Vikan

Issue

Vikan - 06.09.1973, Page 33

Vikan - 06.09.1973, Page 33
OENDANLEGUR DAGUR Einhver hugmynd var að brjótast um i undirvitund hennar, óljós, óskiljanleg i fyrstu, en nagandi angist kom henni til að hafa það á tilfinningunni, að ekki væri ailt með felldu. Og svo varð henni þetta allt ljósara, maðurinn, sem stóð þarna fyrir framan hana, var að ljúga. Skugginn i dyragættinni hreyfði sig. Maðurinn kom nær. Eðlis- ávisun eða kannski ótti, kom Cillu til að sitja hreyfingarlaus og hún þrýsti sé ósjálfrátt upp að veggnum bak við sófann. Hljóður og varfærinn, gekk maðurinn inn i eldhUsið. • Hann var hávaxinn, eiginlega glæsilegur maður, — ber- höfðaður. Dökk sólgleraugu huldu alveg augnsvipinn. Uiðað hárið og ljóst iitaraft hefði að likindum gert hann nokkuð kvenlegan, ef ekki hefði komið til snyrtilegt skegg, sem var jafn svart og vel greitt hárið. Hann var nokkuð axlabreiður. Hann var með skjalatösku undir öðrum hand- leggnum og i höndunum hélt hann á stráhatti Dagmar og vinstri- fótarskónum. Cilla hafði farið Ur dragtar- jakkanum, þegar hUn smurði brauðiö og hvit blUssan féll eigin- lega að hvitum veggnum. Maðurinn i dyragættinni sá hana ekki. Hann var greinilega kominn þarna i ákveðnum tilgangi. Hann hikaði andartak i gættinni og hlustaði. Þegar hann svo hreyfði sig, gekk hann ákveðnum skrefum að þvottahúsinu. Hann leit þangað inn og fleygði svo hattinum og skónum þangað. Hann sneri ennþá bakinu að eld- hUsinu og Cillu, en það var ljóst, að hann var vel á verði. Svo gekk hann aftur Ut að veröndinni og lokaði dyrunum. Cilla sá að lós- ræman á eldhUsgólfinu hvarf. En svo var eins og manninum yrði ljós nærvera hennar. Hann sneri sér snögglega við og horfði beint i augu Cillu. Þegar þögnin var rofin, spratt Cilla á fætur. HUn gekk nokkur skref fram á við, en hafði samt stólbak fyrir framan sig, sem hUn studdi sig viö. HUn vissi að það var háskalegt, að láta þennan mann sjá að hUn væri óttaslegin. Henni tókst sæmilega að stilla sig og rödd hennar var róleg og ákveðin, þegar hUn sagði: — Hvað viljið þér og hvaða erindi eigið þér hingað? Þegar hann svaraði ekki strax, endurtók hUn spurninguna: — Hvaða erindi eigið þér hingað'? Hann sagði hikandi: — Ja-a, ég á reyndar erindi. En ég hélt að hér væri enginn heima. Cilla fór nU að verða rólegri Ókunni maðurinn virtist ekki öruggur með sig og nU, þegar þögnin var rofin, var eins og hættan væri liðin hjá. — Þér hljótið að vera að villast sagði Cilla, eins mynduglega og hUn gat. — Nei, ég er ekki að villast sagði hann. — En ég hélt að hUn væri að biða min hér, ég varð hissa að hitta hér fyrir aðra manneskju. — Hverjum áttuð þér von á? — FrU Söderberg, að sjálf- sögðu. Við vorum bUin að mæla okkur mót. — Hverskonar stefnumót átti það að vera? — Við ætluðum að ræða um garðabókina. HUn ætlaði að athuga málið þangað til i dag. — Hvenær áttuð þér að hitta hana? — Strax og ég hefði tima, þvi fyrr i dag, þvi betra, sagði hUn. Cillu fannst sem hUn væri skip- reika, en að björgunarmaðurinn væri maður, sem hUn bar ekki traust til. En þessi maður virtist þekkja Dagmar og hann var greinilega viss um að hitta hana. En það var nokkuð skrýtið, að Dagmar skildi Framhaldssaga eftir Gunnar Berg. Fjórði hluti. setja honum mót þennan dag, átt- unda jUni, sjálfan afmælisdaginn, sem hUn lagði alltaf svo mikið upp Ur! -Cillu var ljóst, að þessi ókunni maður hafði raunar talað nokkuð sennilega, þótt henni fyndist þetta allthljóma undarlega. HUn ætlaði ekki a ð láta hann sleppa svona auðveldlega. — Leggið þér i vana yðar, að vaða beint inn til fólks, án þess að hringja dyrabjöllu, eða dyrum? — Ég hélt hUn væri i garðinum, svo ég var að gá að henni þar, en þegar svo var ekki, gekk ég inn. Ég hefi sjálfsagt verið annars hugar, verið að hugsa um bókina. — Og þegar ég sá hattinn og skóinn, hélt ég að hUn hefði fleygt þessu frá sér og flýtt sér inn, af einhverjum ástæðum. Þá kom ég auga á yður: — Hvernig vissuð þér, að hUn ætti hattinn og skóinn? Hann virtist hugsa þetta vel, tók hægt af sér sólgleraugun og stakk þeim í vasa sinn. Hann hló, svolitið háðslega. — Ég sá hana með þennan hatt á föstudag, fyrir einni viku. Þá sýndi hUn mér garðinn sinn. Það tók langan tima, svo ég hafði gott næði til að athuga hana og það sem hUn var i. Hann gekk að eldhUsborðinu, lagði frá sér skjalatöskuna, dró svo fram stól og settist. — Ef þér setjist, sagði hann og benti á stólinn, sem Cilla hélt dauðahaldi i, — þá getum við borðað þetta brauð og ég skal sýna yður prófarkirnar. Þetta verður mikið rit, „Fegurstu skrUðgarðar i Sviþjóð”. Við bjóð- um aðeins þeim sem hafa til þess uknið, að vera með i þessu verki. Þ;\ getur hver þeirra, sem taka þátt i þessu, fengið allt að tíu lit- myndum af garðinum sinum i bókina. HUn verður prentuð á ttaliu og á mjög finan pappir. Ég er hér með sýnishorn af pappir og preiitun. Þetta verður selt meö áskriftum, en þeim, sem er um- hugað um að koma myndum af Framhald á bls. 43 36. TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.