Vikan

Eksemplar

Vikan - 06.09.1973, Side 28

Vikan - 06.09.1973, Side 28
Donny Osmond og framtíó hans Stundum, þegar rödd ungs manns breytist, verður hún hrjúf. Margir söngvarar, sem byrja feril sinn, áður en gelgjuskeiðið hefst, eigc' á hiitu að þurfa að hætta að syngja um tima, meðan það stendur yfir. En eins og er, þá er ekkert útlit fyrir, að slikt muni henda Donny. En við skulum engu að siður krossleggja fing- urna. ». Annar mögui»iki er sá, að Donny gæti tapað áhuga á ferli sinum sem söngvari. Þvi eins og margreynt er, gelgjuskeiðið er timabil örra breytinga. Donny gæti ákveðið að leggja meiri áherzlu á skólann og minni á- herzlu á tónlistina. Eða þá hann gæti íengið ógnaráhuga á iþrótt- um eða jafnvel fengið biladellu, þegar hann hefur fengið aldur til þess að aka eigin bil. Það eru svo margir hlutir, sem • akið gætu áhuga hans. Það er t.d barátta fyrir umhverfismál- um. Hann gæti ákveðið að ganga i félagsskap, sem berðist fyrir hreinu lofti og ómenguðum ám eða þá friðun skóga. Og fram- kvæmdir sem slikar, taka mikinn tima og einbeitni. Þetta allt gæti stangazt á við hagsmuni hljóm- sveitarinnar. I raun er framtið Donny’s al- Framhald á bls, 35 Eftirfarandi greinarkorn birtist ibandarisku timariti fyrir stuttu. Hún fjallar um Donny Osmond og framtið lians sem söngvara. Donny hefur, cftir öllu að dæma, náð þvi timabili i lifi hvers manns, að fara í mútur. En hvað um það. greinin er skrifuð á svo dæmigerðan handariskan máta, að það er tæplega annað hægt en að brosa litillega, svona út i ann- að. Hvað sem þvi svo liður, þá er þessi stutti tcxti og myndirnar til þess að svara fyrir öll þau bréf, sem hori/.t hafa með óskum um myndir af Osmonds og Donny. En hér kemur svo greinin, lauslega þýdd. „Donny hetur breytzt. Hann er ekki sá sami, sem þið hafið elskað og dáð svo lengi. Hann er breytt- ur, en á þann hátt, að á eftir er hann ennþá meira krútt og ennþá meira aðlaðandi en nokkurn tima áður. Hann er nú orðinn maður. Nýlega tilkynntu talsmenn Os- mond fjölskyldunnar, að númer eitt stjarna fjölskyldunnar, hefði gengið i gegnum mikið breyt- ingartimabil. Rödd Donny’s hefur dýpkað. Hann syngur nú áttund lægra en hann hefur áður gert. Hvað hefur þetta svo að segja fyrir aðdáendur Donny’s. Það er nú töluvert. Fyrst af öllu, hljóta lögin, sem hann hljóöritar, að breytast. Donny getur nú sungið raunverulegar „ástarballöður” og miklu betur heldur en hann hefur áður gert. Einnig hlýtur einkalif hans að breytast mikið. Þvi eins og allir vita, þegar að rödd unglings dýpkar, er hann til- búinn að verða fullkominn mað- ur, — hann mun jafnvel taka upp á þvi að eiga stefnumót við ein- hverjar stúlkur. Auðvitað hafa allir aðdáendur Donny’s litið á hann sem raun- verulegan mann hingað til, og við bara púum á hvern þann, sem ekki hefur gert slikt hið sama. Donny mun brátt fara að sanna að hann er raunverulegur maður. Þið skuluð ekki láta ykkur bregða, ef það fréttist, að Donny sé farinn að fara út með einhverri sérstakri, þvi það er þannig sem það gerist venjulega. En þið skul- uð ekki tapa trúnni. Rödd Donny’s má hafa breytzt, en gildi hans sem söngvara hefur ekki breytzt i samræmi við það. Hjarta hans tilheyrir ykkur, — aðdáendum hans. Svo hvert ein- asta ástarævintýri, sem hann á fyrir höndum, mun ekki vara lengi. Það sem liklega mun ger- ast, er það, að Donny mun hitta stúlku „númer eitt” og þau munu fara út saman um stund. Þau munu siðan hætta að vera saman og stúlka „númer tvö” kemur fram á sviðið. Það sama mun gerast aftur og aftur og aftur. Þvi eins og við segjum, Donny er of mikið háður aðdáendum sinum til þess að láta eina stúlku ná sér gjörsamlega. Svo látið það ekki draga úr ykkur allan kjark, þó þið heyrið um að Donny sé meö einhverri piu i kvöld og annarri á morgun. Þvi þið skuluð hafa i huga (og þetta er til kvenfólksins) að þú og Donny hittizt eitthvert kvöldið. Og hugsið um það, það yrði alveg stórkostlegt, er þaö ekki? Nú, þegar við erum búin að ræða um væntanlegar breytingar og einkalif Donny’s, skulum við aðeins ræða möguleikana, sem fyrir hendi eru i sambandi við feril hans. t raun gæ(i anzi margt gerzt. 28 VIKAN 36. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.