Vikan

Eksemplar

Vikan - 06.09.1973, Side 24

Vikan - 06.09.1973, Side 24
O , • I Dagstund á Aki Akureyri er mikið menningarpláss. Lengi vel var bærinn sá næst stærsti á íslandi, en nú eru Kópa vogur og jafnvel Hafnarfjörður komnir fram úr, hvað fólksfjölda snertir. En hversu margir sem flytja til Hafnarfjarðar eða Kópavogs, þá verður þeirri staðreynd ekki haggað, að Akureyri er höfuðstaður Norðurlands (Capital of the northen Iceland, eins og það heitir á túristamáli). Akureyri er mjög sérstæður bær. Hann hefur vaxið jafnt og þétt og aldrei verið neinn vertíðarbragur á bænum, enda hefur bærinn ekki lifs- viðurværi sitt af útgerð, þó hafa verið gerðir út þaðan togarar i aldarfjórðung, og trillukallar halda á sin mið, eins og annars staðar á landinu. í staðinn hefur iðnaður blómgazt þar i marga áratugi og eru þar landsþekkt fyrir- tæki eins og Gefjun, Iðunn, Slippstöðin og Sana. Kaup- félagið á Akureyri, KEA er alveg sér á parti. Stór hluti verzlana i bænum er rekinn af kaupfélaginu, og er sagt að erfitt sé að reka verzlun i sam- keppni við KEA. Ennfremur rekur KEA hótel og apótek ásamt fleiru. í byrjun var sagt, að Akur- eyri sé menningarpláss. Ef einhver bær á íslandi á skilið þá nafnbót, þá er það Akur- 4 eyri. Þar er bókasafn, riki, leikhús, Sjallinn, menntaskóli og margt fleira sem til meniiingar má teljast. Akur- eyri hefur oft verið kallaður danskur bær, þó að enginn geti fært sönnur á að þar sé töluð betri danska en annars staðar á íslandi. Ljósmyndari Vikunnar brá sér til Akureyrai einhvern tima, þegar gott var veður, og ók um bæinn. Hann tók nokkrar myndir þar, sem við birtum hér svona til að sýna þeim örfáu íslendingum, sem ekki hafa til Akureyrar komið, hvernig plássið litur út, eða að minnsta kosti hluti af þvi. Gjörið þið svo vel: er inrs n! Vkureyrar frá f'lugvellinum, er þaö fyrsta sem fyrir ,uw;u ber tvær iiensiusölur, önnur i eigu „hins almúttuga” kaup- félags, hin i einkaeign. Fyrstu húsin birlast smám saman, gömul og viröuleg meftfram Aöalstrætinu. Þeirra á nieðal er Nonnahús, liúsið sem hinn vinsæli harnabókahöfundur og kaþólski prcstur, Jón Sveinsson, bjó i áður en hann hvarf al Jaiuli brott. Ilúsið er nú safn sem Sontasvstur sjá um af miklum mvndarskap. Þangað leggur margur lerðamaðurinn leið sina. KEA-merkiö hlasir viða við á Akureyri. A leiðinni Irá Nonna-húál tll miðbæjarins er fyrsta KEA-húsið. Það cr reyndar kallað llöepfners-hús af gömlum Akureyringum, sem muna þá tiö, þegar llöepfner kaupmaður liöndlaði í þessu húsi. Skammt frá er gömul br.vggja sem einnig bcr nafn hans.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.