Vikan

Útgáva

Vikan - 25.11.1976, Síða 30

Vikan - 25.11.1976, Síða 30
Jimmy, ellefu ára gamall bróðir minn, kom hlaupandi inn i borðstof- una, þar sem ég var að ljúka við morgunmatinn minn, og breiddi úr íþróttasíðu morgunblaðsins fyrir framan mig. ,,Sjáðu þetta, Carol,” sagði hann æstur. ,,Bryn Wilson er að gifta sig í dag! Hvers vegna sagðirðu mér það ekki?” Andartak starði ég skilningslaus á hann. Bryn — að gifta sig? Hvað í ósköpunum var Jimmy að tala um? Nú, ég var með Bryn síðastliðinn sunnudag...við fórum upp i Tarleton kastalann. Og á eftir... Ég fann að ég roðnaði, og eins og alltaf þegar mér varð hugsað til Bryns, fann ég sælu- strauma hríslast um mig. „Hvaða vitleysa, þér hefur mis- sýnst,” byrjaði ég. En ég leit samt á blaðið, og þegar ég sá fyrirsögn- ina, sem blasti við mér, brá mér heldur en ekki í brún. FÖTBOLTAHETJ AN FREST- AR BRÚÐKAUPSFERÐINNI, las ég. BRYN WILSON SEM LEIK- UR MEÐ CROXLEY LJÖNUN- UM, GENGUR í ÞAÐ HEILAGA í DAG. ÞAÐ MUN SAMT ENGIN ÁHRIF HAFA Á HINN MIKIL- VÆGA LEIK CROXLEY LJÖN- ANNA GEGN WICKHAM ST. MARY’S SÍÐAR I DAG. ,,ÉG VERÐ MÆTTUR TIL LEIKS Á RÉTTUM TÍMA,” SAGÐI WIL- SON VIÐ FRÉTTAMANN BLAÐSINS. „KONAN MlN TIL- VONANDI SKILUR, AÐ MEÐ ÞVÍ AÐ GIFTAST MÉR, GIFT- IST HÚN FÖTBOLTANUM UM LEIÐ.” „Jæja,” sagði Jimmy sigri hrós- andi, „trúirðu mér nú?” Ég kinkaði kolli en gat engu svarað. Ég var gráti nær af vonbrigðum. Hvemig gat Bryn svikið mig á þennan hátt? Hvemig gat hann? hugsaði ég örvæntingarfull. Að vísu höfðum við aðeins þekkst í fáeinar stuttar vikur, en frá því að ég hitti Bryn fyrst, vissi ég að ég hafði aldrei hitt neinn sem hafði jafn mikil áhrif á mig og hann. Og ég hafði haldið að það væri gagnkvæmt! Skepnan þín, Bryn Wilson! hugsaði ég. Falska, svikula kvikindið þitt! En samt vissi ég, að ég myndi ekki geta sætt mig við þá tilhugsun að eiga aldrei eftir að sjá Bryn aftur, finna sterka handleggi hans utan um mig, eða hlýjar varir hans við mínar. Gegn vilja mínum varð mér hugsað til þess þegar við hittumst fyrst, á hótelinu þar sem ég vann. Ég hefði trúlega aldrei hitt Bryn ef Jimmy bróðir hefði ekki verið svona vitlaus i fótbolta. Auðvitað vissi ég að „Croxley ljónin” höfðu pantað herbergi á hótelinu um helg- ina. Ég hafði engan áhuga á því, kveið aðeins allri vinnunni, sem ég vissi að þeim myndi fylgja. „Ég vona bara, að þeir leggi ekki anddyrið í rúst, eða fari að kyrja klámvísur um miðjar nætur!” sagði ég við Shirley Kelston, sem vann með mér í gestamóttökunni. „Jæja, láttu þá bara ekki plata þig í fatapóker meðan þú ert á vakt”, sagði hún stríðnislega. „Ef einhver þeirra verður með læti, þá kalla ég á hótelstjórann — eða lögregluna”, sagði ég ókveðin. Ég var að segja mömmu frá þessu samtali okkar daginn eftir, þegar ég tók eftir, að Jimmy hafði lagt frá sér skólabækurnar og hlustaði með sperrt eyrun. „Verða Croxley ljónin virkilega á þínu hóteli?” spurði hann ákafur. „Þú færð þá að sjá þá í raun og veru?” „Ég veit ekkert um það. Þeir skrifa sig inn hjá mér, og ég býst við að sjá þó á hótelinu,” sagði ég. „En þá hlýturðu að sjá Bryn Wilson!” stundi Jimmy eins og dá- leiddur. „Hver er Bryn Wilson?” spurði ég- „Veistu það ekki?” Jimmy var greinilega hneykslaður. „Hann er einn af frægustu fótboltahetjum landsins, það er nú bara það. Þú hlýtur að hafa heyrt um hann!” Mamma og ég litum hvor á aðra og kímdum. „Heldurðu að þú gætir fengið eiginhandaráritun hjá honum fyrir 30 VIKAN 48. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.