Vikan - 25.11.1976, Síða 22
skaust inn í umferðina og stefndi í
vesturátt.
,,En hvernig vissi hann það?”
sagði Franz upphátt við sjálfan sig.
Hvemig vissi ameríkaninn að þeir
hefðu farið í vestur? Og þvi skyldi
eftirlýstur maður elta lögregluna?
Franz stóð þarna og studdi hönd-
unum á mjaðmir sér og hleypti
brúnum um leið og Mercedesbíllinn
hvarf úr augsýn. En þetta kemur
mér svo sem ekkert við, hugsaði
hann. Þetta eru allt saman kolvit-
lausir menn, þessir útlendingar, og
nær engri átt hvemig þeir hegða
sér. En þú snerir þig laglega út úr
þessu, elskulegi Franz. Hingað
koma engir lögreglumenn að snuðra
i kringum bílageymsluna eða
heima. Ekki í þetta sinn. Engar
spurningar, engin húsrannsókn. Og
nágrannarnir fara ekki að pískra sín
i milli og þú ert laus við þá
tilfinningu að með þér sé fylgst. En
eitt verðurðu að gera og það
snarlega. Það er að fjarlægja byss-
umar og sprengiefnið úr kjallaran-
um. Vinir þínir geta falið þetta á
einhverjum öðmm stað. Segðu þeim
það í kvöld, þegar þú hittir þá á
dansleiknum. Segðuþessumofstæk-
ismönnum að láta þig i friði. I þetta
sinn mundu þeir hlusta. Nú hefurðu
góða og gilda ástæðu til þess að losa
þig við þá.
Volkswagen stansaði við bensín-
dæluna. „Fimmtán lítra og það
fljótt.” Franz Hartmann brosti
innilega og i andliti hans rikti sama
heiðríkjan og á himninum fyrir ofan
hann. Já, hugsaði hann glaður i
bragði, nú hefurðu pottþétta afsök-
un. Þeir munu ekki lengur ógna þér
eða kalla þig raggeit. Þegar vinir
þínir snúa sér að stjórnmádum em
þeir búnir að gera líf þitt að heitasta
helvíti óður en þú veist af.
,,Hæ, Willi,” kallaði hann yfir
götuna, „segðu systurþinni að vera
tilbúin klukkan átta. Við ætlum á
dansleik í kvöld. Ef til vill, hugsaði
hann og kímdi, ef til vill á ég að vera
ameríkananum þakklátur. Hann
blistraði og ímyndaði sér að hann
væri að dansa hraðan polka.
David yfirgaf Merano. Að baki
vom síðustu fjölförnu götur bæjar-
ins og reiði hans fjaraði út um leið
og umferðartafimar urðu minni.
Hugsun hans varð aftur skýr og
minnti á beina þjóðveginn fram-
undan. Hann þurfti ekki lengur að
stríða við manndrápsbeygjur og
krókaleiðir, sem hann hafði farið til
þess að vera viss um að hvíti
Fíatinn elti hann ekki.
Framhald í næsta blaði.
skattholum, kommóðum,
skrifborðum og svefnbekkjum
Lítið við og gerið
góð kaup!
Húsgag i íaveish n 1
Reykjav íkur
BRAUTARHOLTI 2 SIMI 11Q40
Myndrænar veggfóðursmyndir sem gera skemmtilega breytingu á heimilinu, rúmlega 4 metra breiðar,
full lofthæð. ^ Æ ^
Einnig fjöldi mynda á innihurðir.
Skemmtileg nýjung.
(VvtaCc^Uuw
Grensásvegi 11 — sími 83500. Bankastræti 7 — sími 11496.
Skemmtileg nýjung
22 VIKAN 48. TBL.