Vikan - 16.01.1975, Page 19
horni. Ég verð maðurinn, sem
reykir tvær sigarettur i einu.
— Við getum ekki setið hér og
rifizt, sagði Tom óþolinmóður,
þvi flutningavagn var farinn að
flauta fyrir aftan okkur með
miklum fyrirgangi. — Komið á
eftir mér að suðurhliðinni á
Central Park á móts við Plaza.
Nokkrum sinnum leit hann um
öxl og gáði að bilnum þeirra og
drægjust þau aftur úr vegna um-
ferðarinnar, hægði hann á sér,
þar til þau komu i ljós á ný. Ég
held að hann hafi verið hræddur
um að þau þytu niður hliðargötu
og hyrfu út úr lifi hans um allan
aldur.
En það gerðu þau ekki, og við
brugðum á það ráð i sameiningu,
svo undarlegt sem það kann að
virðast, að leigja okkur setustof-
una i viðhafnaribúö inni á Plaza-
hóteli.
Ekki er ég nógu minnugur,
þrátt fyrir annars ágætt minni, til
að ég treysti mér til að rekja gang
allrar þeirrar deilu sem spannst,
áöur en haldið var inn i þessa
vistarveru. Meðan á henni stóð,
fann ég hvernig nærfötin limdust
eins og þvalir snákar við kropp-
inn og svitinn rann i köldum lækj-
um niður eftir bakinu. Upphaf
þessa orðaskaks var i rauninni sú
tillaga Daisy að við skyldum taka
fimm baðherbergi á leigu og fara
i kalt bað. Þessi hugmynd tók svo
á sig hófsamlegra snið, þegar
byrjað var að ræða um stað, þar
sem eitthvað fengist að drekka.”
Hverju okkar um sig þótti þessi
uppástunga „hreint met” — við
töluöum hvert ofan i annað við
ringlaðan hótelþjón og töldum
okkur, eða þóttumst telja okkur
afskaplega skemmtileg...
Herbergið var stórt og hitinn
þar kæfandi. Þótt klukkan væri
þegar orðin fjögur, bar aðeins
heita lykt frá runnunum i garðin-
um inn til okkar, þegar við lukum
upp gluggunum. Daisy gekk að
speglinum, sneri i okkur baki og
lagaði á sér hárið.
■ — Þetta er lúxusíbúð i lagi,
hvlslaöi Jordan meö aðdáunar-
hreim I röddinni og allir ráku upp
hlátur.
— Opnið þið annan glugga,
skipaöi Daisy, án þess aö lita við.
— Það eru ekki fleiri gluggar.
— Jæja, er þá ekki rétt að sima
eftir öxi...
— Það sem við eigum aö gera
erað gleyma hitanum, sagöi Tom
óþolinmóður. — Hann verður tiu
sinnum óbærilegri, ef þiö eruð si-
fellt að tala um hann.
Hann vafði handklæöinu utan af
whiskyflöskunni og lét hana á
boröið.
— Hvers vegna læturðu hana
ekki I friði, laxi? sagöi Gatsby. —
Þaö varst þú, sem vildir koma til
borgarinnar.
Það varð þögn eitt andartak.
Sfmaskráin losnaði af nagla þeim
sem hún hékk á og skall á gólfið
og Jordan hvislaöi „afsakið.” En
að þessu sinni hló enginn.
— Ég skal taka hana upp, sagði
ég.
— Ég er búinn að þvl, laxi.
Gatsby virti slitinn spottann fyrir
sér, ræskti ,sig ihugandi og fleygöi
bókinni stðan á stól.
— Þú hefur uppáhald á þessu
orðtaki, ekki satt? sagði Tom og
var snöggur upp á lagið.
■ — Hverju þá?
— Þessi eilífi „laxi, laxi...”
Hvar hefur þú tileinkað þér
þetta?
— Vertú nú hægur, Tom, sagði
Daisy og sneri sér við frá speglin-
um, — Ef þú ætlar að vera meö
persónulegar svivirðingar, fer ég
héöan á stundinni. Hringdu og
pantaðu svolltinn is út i drykkinn.
Um leið og Tom lyfti simtólinu
barst óvænt hljóð i gegn um hita-
svækjuna og ábúðarmiklir hljóm-
ar brúðarmars Mendelsons óm-
uðu I eyrum okkar frá danssaln-
um fyrir neðan.
■ — Að hugsa sér að nokkur skuli
gifta sig I svona hita! hrópaði
Jordan áhyggjufull.
— Og þó, — ég gifti mig I miðj-
um júni, sagði Daisy Ihugandi. —
Louisville I júni! Það leið yfir ein-
hvern. Hvern leiö nú aftur yfir,
Tom?
— Biloxi, svaraði hann stutt-
lega.
■ — Já, Biloxi hét hann. Hann bjó
til kassa, þessi Biloxi, — þið ráðið
hvort þið trúið mér, — og hann
var frá Biloxi i Tennessee.
— Þeir báru hann heim til min,
bætti Jordan við, — af þvi að við
bjuggum i næsta húsi við kirkj-
una. Hann var heima i þrjár vik-
ur, þar til pabbi sagði honum að
hann yrði aö fara. Pabbi dó dag-
inn eftir að hann fór. En það voru
engin tengzl þar á milli, bætti hún
við, eftir andartaks þögn.
— Ég þekkti einhvern Bill Biloxi
frá Memphis, sagði ég.
— Hann var frændi hans. Ég
þekkti orðið sögu allrar fjölskyldu
hans, áöur en hann fór. Hann gaf
mér golfkylfu, sem ég nota enn
þann dag i dag.
Tónlistin fyrir neðan hafði hætt,
um leið og athöfnin hófst og nú
bárust langdregin fagnaðaróp inn
um gluggann, ásamt húrrahróp-
um, og loks skarkali frá jazz-
hljómsveit, þvi dansinn var
hafinn.
Framhald i næsta blaði
b
kr.i35:,.5tf
kr. 1 3 5
Aurum
sleppt frá áramótum
Fjárhæö hverrar kröfu, reiknings eöa
tékka skal greind og greidd í heilli krónu
frá og meö 1. janúar 1975. Hækka skal
50 aura eöa meira í eina krónu, en 40
aurum og minna skal sleppt.
Viöskiptaráöuneytiö hefur staöfest þessa
breytingu meö reglugerð samkvæmt
heimild í lögum.
Sláttu 10 aura og 50 aura peninga veröur
hætt.
Þrátt fyrir þessa breytingu er heimilt að hafa einingarverð vöru eöa þjónustu
i aurum s.s. gengisskráningu, rafmagnsverö og fl. en reikningar eða kröfur
skulu ávallt greiöast i heilum krónum eins og áður er getið.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
3. TBL. VIKAN 19