Vikan - 06.09.1973, Síða 41
— Vertu ekki eins og kjáni,
sagði pabbi. Skrúfaðu nú fyrir
þessa plötu, svo að heyrist til
manns, án þess að maður öskri.
— Ég hlusta ekki á þig, sagði
mamma.
— En guð minn góður, þú ert
búin aö spila hana allan daginn óg'
hálft kvöldið! Ertu ekki orðinn
dálitið hlægileg?
Ó, pabbi, pabbi, hvernig gaztu
fengið af þér að segja svona?
Eitthvaðsvo ósálfræðilegt, meina
ég, Þar sveif mamma um á skýi
og finnst hún vera viðs fjarri, að
taka þátt i einhverju ókunnu og
hættulegu. Þá ryðst eiginmaður
hennar inn i drauminn og segir að
hún sé hlægileg.
— Þú getur sjálfur verið hlægi-
legur! öskraöi mamma og yfir-
gnæfði Viktor.
— Hvað áttu við með þvi?
— Nákvæmlega það sem ég
sagöi. Það er ekki alltaf svo
skemmtilegt að vera gift manni
sem litur út eins og fjárlögin!
Je minn góður! Hvaðan fékk
hún þetta? Hún hlaut aö vera
særð djúpu sári, hugsaði ég, þar
sem ég sat með krosslagða fætur
og hleraði. Það er að visu ljótt að
hlera, en svo forvitnilegt. Ég
meina, hvernig á maður að fá að
vita eitthvað um foreldra sina, ef
maöur hlerar ekki við og viö? Og
gettu hvort ég hafi ekki lært mikið
þá um nóttina!
— Ég vissi að kvenmenn eiga
þaö til að hegða sér undarlega á
þessum aldri, sagði pabbi, en það
hljóta að vera einhver takmörk
fyrir þvi! Hugsaðu um börnin!
Jahá, það hefur maður jú heyrt
áöur . . .
— Þau hlæja að þér, hélt pabbi
áfram miskunnarlaus, og einmitt
þessi grimmd, sem var svo ólik
honum, sagði mér aö hann væri
djúpt, djúpt særður. Var nokkur
furða? Fjárlögin! Pabbi sem er
sá indælasti og bezti sem til er. Þó
aö hann sé ekkert sérlega spenn-
andi, auðvitað, það verð ég að
viðurkenna. Skyldi ég sjálf vilja
vera gift manni eins og honum?
Undarlegar spurningar sem
koma upp I huga manns um miðja
nótt, þegar foreldrar manns eru
aö rifást.. Skyldi ég? Ekki hef ég
beinlinis verið skotin i manngerð-
um sem likjast pabba. Og þó . . .
Nei, ég veit ekki. Maður litur
kannski öðrum augum á það, þeg-
ar maður eldist, verður um tvi-
tugt eða svo. Þá þráir maður
. kannski öryggi. Það hefur maður
lesiö um. Og ef maður imyndar
sér pabba ungan . . . Ég hef séð
helling af myndum af hónum.
Með stúdentshúfu, þráðbeinn og
stifur. Og svo var hann'vanur að
sitja bak við alla aðra og lita út
eins og hann væri að hugsa um
skattskýrsluna.
Nei, sveiattan, nú var ég jafn
reið og mamma. Eru allarkonur i
eðli sinu vondar?
— Hvað koma börnin þessu
við? spurði mamma æst þarna
niðri.
— Þau eru nógu gömul til að
skilja, sagði pabbi leyndardóms-
fullur.
'— Skilja hvað?
— Ja, að þessi Rússi þarna . . .
Viktor eitthvað . . . að þær tilfinn-
ingar, sem hann kallar fram hjá
þér eru töluvert óeðlilegar!
— Hvaðmeðþað? Heldur þú að
ég viti ekki að þú lest klámblöð
hjá rakaranum?
Ja, hver skollinn! Þá fékk mað-
ur aö vita það! Pabbi les klám-
blöð. Það gat manni sizt af öllu
dottið i hug. En hvernig vissi
mamma það?
— A þvi er munur, sagði pabbi
mannlegur og rikjandi.
— Og þegar gamla myndin
með Brigitte Bardot var i sjón-
varpinu i vetur, saztu þarna og
slefaðir! sagði mamma.
LANDSINS MESTA ÚRVAL AF SKINNFATNAÐI
Sendum í póstkröfu um allt land.
Greiðsluskilmálar.
GRÁFELDUR H.F.
Laugavegi 3, sími 26540
Vogar-
merkift
24. sept. —
23. okt.
Einhver persóna, sem
þú þekkir ekki mikiö,
veröur þértil trafalai
vikunni. Viö þvi er
ekkert að gera og
taktu þvi meÖ stökustu
ró og geðprýði. Ekki
er óliklegt, að þú legg-
ir siöar meir aðrar
merkingar i gerðir
þessárar persónu.
Dreka-
merkift
24. okt. —
23. nóv.
Það -eru vandamál
: heimilisins, sem eru
einkennandi fyrir
þessa viku. Hafðu það
i huga, aö smá mistök
geta verið ótrúlega
dýr. Vertu vel á verði,
sérstaklega i umferð-
inni'og viðskiptum við
ókunna.
Bogmanns-
merkift
23. nóv. —
21. des.
Þú ert i stórum hópi
manna i sókn að s«m-
eiginlegu marki, en
vinnur þó sjálfstætt án
mikillar samvinnu við
hina.
Geitar-
merkift
22. des. —
20. jan.
Þessi vika verður
mjög hagstæö, ef þú
gefur þér lausan
tauminn og lætur
stjórnast af tilfinning-
um og ævintýraþrá.
Vatnsbera-
merkift
21. jan. —
19. febr.
Margt bendir til, að
þér muni berast tals-
verðir fjármunir i
hendur Sértu ekki viss
um hvernig þeirra er
aflað skaltu hið snar-
asta losa þig við þá,
þetta gæti leitt af sér
vandræði og misklið.
Fiska-
merkift
20. febr. —
20. marz
Þessi vika verður
frekar heimilisleg,
tiöindalitil og endur-
nærandi. Eftir helgi
ræðst þú i innkaup á
hlutum, sem þig hefur.
lepgi langað i. Haustið
leggst vel i þig, þvi þú
■færð forsmekk af
atburðum haustsins á
næstunni.
36. TBL. VIKAN 41