkj-
um. Slikar töflur á yfirleitt ekki
að nota handa börnum undir
þriggja ára aldri. 1 sérstökum
tilvikum má þó gefa börnum 3-6
ára hálfa töflu við og við, ef þörf
krefur. Stærri skammtar geta
orsakað eitrun, sem lýsir sér
m.a. þannig, að börnin verða
máttlaus, likamshiti lækkar,
þau verða óróleg, eiga örðugt
um andardrátt og geta ja.fnvel
misst meðvitund. Ef hægt er
nógu snemma að koma einni te-
skeið af matarsóda i vatni i
barn. sem hefur fengið salicyl-
eitrun, þá hjálpar það venju-
lega. Það er lika ráð að fá barn-
ið til að kasta upp með þvi að
stinga fingrum niður i kok þess,
en það má alls ekki gera, ef
barnið er meðvitundarlaust. Þá
er i öllum tilfellum öruggast að
kóma barninu undir læknis-
hendur eða á sjúkrahús.
JARNTÖFLUR: Ung börn
þola tiltölulega litið magn af
járni. Ef ástæða er til að ætla,
að barn hafi gleypt járntöflur
(sem oft eru sykurhúðaðar).
verður tafarlaust að ná i lækni,
jafnvel þótt tekizt hafi að láta
barnið kasta upp.
SVEFNLYF: Alls konar
svefntöflur og róandi lyf eru
orðin fjarska algeng og mikið
notuð og þvi miður oft i óhófi og
að ástæðulausu. Ef slfk lyf
liggja á glámbekk og börn ná i
þau, koma áhrifin mjög fljótt i
Ijós. Magnið þarf alls ekki að
vera mikið. Barnið verður syfj-
að, sofnar og svefninn getur
orðið að meðvitundarleysi. Ef
skjótt er brugðið við, þ.e.a.s.
áður en barnið nær þvi að sofna,
er von til þess að unnt sé að
minnka hættuna með þvi að láta
barnið kasta upp.
Ef barnið er meðvitundar-
laust, og þaö verður það á
skammri stundu, verður tafar-
laust að koma þvi á sjúkrahús
til magaskolunar og súrefnis-
gjafar. Þáð verður að fá lyf,
sem örva hjartslátt og andar-
drátt og oft er nauðsynlegt að
gefa þvi blóð og saltvatn. A leið
til sjúkrahússins er mjög nauð-
synlegt að barnið fái öndunar-
æfingar. pr
HóSTALYFJABLANDA : sem
ætluð er fullorðnum, getur
valdið slysum, ef börn drekka
hana. Slik lvf innihalda oftast
„sterk” efni sem eru hættuleg
börnum. Jafnvel hóstalyf, sem
eru ætluð börnum, verður að
taka með gát og gæta þess vel,
að barnið fái ekki stærri
skammt en læknir hefur ákveð-
ið. Ef barnið tekur of mikið, er
ráðið það sama og áður hefur
verið nefnt: að láta barnið kasta
upp og helzt að fá magaskolun á
sjúkrahúsi. Oft eru lika gefin
fúkalyf til að fyrirbyggja
lungnabólgu.
15- OG C-VITAMÉN eru yfirleitt
ekki skaðleg. Þó getur verið
varhugavert að gefa of mikið af
B-vitamini. Það sem umfram er
þörf likamans skolast i burtu
með þvaginu. Þótt barn drekki
of stóran skammt af lýsi, er ekki
ástæða til að hafa áhyggjur. Þó
ber að gæta þess, að of stórir
skammtar af A- og D-vitamini
um lengrí tima geta orsakað
vitamínseitrun.
HORMÓNALYF: Það virðist
kannski i fljótu bragði kjánalegt
að tala um hormónalyf i sam-
bandi við börn, en það er full
ástæða til að vara alvarlega við
þeim. Slik lyf, og þá má fyrst
nefna getnaðarvarnarpillur
(sem eru fallegar á litinn) eru
auðvitað stórháskalegar, ef
börn neyta þeirra. Til varnaðar
má geta um atvik, sem kom
fvrir nýlega.
Litil stúlka, þriggja ára
gömul, varö lasin, og þaö kom i
ljós, að hún hafði fengið blæð-
ingar. Læknirinn stór ráðþrota,
þangað til i ljós kom, að barnið
hafði mokað i sig hormóna
kremi (fegurðarkremi), sem
móðirin átti....
UR DAGBOK
LÆKNIS
Viktor__________________________
framhald af bls 12.
ar. En andlitið er dálitið fariö að
láta á sjá, þegar hún hefur ekki
farðað sig. Hún er jú búin að vera
gift i næstum tuttugu ár, og lifið
hefur runniö henni úr greipum.
Og pabbi er jú enginn Steve Mc-
Quinn, það má ekki gleyma þvi.
Hvaö um það, við skröpuðum
saman fyrir breiöskifunni hans
Viktors og læddumst með hana og
morgunkaffið i rúmið til mömmu
og óskuðum henni til hamingju.
Hún var i nýjum rósóttum nátt-
kjól og var reglulega falleg, þar
sem hún lá, en náttlamparnir
voru rósrauðir lika, svo lýsingin
spillti ekki fyrir. Pabbi var eins
og röndóttur selur við hlið hennar
I rúminu.
— Hvaö skyldi þetta vera?
hrópaði mamma og reif pappir-
inn af breiðskifunni. Nei, en . . .
Viktor Klimenko! 0 ... o ... o
takk, krakkar!
Hún sat alveg stjörf og þrýsti
Viktor að barmi sér. Siöan skauzt
hún fram úr rúminu þannig að
hún hafði næstum velt kaffibakk-
anum um koll, og fór fram I dag-
stofu og setti Viktor á fóninn.
Nokkrum minútum seinna geyst-
ust villtir kósakkahestar á ný
gegnum húsið okkar, og mamma
virtist eiga þá ósk heitasta, að
verða numin héöan brott á hnakk-
nefinu eöa hvað þaö nú heitir.
— Hvaö varð af þér? kallaði
pabbi. Kaffið kólnar. Ætlaröu
ekki að taka upp gjöfina frá mér?
— Jú . . . jú . . .
Rós steppunnar hvarf til hjóna-
rúmsins og opnaði annars hugar
litinrferhyrndan pakkameðmjög
fallegri brjóstnál úr bergkristal.
— Takk, elskan, sagði hún og
kyssti pabba á kinnina. Siðan hélt
hún áfram að hlusta á Viktor.
Það er greinilegt, aö þetta á
eftir að verða okkar músik, hugs-
aði ég og byrjaði næstum þvi að
sjá eftir að hafa gefið henni plöt-'
una. Maður gat ekki haft hug-
mynd um, að hún yrði svona frá
sér numin.
Um kvöldiö ætluðum við að
veizlu, en af henni ætlaði ekk-
ert að verða, þvi að mamma
gleymdi steikinni i ofninum, svo
að við urðum að borða djúpfryst-
ar kjötbollur i staðinn. Og allan
timann meðan hún lagði á borðiö
og tók til blóm og kerti suðaði
Viktor á fóninum.
— Heyrðu mamma, nú veröur
þú aö vanda þig, sagði Palli.
— Hvers vegna? Er ekki I lagi,
aö ég njóti fagurrar tónlistar?
— Þú nýtur alls ekki tónlistar-
innar, þú ert yfir þig hrifin af
stráknum, sagöí Palli.
— Ég hef orðiö að þola öll pop-
goð ykkar fram á þennan dag, nú
gæti verið að röðin sé komin aö
mér, svaraði mamma. Og ég
elska rússneska tónlist!
Framhald á bís. 39